22.04.1980
Sameinað þing: 47. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2030 í B-deild Alþingistíðinda. (1887)
14. mál, tekjuskipting og launakjör
Frsm. (Karvel Pálmason):
Herra forseti. Atvmn. hefur haft til umfjöllunar till. þá til þál. um kannanir á tekjuskiptingu og launakjörum sem hér er nú til umr. N. sendi till. til umsagnar nokkurra aðila, þ. á m. Vinnuveitendasambands Íslands, Vinnumálasambands samvinnufélaganna og Kjararannsóknarnefndar, og allir þessir aðilar mæla með samþykkt tillögunnar.
N. flytur á þskj. 273 tvær brtt., sem eru um það, að í stað orðsins „nákvæmar“ í 1. mgr. komi: ítarlegar, og í öðru lagi að upphaf 2. mgr. orðist svo: „Í könnunum þessum skal m. a. hafa hliðsjón af því að upplýsa eftirtalda þætti.“ Hér er einvörðungu um orðalagsbreytingar að ræða, en efnislega er mælt með samþykkt till.
Með þeim brtt., sem n. leggur til, mundi ályktunin hljóða þannig:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta framkvæma ítarlegar kannanir á launakjörum og tekjuskiptingu í þjóðfélaginu, sem mættu verða grunnur að sanngjarnari tekjuskiptingu og hagkvæmara launafyrirkomulagi. Kannanirnar skulu sérstaklega miðast við að gera grein fyrir hvort vissir hópar hafi ekki öðlast þá hlutdeild bætts þjóðarhags, sem almennt geti talist réttmæt, og skulu þannig unnar að á grundvelli þeirra megi ákveða hvaða aðferðum hægt sé að beita til að auka laun og tekjur þeirra einstaklinga eða hópa sem verst eru settir.“ Síðan kemur orðalagið eins og lagt er til af hálfu n. að upphaf 2. mgr. orðist: „Í könnunum þessum skal m. a. hafa hliðsjón af því að upplýsa eftirtalda þætti“ o. s. frv.
Það er ekki ástæða til að hafa mörg orð um þetta. Hér er að mínu viti um mikið mál að ræða, nauðsynlegt mál sem gjarnan hefði mátt hafa verið byrjað á fyrr og verið komið lengra í því að kanna þann frumskóg launataxta sem í þjóðfélaginu ríkir. Og vel mætti mér segja að fengist þar leiðrétting á ýmsu sem betur mætti fara, þá væri það með öðru einhver besta kjarabótin fyrir þá sem verst er settir í dag.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri; en n. mælir einróma með að þáltill. verði samþ. með þeim tveimur breytingum sem hún leggur til á þskj. 273 að gerðar verði.