28.04.1980
Sameinað þing: 48. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2081 í B-deild Alþingistíðinda. (1963)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Jón Helgason):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 23. apríl 1980.

Friðjón Þórðarson, 2. þm. Vesturl., hefur í dag ritað mér á þessa leið.

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sinnt þingstörfum um sinn leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varam. Sjálfstfl. í Vesturlandskjördæmi, Valdimar Indriðason framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sverrir Hermannsson,

forseti Nd.

Ég óska eftir því að kjörbréfanefnd taki kjörbréf Valdimars Indriðasonar til athugunar og er fundi frestað á meðan í 5 mínútur. — [Fundarhlé.]