23.04.1980
Neðri deild: 64. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2075 í B-deild Alþingistíðinda. (1958)

131. mál, flugvallagjald

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Ég hef ekki lagt það í vana minn að ofgera þessari deild með málæði, en hitt er svo annað mál að ég skal fúslega verða við þeim tilmælum hæstv. forseta að vera stuttorður.

Hér er til umr. frv. til l. um breyt. á lögum um flugvallagjald og menn höfða mjög til réttlætiskenndar manna, og það er eins og þessi mál hafi aldrei verið rædd áður. Það væri kannske fróðlegt að rifja upp hvernig þetta gjald kom til og hvernig stóð á því að það var lagt á á sínum tíma, 1976. Það var einfaldlega lagt á vegna þess að þá var lagður niður söluskattur af flugfargjöldum og í allri angistinni og öllu peningaleysinu, sem hefur hrjáð þjóðfélag okkar og ekki síst ríkissjóð, taldi ríkissjóður og þeir flokkar, sem að ríkisstj. stóðu þá, sér ekki fært að standa svo að málum að þessar tekjur féllu niður með öllu. Ef þessi söluskattur væri enn þá væri gjald á lengstu flugleiðum innanlands einhvers staðar um 11–12 þús. Menn geta séð á því hversu mikil bylting það var þegar söluskattur var lagður niður af flugfargjöldum.

Hitt er svo annað mál, að þeim, sem þurfa að nota flugsamgöngur innanlands og annars staðar, er ekki nóg að hafa einhverjar flugvélar til að flytja þá á milli. Þeim er það líka kappsmál að bærilega sé búið að þeim flugvöllum sem eru úti um land, tryggt sé öryggi þeirra, og ég er þess fullviss að til er og ég þekki margt fólk sem vill leggja nokkuð á sig til þess að svo megi verða.

Það var talað um það strax þegar þetta flugvallagjald var lagt á, að eingöngu bæri að nota það til framkvæmda í flugmálum. Ég er því sammála. Það var ekki gert strax í upphafi, en það hefur nú verið gert. Ég vildi upplýsa þetta, því að það vill svo til í svona málum sem mörgum öðrum að menn gleyma þeim áföngum sem hafa unnist. Þegar söluskatturinn var á flugið lagður var það svo, að eftir því sem menn áttu lengra að þeim mun meira þurftu menn að borga. Aðstöðumunurinn var þá í fyllsta skilningi skattstofn. Ég get tekið undir það, að í mörgum tilvikum er enn svo í þessu þjóðfélagi að aðstöðumunurinn er skattlagður. Við þurfum að reyna að útrýma því. Og ég vænti þess að ýmsir hv. þm., sem hér eru inni, geti hugsað sér það á ýmsum öðrum liðum.

Ástæðan til þess, að ég kom hér upp, var sú umr. sem varð um orku jöfnunargjaldið. Því var haldið fram að það væri algjörlega utan við vísitölu. Þetta er ekki rétt. 1 prósentustig í söluskattshækkun þýðir 0.45% hækkun á kaupgjaldsvísitölu. Og 11/2 stig þýðir það strax að laun í landinu hækka. (Gripið fram í: 0.675.) Þetta eru 0.675, það er alveg rétt sem hæstv. ráðh. segir. Frá því dragast þau áhrif sem kaupgjaldsnefnd reiknar út og voru metin þá um 0.2 stig, sem þýðir að frádrátturinn er 0.2 stig, og ef maður reiknar með því, að launin í landinu séu 550 milljarðar, er frádrátturinn vegna þess um 1100 millj. Þetta eru út af fyrir sig atriði sem löggjafinn reiknar ekki út og kemur ekki til með að reikna út. Það er kaupgjaldsnefnd sem það á að gera. En þessi söluskattsbreyting þýðir þá endanlega að launin hækka í fyrsta áfanga um u. þ. b. 2750 millj. (FrS: Sömu áhrif hefðu komið af niðurskurði.) Það er alveg rétt að sömu áhrif hefðu komið af niðurskurði, en hverjar hafa verið niðurskurðartillögur stjórnarandstöðunnar í þessu máli? Þeir hafa lagt til að skera niður niðurgreiðslur. Það er niðurskurðurinn sem menn prédika hér: niðurgreiðslur. Gagnast ekki niðurgreiðslur almenningi í landinu? Og vita menn að ef niðurgreiðslur lækka um 3000 millj. þýðir það að launin í landinu eiga að hækka um 1% eða 5–6 þús. millj.? Niðurskurðartillögurnar, sem hér hafa verið bornar á borð að undanförnu, eru ekki eins sakleysislegar og lítur út fyrir að vera.

Það má út af fyrir sig segja að öll sú umræða, sem hefur verið að undanförnu um skattamál, hafi því miður ekki verið mjög málefnaleg. T. d. reiknaði Morgunblaðið og sjálfstæðismenn út að skattar hækkuðu um 25 milljarða. Þeir gera það þannig að ganga út frá að skatthlutfall beinna skatta hafi verið 11.6% af brúttótekjum 1978, sem varð endanleg niðurstaða þess árs. Áætluð tala þá var miklu lægri vegna þess að kaupgjaldið hækkaði meira en áætlað var í fyrstu. Okkur hefur ekki tekist á undanförnum árum að gera það sem við ætluðum okkur í verðbólgu. Það er áætlað að skatthlutfallið verði núna 14.2. Þeir hækka það upp í 14.7 og reikna út 25 milljarða. Ef það væri reiknað út frá sömu forsendum, þ. e. áætlaðri tölu nú og áætlaðri tölu þá, munar ekki nema 10 milljörðum.

Það er svo með umræðu af þessu tagi, að okkur gengur illa á hv. Alþ. — og ég ætla þar ekki að undanskilja neinn flokk — að ræða málefnalega. Það eru ýkjur á allar hliðar. Eins var það í grg. Alþfl. í Ed. þegar þeir voru að reikna út skatthækkun á tekjulágu fólki. Það var gengið út frá þeirri forsendu að 10% frádrátturinn, þessi nýi frádráttur, gagnaðist engum. Slík villandi umræða er að sjálfsögðu til skammar. Það er alveg ljóst, að það eru skattahækkanir og hafa verið skattahækkanir, en menn ættu að venja sig á að reyna að reikna þær hækkanir rétt út.