22.04.1980
Sameinað þing: 46. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2022 í B-deild Alþingistíðinda. (1877)
132. mál, símamál
Fyrirspyrjandi (Skúli Alexandersson):
Herra forseti. Ég hef á þskj. 235 leyft mér að bera fram fimm fsp. til hæstv. samgrh. um símamál. Fsp. eru svohljóðandi:
1) Hver er ástæða þess, að enn hefur ekki verið ráðin bót á lélegri virkni sjálfvirka símans á Snæfellsnesi — þrátt fyrir þær framkvæmdir við símann sem unnið var að á s. l. ári? Hvenær er lagfæringa von?
2) Hvenær er áætlað að sjálfvirkur sími komi á bæi í Eyrarsveit og Helgafellssveit?
3) Hver er áætlun um lagningu sjálfvirks síma um sveitir á Vesturlandi? Eru uppi áform um að koma á næturþjónustu í þeim símstöðvum, sem annast þjónustu við sveitirnar, þar til sjálfvirkur sími leysir slíka þjónustu af hólmi?
4) Hver er ástæðan fyrir því, að ekki er einn og sami gjaldflokkur fyrir símtöl milli eftirtalinna staða: a) Stykkishólms, Grundarfjarðar, Ólafsvíkur og Hellissands, b) Hvalfjarðar, Akraness, Borgarness og Hvanneyrar?
5) Eru fyrirhugaðar á næstunni breytingar á gjaldskrá Landssímans til jöfnunar símakostnaðar?
Þessar fsp. skýra sig að vissu leyti að mestu sjálfar, en ég held að það sé þó rétt að fara um þær nokkrum orðum. Það er greinilegt að símamál eru meðal þeirra mála sem liggja hvað þyngst á landsbyggðinni. Á þessum fundi í Sþ. eru þrjár fsp. um símamál. Sjálfvirkur sími var tengdur við Hellissand og Ólafsvík á árinu 1969 og við Stykkishólm og Grundarfjörð árið 1967. Það var tekið svo til orða um símann, að hann væri sjálfvirkur, en miklu frekar mátti segja að um leið og handvirka afgreiðslan var tekin úr sambandi yrði síminn óvirkur, vegna þess að uppbygging þessa sjálfvirka síma til okkar var þannig, að hann annaði alls ekki þeirri þörf sem þarna var. Á þessu tímabili frá 1967 og 1969 hafa ýmsar lagfæringar verið gerðar á símanum og okkur lofað ár frá ári að þarna mundi verða ráðin fullkomin bót á, en sú bót hefur ekki orðið enn.
Við höfum sagt það, Snæfellingar, um lagningu sjálfvirks síma út á Snæfellsnes, að hún líktist því að lagður hefði verið vegur þessa leið, en aðeins einn bíll gæti komist um hann og útskot væru með margra, margra kílómetra millibili, þannig að hver sá sem ætlaði um veginn yrði að bíða mjög drjúgan og langan tíma til þess að geta komist áfram og alls konar truflanir og stíflur ættu sér stað. Þannig hefur þetta raunverulega verið.Ýmsar endurbætur hafa þó átt sér stað. Á árinu 1977 var byggð örbylgjustöð við Kothraun í Helgafellssveit. Við bjuggumst þá við að símasambandið lagaðist hjá okkur á útnesinu, en svo varð ekki. Sú stöð mun þó hafa þjónað Stykkishólmi þannig að vitaskuld hefur hún bætt um þá þjónustu sem var á úthéraði. Á s. l. sumri urðum við varir við mikla símavinnuflokka og við vissum, að á fjárlögum voru alldrjúgir peningar til þessara hluta. Við gerðum því ráð fyrir verulegum lagfæringum, en af þeim hefur ekki orðið nema í mjög litlum mæli og jafnvel engum. Því verður sjálfsagt kennt um eins og oft áður, að ekki hafi verið peningar fyrir hendi til að ljúka þessu. Vel má vera að að einhverju leyti sé sökin sú að peninga hafi vantað. En ég held þó að sú lélega þjónusta, sem Snæfellsnes hefur orðið að þola í símamálum, hafi stafað meira af skipulagsleysi en því að fjármagn hafi vantað til úrbóta. Það hafa verið lagðar stórar upphæðir í aðgerðir sem ekki hafa nýst. Ég hef vissan grun um það t. d. að við framkvæmdir, sem voru skipulagðar og unnar í fyrra, hafi verið fjárfest í dýrum hlutum án þess að hugsað væri nægilega fyrir því að framkvæmdin nýttist sem skyldi.
