28.04.1980
Efri deild: 70. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2102 í B-deild Alþingistíðinda. (1988)

127. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. 3. minni hl. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Góðir tilheyrendur. Þessar útvarpsumræður fara fram að ósk okkar Alþfl.-manna. Óskin var sett fram vegna óbilgjarnra svara frá fjmrh. við ábendingum okkar um að tillögur hans stórhækkuðu skatta á ýmsu lágtekjufólki. Því töldum við rétt að alþjóð fengi að kynnast málatilbúnaði. Mál fóru hins vegar svo, að ríkisstj. guggnaði á því prófi að verja tillögur sínar frammi fyrir alþjóð, bað um frest og grið og hljóp svo frá eigin tillögum, rétt eins og krakki sem fær erfiða spurningu í kennslustund og biður um að fá aðra léttari. Ætli það sé ekki einsdæmi að krafa um að ríkisstj. verji gerðir sínar frammi fyrir alþjóð í útvarpi verði til þess að ríkisstj. guggni á eigin tillögum og semji nýjar? En það segir auðvitað sína sögu um málatilbúnað og vinnubrögð.

Í annan stað eru þessar umræður sérstæðar að því leyti, að hér birtast þriðju tillögur stjórnarliða í sama máli á einum mánuði. Aftur og aftur hefur ríkisstj. séð sig tilneydda að breyta eigin tillögum. Það segir líka sína sögu.

Við umræður um þetta mál fyrir tveim vikum bentum við Alþfl.-menn á að tillögur ríkisstj. þýddu verulega tekjuskattshækkun hjá ýmsu lágtekjufólki, svo sem einhleypum og einstæðum foreldrum með um 3 millj. í brúttótekjur. Fjmrh. svaraði því til, að óþarft væri að tefja sig á umræðum, heldur ætti að hraða afgreiðslu málsins. Hann sagði m. a., að í tillögum sinum væri hvergi um ósanngjarnan mun að ræða á skattlagningu miðað við það sem áður gilti, og tók fram að einstæðir foreldrar hefðu notið sérstakra fríðinda áður, og mátti skilja það sem réttlætismál að hann hækkaði á þeim skattinn. Undir miðnætti á miðvikudagskvöld hafði ráðh. guggnað á þeirri skattpíningu á tekjulágu einstæðu fólki, sem hann taldi alls ekki ósanngjarna daginn áður, og bað um frest. Ríkisstj. reyndi að þyrla því upp, að ósamræmi væri í útreikningum, og kenndi eiginlega Reiknistofnun Háskólans um. Sannleikurinn er hins vegar sá, að þessi skattlagning á einstæðu fólki kom skýrt fram í útreikningum Reiknistofnunar. Í þessu máli er því bara tvennt til: Annaðhvort var bugmyndin að ná fram skattahækkun á þessu lágtekjufólki, en óttinn við að verja hana frammi fyrir alþjóð í útvarpi hrakti stjórnarliða úr vígi sínu, ellegar þá hitt, að ríkisstj. hafði ekki hugmynd um hvað hún var að gera, ráðh. höfðu ekki lesið gögnin frá Reiknistofnun og aldrei gætt að því einu sinni með barnaskólaútreikningi hvernig margir hinna verst settu færu út úr álagningunni.

Nú boðar fjmrh. nýjustu tillögur sínar undir yfirskriftinni: 5.5 milljarða kr. skattalækkun, sérstaklega á barnafjölskyldum og tekjulágu fólki. Áður hafði hann sagt: 1–2 milljarða skattalækkun vegna fyrri tillagna.— Ég held það sé best að hver og einn leiti þessar skattalækkanir ráðh. uppi á skattseðlinum sínum þegar hann kemur. Það skyldi þó ekki koma á daginn líka þá að ráðh. reynist eins og fyrr annaðhvort fara með rangt mál ellegar viti ekki hvað hann er að segja?

Sem betur fer hefur krafa Alþfl. um útvarpsumræður leitt til þess, að nokkur leiðrétting hefur fengist fyrir tekjulágt einhleypt fólk og einstæða foreldra, þótt það hrökkvi reyndar skammt. Að öðru leyti einkennast hins vegar þriðju og nýjustu tillögur fjrn. af enn frekari skattahækkun. Hjá hjónum með tvö börn, sem vinna fyrir rúmum 200 þús. kr. á mánuði hvort, hækkar t. d. tekjuskatturinn um a. m. k. 74 þús. kr. frá því sem áður gilti. Hjá hjónum með þrjú börn og fleiri hækka heildarskattar til ríkis og sveitarfélaga um 5% samkv. þeim útreikningum sem fjmrh. hefur sjálfur dreift, en kannske ekki lesið.

