23.04.1980
Efri deild: 68. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2047 í B-deild Alþingistíðinda. (1909)
34. mál, brunatryggingar utan Reykjavíkur
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Herra forseti. Ég er mjög hlynntur því sjónarmiði sem kom fram hjá hv. 3. þm. Suðurl. fyrr í dag, að þarna sé um frjálsar tryggingar að ræða, og leyfi mér þess vegna að spyrjast fyrir um það, hvort nauðsyn sé að hraða málinu svo að ekki geti unnist tími til að skoða það betur, t. d. þannig að málið verði þá afgreitt á mánudag , annaðhvort óbreytt eða þá með þessari breytingu. Ég leyfi mér að æskja þess að svo verði gert, ef ekki knýja einhverjar alveg sérstakar ástæður á um það að afgreiða málið í dag.