Þetta vildi ég segja um fyrstu spurninguna. Þungamiðja hennar er fyrst og fremst sú, hvenær við megum búast við því að til lagfæringar komi. Það var einn ágætur Snæfellingur hér frammi á gangi rétt áðan að tala við mig, og það fyrsta, sem hann sagði við mig þegar ég kom út úr dyrunum, var: Það er nú sama ástandið með símann, þar er ekkert í lagi annað en innheimtan. — Þessar ágætu stofnanir, sem eiga að veita okkur fullkomna þjónustu, gleyma ekki innheimtunni. Það er alveg sjálfsagt að sá þáttur sé vel ræktur. En það verður að rækja annað eftir því.
Önnur spurning tengist þessari fyrstu að vissu leyti, þ. e. hvenær von er á að sjálfvirkur sími komi á bæi í Eyrarsveit og Helgafellssveit. Fyrirheit hafa verið uppi um það, að þessar sveitir báðar fengju sjálfvirkan síma, og ég veit að þeir Helgafellssveitarmenn gerðu ráð fyrir því, þegar örbylgjustöðin var reist við Kothraun, að nú færi að styttast í að þeirra svæði — en það er nánasta svæði við Stykkishólm og við þessa stöð — fengi sjálfvirkan síma. Þar hefur ekki bólað á neinum framkvæmdum og þess vegna er spurt ákveðið um það, hvenær von sé um að sjálfvirkur sími komi í Helgafellssveit. Aftur á móti mun málum þannig háttað í Eyrarsveit, að hluti sveitarinnar komst í samband þegar unnið var þar að framkvæmdum í fyrra, og búið er að leggja fjölsíma um sveitina alla, en af einhverjum ástæðum, sem mér eru ekki kunnar, vantar smiðshöggið á að sú fjárfesting, sem þarna er búin að eiga sér stað, nýtist til fulls.
Þriðja spurningin er um það, hver sé áætlun um lagningu sjálfvirks síma um sveitir á Vesturlandi. Samkv. upplýsingum, sem eru í aths. við frv. til l. um lagningu sjálfvirks síma, sem fyrrv. samgrh., núv. hæstv. fjmrh., Ragnar Arnalds, lagði fram á þinginu í haust, 101. löggjafarþinginu, er talið að 3600 heimili í sveitum búi við handvirkt símasamband. Af þessum heimilum eru 721 á Vesturlandi. Meginhluti þessara heimila nýtur þeirrar símaþjónustu að komast í gegnum símstöð 6 tíma á sólarhring. Það gefur auga leið, að slík lokun frá umhverfinu skapar ýmiss konar vandræði. Og það er ekki nema eðlilegt að fólk, sem býr við þessar aðstæður, gangi hart eftir því, að símaþjónustan verði bætt og þá fyrst og fremst að sjálfvirkur sími komi á þessi svæði. Ég vil taka undir það, að skrefið, sem nefnt var í sambandi við Kjósarhrepp áðan, virtist mér vera mikið og gott skref fyrir allar sveitir á Vesturlandi, ef slíkt skref væri hægt að stiga, það að hægt væri að hafa opið — þó það væri hin handvirka þjónusta — 24 stundir eða allan sólarhringinn. Það væri mikið og gott skref, en það er mjög langt frá því að slík þjónusta sé um Vesturland. Að vísu er nokkur hluti af Vesturlandi þannig tengdur við Borgarnes, þ. e. sveitirnar sunnan Skarðsheiðar og Bæjarsveit og svo einhver smásvæði í kringum Búðardal. En þetta er spurning sem forvitnilegt er að fá svar við, hvenær megi a. m. k. heyra áætlun um lagningu sjálfvirks síma um sveitir á Vesturlandi. (Forseti hringir.) Forseti bendir á að ég sé orðinn heldur langorður og ég skal því stytta mál mitt.
