22.04.1980
Sameinað þing: 47. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2045 í B-deild Alþingistíðinda. (1898)
146. mál, hafnargerð við Dyrhólaey
Guðmundur Karlsson:
Herra forseti. Ég vildi leyfa mér að taka undir mál þeirra þm. sem á undan mér hafa talað um þessa ágætu þáltill. okkar Sunnlendinga. Sérstaklega vil ég þakka hv. þm. Siggeiri Björnssyni fyrir hans ágætu ræðu.
Ég get verið alveg sammála 7. þm. Reykv. Ég hef alltaf efast um ágæti þáltill. yfirleitt, hvað af þeim verður og hvaða gagn verði að þeim. Og sannarlega væri ástæða fyrir okkur Sunnlendinga nú að vinna að því, að gagn verði að þessari þáltill. og þessum flutningi. Hann vék vafalaust að mér þar sem hann efaðist um áhuga Vestmanneyinga á hafnargerð við Dyrhólaey. Þó má nú með sanni segja að Karl Guðjónsson sýndi áhuga sinn og nú ég með því að vera með í þessum tillöguflutningi. En svo vill nú til, að margur Vestmanneyingurinn á rætur að rekja einmitt til Skaftafellssýslu. Áhugi minn skapast að vissu leyti af því, að það var mikið rætt um það í Vestmannaeyjagosinu að flytja út Heimáey, selja hana eða það sem við hana bættist og fá fyrir hana mikla peninga. Maður las um það t. d. í merkum bandarískum tímaritum, eins og Time, að við gengjum á milljónum af dollurum. Satt að segja hitnaði manni um hjartaræturnar þegar maður var að hugsa um hvað marga dollara maður hefði undir fótum. En nú er möguleiki á því, að því er virðist, að flytja Heklu gömlu út. Og hvers vegna ekki að selja hluta af henni, það sem hún er að spúa yfir okkur öðru hverju? Ég sé ekkert því til fyrirstöðu.
Hér er ekki um það að ræða, eins og áður hefur verið, að reisa hafnarmannvirki til fiskveiða eða fiskihöfn. Fyrst og fremst er þarna um að ræða hluta af því merkilega starfi sem unnið hefur verið að á undanförnum árum í jarðefnaiðnaði. Mér finnst að þar hafi verið unnið kannske merkilegra brautryðjendastarf en maður hefur viljað viðurkenna og komið hefur fram. Og mér finnst full ástæða til þess einmitt nú að fela hafnamálastjórninni að gera þá athugun sem áður hefur verið um rætt, einmitt um möguleika til hafnargerðar við Dyrhólaey. Þarna er um það að ræða að byggja þarna mannvirki strax þegar ástæða þykir til, vegna þess að hægt er að selja bæði iðnaðarvörur, sem framleiddar verða úr þessum vikri, og eins vikurinn sjálfan á evrópskum markaði.
Það er rétt, sem kom fram hjá 7. þm. Reykv., að þegar við bjuggumst við því í Vestmannaeyjagosinu, að Vestmannaeyjahöfn lokaðist, þá fórum við að leita eftir þeim athugunum sem gerðar hefðu verið á suðurströnd landsins samkv. áður fluttum tillögum þar um. En þegar til átti að taka fundust þær engar. Þær rannsóknir eða árangur af þeim fannst ekki. En ég vona að við Sunnlendingar, sem þessa tillögu flytjum, höfum þá mannrænu í okkur að fylgja því eftir að þessi rannsókn verði gerð, hvort sem hún verður gerð á þessu og næsta ári, eins og gerð er tillaga um. Ég býst varla við því að framkvæmdin verði svo hröð, en ég vonast til þess, að á næstu árum verði veitt fé til þessarar rannsóknar og að undirbúningsvinna að hafnargerð verði tilbúin þegar til þarf að taka vegna útflutnings á Heklu gömlu.