Við Alþfl.-menn höfum talið að draga eigi úr tekjuskattsálögum. Þær tillögur, sem við flytjum nú, eru samskonar og þær sem við kynntum fyrir kosningar — sams konar og fjárlagafrv. ríkisstj. Alþfl. gerði ráð fyrir. Við boðum þessa stefnu jafnt fyrir kosningar sem eftir. Aðrir boða leiftursókn fyrir kosningar, en skera hana svo niður um 2/3 hluta eftir kosningar, eins og stærra brotið af Sjálfstfl. gerir núna. Enn aðrir snúa leiftursókn sinni í leifturflótta. Það gildir um ríkisstjórnarbrot Sjálfstfl., sem boðaði skattalækkun fyrir kosningar, en hækkar svo skattana eftir kosningar. Tillögur okkar Alþfl.-manna hafa allan tímann snúist um 7–8 milljarða niðurskurð á tekjum ríkissjóðs af tekjuskattinum og tilsvarandi lækkun útgjalda.

Við ríkjandi efnahagsástand er aðhalds þörf á öllum sviðum efnahagslífsins. Ríkisstj. getur ekki vænst aðhalds hjá öðrum ef hún gætir þess ekki hjá sjálfri sér. Núv. ríkisstj. heimtar meira og meira í sinn hlut, en krefst þess að allir aðrir aðilar í þjóðfélaginu herði sultarólina. Ríkisstj. boðar 4.5% kjaraskerðingu af völdum verðlagshækkana á árinu. Þá er að okkar dómi fráleitt að skerða kjörin enn frekar með hækkuðum skattaálögum, eins og ríkisstj. boðar. Þvert á móti teljum við Alþfl. menn að einmitt við þessar aðstæður eigi að vernda raunkjör launafólks með því að draga úr skattaálögum til ríkisins. Athyglisvert er að stjórn Verkamannasambands Íslands hefur nú samþykkt stefnumörkun í kjaramálum sem er samhljóða við stefnu Alþfl., þess efnis að skattalækkanir séu nærtækasta úrræðið til þess að vernda kjör launafólks, einkum hinna lægst launuðu.

Við 2. umr. um skattstigann var af hálfu Alþfl. flutt till. sem þýddi 7.5 milljarða lækkun á tekjum ríkisins. Sú till. var felld, enda stjórnarliðar þá ólmir að samþ. með handauppréttingu þá skattlagningarformúlu sem þeir nú hafa hlaupið frá. Enn viljum við Alþfl.-menn freista þess að ná fram stefnubreytingu. Fyrirliggjandi till. okkar ganga eilítið skemmra en fyrri till. og hafa í för með sér um 7 milljarða lækkun á tekjum ríkisins. Till. okkar Alþfl.-manna gera ráð fyrir að skattprósentur verði 16, 32 og 48% í stað 25, 35 og 50% samkv. till. stjórnarliða. Af fyrstu 2.5 millj. greiðist 16% samkv. okkar till., af næstu 3.5 millj. 32% og loks 48% af því sem er umfram 6 millj. í tekjuskattstofni. Einhleypt fólk yrði þá tekjuskattslaust ef tekjur þess væru innan við 2 millj. 865 þús. kr. Á sama háu yrði enginn tekjuskattur hjá barnlausum hjónum með allt að 4.4 millj. í árstekjur, ef annar aðilinn vinnur fyrir öllum tekjunum, svo dæmi séu nefnd.

Skattastefna ríkisstj. er röng. Sama gildir því miður líka í ýmsum öðrum málum. Fráhvarf ríkisstj. frá raunvaxtastefnu hefur þegar dregið úr sparnaði og útlánagetu bankanna. Sjútvrh. Steingrímur Hermannsson kvartar nú sáran undan þessu þótt það sé afleiðing hans eigin gerða og félaga hans og var alltaf borðleggjandi, eins og við Alþfl.-menn bentum á.

Annars er það einkennandi fyrir Framsfl. að segja eitt, en gera annað. Þar gildir já, já og nei, nei. Fyrst samþykkti Framsfl. efnahagslög um raunvexti og verðtryggingu fyrir ári. Svo þegar núv. ríkisstj. var mynduð afneitaði Framsfl. þeirri stefnu og brýtur lögin sem hann stóð að. Og nú síðast þessa dagana segir svo sjútvrh. og formaður Framsfl. að það verði að stefna að þeim raunvöxtum og þeirri verðtryggingu sem hann og flokkur hans afneitaði í framkvæmd fyrir tveim mánuðum. Þetta er að segja já, já, en framkvæma nei, nei.

