28.04.1980
Efri deild: 70. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2102 í B-deild Alþingistíðinda. (1987)

127. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Forseti (Helgi Seljan):

Umræðan skiptist í tvær umferðir, þannig að hver þingflokkur fær til umráða 30 mínútur, 15–20 mín. í þeirri fyrri og 10–15 í þeirri seinni. Röð f(okkanna verður þessi á báðum umferðum: Alþfl., Alþb., Sjálfstfl. og Framsfl. Ræðumenn verða þessir: Af hálfu Alþfl. tala Kjartan Jóhannsson, 2. þm. Reykn., og Karl Steinar Guðnason, 3. landsk. þm., í fyrri umferð og Eiður Guðnason, 5. þm. Vesturl., í síðari umferð. Af hálfu Alþb. tala Ragnar Arnalds fjmrh. í fyrri umferð og Helgi Seljan, 2, þm. Austurl., í síðari umferð. Af hálfu Sjálfstfl. talar Lárus Jónsson, 3. þm. Norðurl. e., í fyrri umferð og Eyjólfur Konráð Jónsson, 5. landsk. þm., í síðari umferð. Af hálfu Framsfl. tala Guðmundur Bjarnason, 5. þm. Norðurl. e., og Tómas Árnason viðskrh. í fyrri umferð og Tómas Árnason viðskrh. í síðari umferð.