28.04.1980
Sameinað þing: 48. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2083 í B-deild Alþingistíðinda. (1977)

156. mál, samkomulag Íslendinga og Færeyinga til veiða á kolmunna

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Ég er samþykkur því samkomulagi sem hæstv. ríkisstj. hefur gert við Færeyinga um kolmunnaveiðar, en tel að ég geti gefið örlítið nánari upplýsingar til skýringar á tilkomu þess.

Svo er mál með vexti, að Færeyingar hafa í allmörg ár gert við okkur samninga til eins árs í senn, sem fyrst og fremst hafa verið um loðnuveiðar, en einnig um kolmunna. Þess er skemmst að minnast, að fyrir meira en ári kom slíkur samningur til umræðu á Alþingi, og höfðu Færeyingum þá verið veittar 17.5 þús. lestir af loðnu, sem þeir voru að vísu ákaflega óánægðir með. Hafði afli þeirra verið minnkaður frá 25 þús. lestum árið áður.

Nú gerist það í vaxandi mæli að ráðh. og aðrir stjórnmálamenn tala saman í síma og spara sér þannig bæði ferðalög og bréfaskriftir. Að þessu sinni gerðist það í janúar að Atli Dam lögmaður hringdi til mín, en ég sat þá í stjórnarráðinu, til að ræða um loðnuveiðar á þessu ári. Þar sem mikið var deilt um loðnuveiðar okkar sjálfra og niðurskurð þeirra um það leyti, taldi ég vera tilgangslaust fyrir Færeyinga að koma hingað og óska eftir loðnukvóta. Þeir fóru að þessum ráðum og hafa ekki beðið um viðræður eða óskað eftir loðnu að þessu sinni.

Samt sem áður er ástæða til að gera það samkomulag sem nú hefur verið gert um kolmunna, þótt hann hafi að vissu leyti verið aukaatriði í fyrri samningum. Við erum að auka kolmunnasókn okkar, svo það er í okkar hag að hafa heimild til að byrja kolmunnaveiðarnar í landhelgi Færeyinga, færa okkur svo norðar og í eigin landhelgi. Færeyingar kölluðu þá heimild, sem þeir fá til að veiða kolmunna hér, „pappírsfisk“, af því að floti þeirra, sem mundi stunda kolmunnaveiðar, er 4 þeim tíma á makrílsveiðum suður í hafi. Engu að síður var þetta gert til að jafna metin í samningunum.

Ég vil með þessum skýringum lýsa samþykki mínu við nótuskipti til að halda kolmunnaveiðaheimildunum áfram.