23.04.1980
Neðri deild: 63. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2060 í B-deild Alþingistíðinda. (1931)
96. mál, almannatryggingar
Frsm. (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Heilbr.- og trn. þessarar hv. d. hefur fjallað um frv. til l. um breyt. á lögum um almannatryggingar, sem felur í sér heimild til að greiða elli- og örorkulífeyrisþegum örorkustyrkþegum uppbót vegna bensínkostnaðar að settum ákveðnum skilyrðum í reglugerð um greiðslu slíkra bóta.
Endurskoðunarnefnd almannatryggingalaga var falið að gera tillögur um úrbætur sem heimiluðu greiðslur til öryrkja vegna síhækkandi bensínverðs, en fjárhagsgeta öryrkja, sem litla eða enga vinnu geta stundað, er mjög erfið til að standa undir þessum hækkunum. N. hafði skjót handtök í þessu máli og var það afgreitt með forgangshraða úr n. Taldi n. að ákvæði um þetta væri best tryggt í heimildarákvæði 19. gr. almannatryggingalaga, um uppbætur á lífeyri elli- og örorkulífeyrisþega, að því viðbættu að örorkustyrkþegar bættust í hóp þeirra sem uppbóta gætu notið samkv. ákvæðum þessarar greinar. Í ljós hefur nú komið við skoðun á þessu máli í heilbr.- og trn. að framkvæmdaerfiðleikar eru á að hafa ákvæðið tengt þessari mgr. 19. gr. laganna, auk þess sem heilbr.- og trn. heldur að orðalag greinarinnar væri óþarflega rúmt miðað við tilgang frv.
Heilbr.- og trn. sendi frv. til umsagnar Öryrkjabandalaginu og Tryggingastofnun ríkisins. Þar sem hér var um mjög brýnt mál að ræða, sem þurfti skjótrar úrlausnar við, gaf heilbr.- og trn. umræddum aðilum stuttan frest til að skila áliti um frv. Öryrkjabandalagið og Tryggingastofnunin mæltu með samþykkt frv., en í umsögn Tryggingastofnunarinnar kemur einnig fram eftirfarandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Tryggingaráð samþykkti að mæla efnislega með samþykkt frv., enda verði tryggileg og ótvíræð ákvæði séu um framkvæmd málsins í reglugerð og tryggilega séð fyrir aukinni fjárþörf Tryggingastofnunar ríkisins vegna óhjákvæmilegra bótahækkana er leiðir af samþykkt frv.“
Tryggingaráð, sem afgreiða varð málið á sama fundi og það var lagt fyrir, taldi því einungis geta mælt efnislega með samþykkt frv., en ekki geta tekið afstöðu til orðalags frvgr. frekar án þess að fá rýmri tíma til að skoða málið. Undirstrikaði Tryggingastofnunin því í bréfi sínu, að tryggileg og ótvíræð ákvæði yrðu að vera um framkvæmdina í reglugerð. Málið kom aftur til umræðu á næsta fundi tryggingaráðs og komu þar upp efasemdir um frvgr. Var talið að of opið orðalag frvgr. byði því heim, að erfitt væri að sjá hvar draga ætti mörkin í framkvæmd þessa ákvæðis almannatryggingalaganna.
Með hliðsjón af ábendingum tryggingaráðs var málið mjög vandlega skoðað í heilbr.- og trn., sem komst að þeirri niðurstöðu að gera þyrfti töluverðar breytingar á orðalagi frvgr. til að ótvíræður og réttur skilningur á því, sem að væri stefnt með frv., kæmi fram, sem er í samræmi við grg. endurskoðunarnefndar almannatryggingalaga með þessu frv.
Einnig er rétt að undirstrika rækilega ábendingar tryggingaráðs um að tryggilega verði séð fyrir aukinni fjárþörf til að lagaákvæði þetta geti skilað tilætluðum árangri. Í grg. með frv. er reiknað með a. m. k. 65 millj. kr. árlegum aukaútgjöldum Tryggingastofnunarinnar vegna þessa og er það efalítið í lægra kantinum og ekki ofreiknað.
