22.04.1980
Sameinað þing: 47. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2044 í B-deild Alþingistíðinda. (1897)
146. mál, hafnargerð við Dyrhólaey
Jón Helgason:
Herra forseti. Ég vil þakka hv. 7. þm. Reykv. fyrir þessa ágætu ábendingu og stuðningsyfirlýsingu við þessa till. Eins og fram kom í máli hans og ræðu frsm. er búið að tala lengi um þetta og án þess að mikill árangur yrði. Hins vegar hefur síðustu árin samt þokast nokkuð í þá átt, að menn geri sér ljóst hvaða möguleikar eru þarna fyrir hendi, því að eftir ítrekaða samþykkt hér á Alþ. um að svo skuli gert er vita- og hafnamálastjórn nú búin að gera till. um höfn við Dyrhólaey, — höfn þar sem gætu lent allt að 60 þús. tonna skip. Bæði liggur því fyrir að þetta verk er framkvæmanlegt og líka nokkrar hugmyndir um hvað það muni kosta.
Eins og fram kemur bæði í till. og hjá frsm. liggur fyrst og fremst fyrir að meta arðsemi þeirrar framkvæmdar, sem till. fjallar um, með tilliti til þessara nýju möguleika, þ. e. útflutnings á vikri af Mýrdalssandi. Hér voru á s. l. ári fulltrúar frá þýsku fyrirtæki sem lýstu yfir miklum áhuga á að fá vikurinn, og það er enn haldið sambandi við þá og þess vænst að úr því geti orðið, ef möguleikar skapast til að skipa honum út. Vitanlega er miklu æskilegra að hægt væri að leggja fjármagn í að byggja varanlega höfn en að setja upp einhver útskipunarmannvirki fyrir vikurinn sem eingöngu nýttust í því skyni og hefðu örugglega takmarkaðri endingu, þannig að miklu meiri endurnýjun þyrfti á þeim en á varanlegri höfn.
Það, sem fjallað er um í þessari till., er að fá fram mat á því, hvort þarna sé ekki um verkefni að ræða sem væri sannarlega mjög æskilegt frá þjóðhagslegu sjónarmiði, fyrir utan þá miklu þýðingu sem þetta hefði fyrir aðliggjandi héruð, eins og hér hefur verið rakið.