Þar sem handvirkur sími er og símstöðvar eru lokaðar meginhluta sólarhringsins og aðeins 6 klst. afgreiðslutími, þá er mikil þörf á því — þó að bein þjónusta sé ekki frá símstöðvunum — að haldið sé uppi næturvakt. Sveitirnar í Dölum hafa þegar komið sér upp slíkri næturvakt með því að greiða kostnaðinn sjálfar. Slík þátttaka sveitanna má kannske segja að sé góð. Hún sparar símanum peninga. En vitaskuld er það eðlileg,og sjálfsögð krafa þessa fólks, að símstöðvarnar annist á kostnað Landssímans þá sjálfsögðu skyldu að hafa næturvakt á símstöð þannig að hægt sé að komast í samband við lækna og neyðarþjónustu á öllum tímum sólarhringsins.
Fjórða spurningin var um hver sé ástæðan fyrir því, að ekki er einn og sami gjaldflokkur fyrir símtöl milli eftirtalinna staða: a) Stykkishólms, Grundarfjarðar, Ólafsvíkur og Hellissands, b) Hvalfjarðar, Akraness, Borgarness og Hvanneyrar. Þessi spurning byggist á því, að ég tel að meðan þessi skipti eru í gildi á milli þéttbýlisstaða á Vesturlandi sé hvergi dýrara að nota síma en á Vesturlandi. Ef við förum á hinn enda landsins, þá sjáum við að innan sama gjaldflokks er meginhluti þéttbýlisstaðanna, þ. e. í einum og fyrsta gjaldflokki eru Reyðarfjörður, Breiðdalsvík, Eskifjörður, Fáskrúðsfjörður, Neskaupstaður og Stöðvarfjörður. Þessir staðar allir eru í fyrsta gjaldflokki. og samkv. þeirri gjaldskrá, sem fylgdi síðustu símaskrá, mundi skrefið, sem er 60 sekúndur þarna, kosta 8.50 kr. Við á Snæfellsnesi og Vesturlandi njótum þess aðeins að tala við næstu byggð við hliðina á okkur með þessum kjörum. Við á Hellissandi getum t. d. aðeins talað við Ólafsvík á þessum kjörum, en alls ekki Grundarfjörð og Stykkishólm. Sama er að segja um suðurhluta kjördæmisins, að Akranes getur aðeins talað við Hvalfjörð á þessum kjörum og Borgarnes við Hvanneyri. Ef jöfnuður ætti að vera á þessu ættu Stykkishólmur, Grundarfjörður, Ólafsvík og Hellissandur vitaskuld að vera sama gjaldsvæði og Hvalfjörður, Akranes, Borgarnes og Hvanneyri á öðru og hinu sama.
Síðasta spurningin er þessi sívakandi og endurtekna spurning allrar landsbyggðarinnar, hvenær við megum eiga von á breytingum á gjaldskrá Landssímans til jöfnunar. Það væri hægt að flytja langt mál um þessa spurningu, en ég vil aðeins benda á það, sem er réttlætismál að leiðrétta fyrst og fremst, en það er verðmismunur vegna vegalengda. Það er dýrara fyrir þann, sem býr norður á Langanesi, að tala við þm. sinn heldur en þann sem á heima uppi á Akranesi. Slík mismunun nær náttúrlega ekki nokkurri átt. Það er stöðug krafa landsbyggðarinnar, að þessum málum verði breytt og allt hnígi í þá áttina að jöfnuður komist þarna á.