22.04.1980
Sameinað þing: 47. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2043 í B-deild Alþingistíðinda. (1896)
146. mál, hafnargerð við Dyrhólaey
Guðmundur J. Guðmundsson:
Herra forseti. Ekki kvaddi ég mér hljóðs til þess að mótmæla einu eða neinu í ræður flm., hv. þm. Siggeirs Björnssonar. Þetta var — án þess að ég sé neinn umsagnaraðili um ræður — ákaflega skýr og fróðleg lýsing á sögu þessara rannsókna og þess draums Sunnlendinga um höfn fyrir Suðurlandi. Þarna hafa farið fram ákveðnar rannsóknir og hér er farið fram á að fela ríkisstj. að láta fara fram á árunum 1980–81 fullnaðarrannsókn á hafnargerð við Dyrhólaey. Að vísu liggja fyrir gamlar áætlanir um kostnað við þessa höfn sem, ef ég man rétt, er upp á tugi milljarða. En hitt kemur fram bæði í grg. og í ræðu frummælanda, að aðstæður eru nokkuð breyttar, þar sem þarna skapast gífurlegir möguleikar á útflutningi. Vissulega greiði ég fyrir því, að till. fari til n. og fái athugun. Ég vil þó aðeins minnast á eitt atriði, því að þetta rifjar upp fyrir mér gamalt atvik.
Á þessu hv. Alþ., fyrir u. þ. b. 20 árum, flutti Karl heitinn Guðjónsson till. nokkuð svipaðs eðlis efnislega hvað það snertir að láta fara fram rannsókn á hafnarstæði við Dyrhólaey eða á öðrum stað á Suðurlandi. Þessi till. var samþykkt. Svo leið ár. Svo leið annað ár. Svo leið hálfur áratugur. Ég held að það hafi ekki komið fram fyrr en í Vestmannaeyjagosi, að þó að svona ályktunartill. hefði verið samþykkt, þá hefði Hafnamálastofnunin ekki gert nokkurn skapaðan hlut — ekki nokkurn skapaðan hlut um árabil. Ég vil því minna á — þó að ég sé ekki að ásaka flm., fjarri því, ég veit að það er ekkert nema gott sem fyrir þeim vakir — að það virðist oft ákaflega mikið á það skorta að þáltill. séu framkvæmdar, sbr. þáltill. Karls heitins Guðjónssonar, sem lá í salti hjá hafnamálastjóra um árabil. Og loksins — ég held, eins og ég sagði að það hafi verið þegar Vestmannaeyjagos kom — var farið að rannsaka þessi mál. Þessar rannsóknir hefði verið hægt að framkvæma miklu fyrr. Að vísu hef ég ekki vitað Vestmanneyinga vera kappsama í þessu, þó að Karl heitinn Guðjónsson hafi verið Vestmanneyingur og borið þetta fram, en ég held að þetta sé ákaflega stórt mál, að vísu gífurleg fjárfesting, en jafnframt möguleikar á gífurlegri framleiðslu og útflutningi.
Ég óttast það bara, þó að þessi þáltill. verði samþykkt, að svo verði ekkert meir, fyrr en kannske flm. eða aðrir fara að athuga þetta eftir næsta kjörtímabil. Ég vil þess vegna — þó að það sitji kannske ekki á mér sem nýliða — vara hv. flm. við því, að ef þeir gera ekki einhverjar sérstakar ráðstafanir, þá er engin trygging fyrir því, að þessi till. verði neitt annað en marklaus samþykkt frá Alþ., — að vísu ekki alveg marklaus, því að Alþ. meinar sjálfsagt allt gott með henni, en framkvæmd þál. um svona rannsóknir er, eins og fyrri till. um þetta mál bera með sér, í ákaflega mikilli óvissu. Ég veit ekki hvernig því mætti breyta. Það mætti athuga það í n., hvort setja ætti í þál. ákvæði um að hafnamálastjóri eða Hafnamálastofnunin skuli hafa skilað áliti eigi síðar en einhvern tiltekinn dag.
Ég vil aðeins gera þessa stuttu aths. um leið og ég lýsi yfir stuðningi mínum við tillöguna.