23.04.1980
Neðri deild: 64. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2067 í B-deild Alþingistíðinda. (1942)
161. mál, tilbúningur og verslun með smjörlíki o.fl.
Landbrh. (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Frv. þetta á þskj. 343, um breytingu á lögum nr. 32/1933, um tilbúning og verslun með smjörlíki o. fl., var lagt fyrir 100. löggjafarþingið, en náði þá eigi afgreiðslu. Frv. er endurflutt nú að beiðni Framleiðsluráðs landbúnaðarins og forustumanna Osta- og smjörsölunnar í Reykjavík.
Frv. felur það í sér að feitmeti kallist smjör þótt allt að 25% af heildarfeitimagni vörunnar sé jurtaolía. Þetta er meira magn en í gildandi lögum. Sama gildir um aðrar vörutegundir sem unnar eru úr mjólk eða mjólkurvörum.
Lög um tilbúning og verslun með smjörlíki eru gömul. Þau hafa staðið óbreytt í nærri því hálfa öld. Á þessum tíma hafa orðið miklar breytingar í tækni og geymslu matvæla og ýmsar breytingar á framleiðsluháttum og þjóðfélagsháttum. Á síðari árum hefur orðið mikil breyting á framleiðslu mjólkurafurða, t. a. m. á ostum, þannig að mikil fjölbreytni hefur orðið í framleiðslu þeirra mjólkurafurða og hefur m. a. sýnt sig í því að um ánægjulega söluaukningu hefur orðið að ræða á osti innanlands. Er það raunar eina mjólkurafurðin sem söluaukning hefur orðið á.
Með þessu frv. er opnað fyrir þann möguleika að hægt sé að breyta framleiðslu á smjöri þannig að í það verði bætt sojaolíu, jurtaolíu, þannig að það verði ekki kallað smjörlíki þó magn annars feitmetis en smjörfeiti verði allt að 25%.
Á árunum 1969 og 1970 var hafin framleiðsla á vörum af þessu tagi í Svíþjóð, sem nefnd var „bregott“, og var það gert til að auka á fjölbreytni smjörafurða þar í landi og er talið að það hafi gefið góða raun. Með þessari breytingu heldur smjörið smureiginleikum sínum, þrátt fyrir að það sé geymt í kæliskáp, verður jafnljúft og mjúkt að smyrja með og smjör er við hærra hitastig.
Þetta frv. er lagt fram vegna þess að mér þykir rétt að verða við þeim óskum að rýmkað sé um heimildir til íblöndunarefna í smjör án þess að varan verði kölluð smjörlíki, ef það mætti verða til þess að greiða fyrir og auka sölu á smjörfeiti í landinu, en mikil markaðstregða er á sölu mjólkurafurða, ekki síst smjörs. Það er mikil nauðsyn að auka sölu á þeirri matvörutegund.
Ég tel sjálfsagt að það verði farið varlega í þessar sakir, og að sjálfsögðu verður áfram hið góða gamla og gróna íslenska smjör á boðstólum að meginmagni. En mér þykir rétt að þessi tilraun verði gerð í þeim tilgangi að freista þess að auka söluna á smjörfeiti.
Að svo mæltu leyfi ég mér að óska þess, að frv. þessu verði vísað til 2. umr. og hv. landbn.