Niðurtalning verðbólgunnar er nú orðin að upptalningu hennar. Í uppgjöf sinni grípa stjórnarsinnar nú til þess lítilmannlega athæfis að kenna ríkisstj. Alþfl. um eigin ófarir. Þeir halda því fram að ríkisstj. Alþfl. hafi ekki afgreitt verðhækkanabeiðnir. Þetta eru ósannindi. Það lágu engir haugar óafgreiddir þegar ríkisstj. Alþfl. skilaði af sér. Alþfl.-stjórnin afgreiddi þessi mál og hún gerði það með samræmdum hætti og þannig að verðbreytingar svöruðu til ekki meira en um 35% hækkunar á ári. Ríkisforstjórar og aðrir fengu ekki óskalista sína samþykkta. Þeir urðu að hlíta aðhaldi. Þetta var eðlilegt upphaf niðurtalningar. Án slíks aðhalds verður aldrei nein niðurtalning.

Ríkisstj. Alþfl. framkvæmdi þannig niðurtalningu eins og Framsfl, boðaði fyrir kosningar. Nú vill ríkisstj. með Framsfl. í broddi fylkingar hins vegar ómögulega framkvæma niðurtalninguna og segist endilega þurfa að hleypa fram hjá. Framsfl. æjar og óar og segir: „Nei, ekki núna“ — við því sem hann boðaði svo hástemmt fyrir kosningar.

Sannleikurinn er auðvitað sá, að niðurtalningin er erfið og kemur við marga, svo sem ríkisforstjóra, SÍS og atvinnurekendur ýmsa. Núv. ríkisstj. hefur hins vegar ekki þrek til að taka á sig þessi óþægindi. Hún lætur bara undan. Og þá verður heldur engin niðurtalning. Og kórónan á sköpunarverkið hjá framsóknarmönnum er svo að ásaka ríkisstj. Alþfl. fyrir að framkvæma það sem þeir framsóknarmenn sögðust vilja gera, en treysta sér ekki til. Hér er þannig ekki bara um það að ræða að Framsfl. segi já, já við niðurtalningu, en nei, nei við því að framkvæma hana, heldur agnúast framsóknarmenn út í að Alþfl. skyldi framkvæma það sem þeir framsóknarmenn boðuðu.

Nýjasta kenningin hjá stjórnarliðum er að verðbólgan verði of mikil hjá þeim núna af því hún hafi verið of lítil í stjórnartíð Alþfl. Samkvæmt þessari kenningu er verðbólga á hverjum tíma því að kenna að verðbólgan hafi verið of lítil einhvern tíma áður. Ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar getur þá t. d. kennt vinstri stjórn þeirra Ólafs og Lúðvíks um, hin mikla verðbólga hjá ríkisstj. Geirs á árunum 1974–1978 hafi verið vegna of lítillar verðbólgu hjá Ólafi og Lúðvík 1971–73. Svona kenning stenst auðvitað ekki vegna þess að verðbólga fæðir af sér verðbólgu, en ekki öfugt, eins og stjórnarliðar halda fram.

Sannleikurinn er sá, að með alhliða aðhaldsaðgerðum hafði Alþfl.-stjórnin náð þó nokkrum árangri í verðbólgumálum og búið þannig í haginn fyrir frekari árangur. Þetta gat núv. ríkisstj. notfært sér ef hún hefði haft þrek til. En í þessu máli, eins og í vaxtamálunum, rann ríkisstj. af hólmi og valdi undanlátssemina. Hefur þessum herrum virkilega dottið í hug og ætlast þeir til að fólk trúi því að það verði auðveldara að hefja niðurtalninguna þegar búið er fyrst að skrúfa verðbólguna upp og skapa þannig verðbólgutilefni til enn frekari verðhækkana? Það er svona álíka gáfulegt og að telja að auðveldara sé að stöðva snjóbolta neðar í brekkunni, þegar hann er á meiri ferð og hefur hlaðið meira utan á sig.

Herra forseti. Auðvitað er það svo, að þessi stefna ríkisstj. er röng alveg eins og í skattamálum. En það er líka alvarlegt áhyggjuefni að menn segi já, já, en framkvæmi nei, nei. Og ömurlegt þykir mér hjá ríkisstj. að kenna öðrum um eigin ófarir, ekki síst þegar staðreyndirnar sanna hið gagnstæða. Það er slík framkoma sem hefur verið og er mikill ljóður á íslenskum stjórnmálum. — Góðar stundir.