Í nál. á þskj. 333 eru brtt. á þskj. 334 rökstuddar, en í nál. kemur eftirfarandi m. a. fram, með leyfi hæstv. forseta:
„Rétt þykir að gera hér nánari grein fyrir þessum breytingum, þar sem n. gerir miklar breytingar á 1. gr. frv., þó ekki sé um efnisbreytingar að ræða. N. taldi að samkv. orðalagi frvgr. kæmi ekki nægjanlega skýrt fram vilji löggjafans hvar draga ætti mörkin eða hvernig meta ætti afgerandi sérþarfir bótaþega við ákvörðun uppbóta, auk þess sem mikilvæg mgr., sem er í núgildandi lögum, var felld brott.
Samkv. frv. átti að halda orðalagi 3. mgr. 19. gr. í núgildandi lögum, en bæta við örorkustyrkþegum. Framkvæmd laganna nú varðandi þessa grein er sú, að elli- og örorkulífeyrisþegar hafa fengið uppbót vegna mikils kostnaðar af lyfjum og vegna sérstakrar umönnunar í heimahúsum, svo dæmi sé tekið.
Tilgangur frv. er að greiða uppbót vegna bensínkostnaðar elli- og örorkulífeyrisþega svo og örorkustyrkþega, sem nánari skilyrði yrðu sett um í reglugerð, — en ekki að örorkustyrkþegar fengju uppbætur þær sem nú eru veittar elli- og örorkulífeyrisþegum samkv. gildandi lögum, en slíkt gæti hæglega misskilist ef breyting yrði gerð á þessari mgr. varðandi uppbót vegna bensínkostnaðar, enda þjónar sú grein allt öðrum tilgangi og einungis fyrir elli- og örorkulífeyrisþega.
Því gerir n. tillögu um að 3. mgr. núgildandi laga verði óbreytt, en inn komi ný mgr. sem eingöngu taki til uppbótar vegna bensínkostnaðar öryrkja.
Einnig skal á það bent, að samkv. frv. átti að falla niður 4. mgr. núgildandi laga, sem er mikilvægt ákvæði, t. d. vegna framkvæmda tekjutryggingarákvæðis í 1. mgr. 19. gr.
N. gerir því tillögu um að núgildandi 4. og 5. mgr. verði áfram í gildi sem 5. og 6. mgr., en gerir aðeins á þeim orðalagsbreytingar, þar sem ákvæði þeirra greina eiga einnig við varðandi uppbót vegna bensínkostnaðar öryrkja í 4. mgr.“
Brtt. sem n. gerir hljóðar því svo, með leyfi forseta:
„Greinin orðist svo:
Á eftir 3. mgr. 19. gr. laganna komi ný mgr., sem verður 4. mgr. og orðast svo:
Þá er og heimilt að greiða enn frekari uppbót á elli- og örorkulífeyri, svo og örorkustyrk vegna rekstrar bifreiðar, sem bótaþega er brýn nauðsyn að hafa vegna hreyfihömlunar, ef sýnt er að bótaþegi geti ekki komist af eða rekið bifreið án uppbótarinnar.
Í stað orðanna „við hækkun lífeyris skv. 1.–3. mgr.“ í 4. mgr., sem verði 5. mgr. sömu lagagr., komi: um hækkanir bóta samkv. 1.–4. mgr.
Í stað orðsins „lífeyrishækkunar“ í 5. mgr., sem verður 6. mgr. sömu lagagreinar, komi orðið: lífeyrishækkana, og aftan við mgr. bætist: og uppbóta samkv. 3. og 4. mgr.“
Hér er aðeins, eins og ég sagði áðan, um orðalagsbreytingar að ræða til samræmis við greinina. N. mælir með samþykkt frv. með breytingunni sem flutt er á þskj. 334.