28.04.1980
Efri deild: 70. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2124 í B-deild Alþingistíðinda. (1994)

127. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Góðir tilheyrendur. Það er alveg hárrétt sem viðskrh. Tómas Árnason sagði áðan í upphafi ræðu sinnar, að störf ríkisstj. að undanförnu hafa verið með óvenjulegum og afbrigðilegum hætti. Þetta eru sannarlega orð að sönnu. Ferill þessarar ríkisstj., þótt stuttur sé, er með alveg sérstökum endemum og kem ég nánar að því síðar. — Hann talaði líka sem svo, að allur sá vandi, sem nú væri við að etja, væri geymdur vandi frá ríkisstj. Alþfl. Um þetta fór hann mörgum orðum. Það hefur hins vegar komið rækilega fram í þessum umr. að þær verðhækkunarbeiðnir, sem bárust ríkisstj. Alþfl. á sínum tíma, voru afgreiddar. Þær voru afgreiddar þannig, að það fengu ekki allir allt sem þeir vildu, eins og nú virðist stefna ríkisstj. Þessar verðhækkunarbeiðnir opinberra fyrirtækja voru afgreiddar með samræmdum hætti, eins og hér hefur þegar verið gerð grein fyrir.

Tómas Árnason las okkur líka ályktun þeirra framsóknarmanna um efnahagsmál, sem samþ. var á fundi einhvers staðar úti í bæ nú um helgina. Það er gott og blessað og það er ýmislegt þar sem sjálfsagt er hægt að taka undir. En það er bara þannig með Framsfl., að í ríkisstj. gerir hann allt annað en hann ályktar um úti í bæ, og þetta hefur verið einkenni á þeim flokki um býsna langa hríð.

Af hálfu Alþfl. hefur þegar verið gerð grein fyrir brtt. við það frv., sem hér er til umr., en þær eru í anda þeirrar stefnu sem Alþfl, boðaði fyrir kosningar, boðaði í fjárlagafrv. sínu og boðar enn, að lækka tekjuskatt, að afnema tekjuskatt af almennum launatekjum í áföngum á tveimur árum. Okkar tillögur eru mjög í anda þeirra tillagna sem Verkamannasamband Íslands hefur lýst stuðningi við. Þær brtt., sem Alþfl. flutti þegar þetta mál var til 2. umr., urðu til þess að ríkisstj. heyktist að nokkru á hækkunaráformum sínum.

Í þessum fyrstu útvarpsumr. um stefnu núv. ríkisstj. og þá einkum og sér í lagi stefnu hennar í skattamálum fer ekki hjá því, að menn leiði hugann að því hvernig þessi ríkisstj. öðlaðist líf. Þá segja sjálfsagt margir sem svo: Jú, hún kom til eftir óvenjulegar kosningar á óvenjulegum árstíma eftir óvenjulega langa stjórnarkreppu. Þá kom hinn aldni stjórnmálasnillingur og hjó á Gordíonshnútinn. — Þetta er með nokkrum hætti rétt — og þó. Þetta er stjórn tveggja flokka og flokksbrots. Er þetta ekki stjórn sem byggð er á sameiginlegri afstöðu þessara þriggja aðila til grundvallaratriða í þjóðmálum? Er þetta ekki stjórn sem byggð er á sameiginlegri afstöðu til utanríkismála? Er þetta ekki stjórn sem byggð er á gagnkvæmu trausti, gagnkvæmum skilningi og trúnaði þessara þriggja aðila? Svari nú hver fyrir sig.

Sé grannt skoðað er þessum þremur aðilum, sem að núv. ríkisstj. standa, aðeins eitt sameiginlegt. Allir aðhyllast þeir stefnu Framsfl. í landbúnaðarmálum: að halda áfram þeim vítahring vitleysunnar sem þar hefur skapast þannig að því betur sem árar, því meira sem framleitt er, þeim mun þyngri byrðar eru lagðar á skattþegnana vegna landbúnaðarins. Og fjmrh. lét að því liggja hér áðan að það væru sérstakar árásir á bændur þegar Alþfl. gerði tillögur um að breyta þessu kerfi, að komast út úr þessum vítahring vitleysunnar. Þetta er alrangt. Það væri bændum og þjóðinni fyrir bestu ef við kæmumst út úr því ófremdarástandi sem við búum nú við í þessum efnum.

En á hverju byggist þessi ríkisstj.? Af hálfu Alþb. og Framsóknar byggist hún á þeirri meginstaðreynd, að þessum tveimur flokkum tókst að kljúfa Sjálfstfl. Af hálfu þeirra sjálfstæðismanna, sem að þessari ríkisstj. standa, verður ekki annað séð en að stjórnarmyndunin byggist á valdastólunum einum. Þetta er hinn raunverulegi grundvöllur stjórnarsamstarfsins.

Í kosningabaráttunni í nóvember var það höfuðmarkmið allra flokka að ráðast gegn verðbólgunni. Sumir vildu gera það með leiftursókn, aðrir eftir norsku leiðinni svonefndu, en Alþfl. vildi og vill ráðast gegn verðbólgunni með skipulegu aðhaldi í rekstri ríkisins, skynsamlegri stefnu í ríkisfjármálum jafnframt því að standa vörð um kaupmátt lægstu launa.

Í stjórnarsáttmála núv. ríkisstj. er talað um niðurtalningarleið. Enn sem komið er hefur forsrh. og lið hans ekki sýnt að þeir kunni að telja í aðra átt en upp. Það hefur allt hækkað. Það veit almenningur allra best. Heimild til útsvarsálagningar var hækkuð, söluskattur hækkaður, tekjuskattur skal hækka, nema að vísu skattar á fyrirtækjum. Samkv. hinni nýju skattastefnu Alþb. eiga skattar á fyrirtækjum að lækka, og hefði einhverjum þótt ótrúlegt fyrir ári að heyra Ragnar Arnalds, núv. fjmrh., mæla fyrir slíkri stefnu hér í sölum Alþingis. Engu að síður er þetta nú óhagganleg staðreynd.

Þessi stjórn telur ekki niður, hún telur upp og hún eykur stöðugt þær byrðar sem almenningi er ætlað að bera. Það vottar hvergi fyrir því að gæta eigi aðhalds og sparnaðar, heldur er stjórnarstefnan eitt samfellt efnahagslegt sullumbull. Alþýðubandalagslúðvískan ræður ferðinni um efnahagsstefnuna. Þetta eru staðreyndirnar sem blasa við þeim sem fögnuðu myndun þessarar stjórnar hinn 8. febr. s. l. Og vist er það rétt, að ýmsir voru þeir sem fögnuðu því að þessi stjórn skyldi mynduð.

Ragnar Arnalds fjmrh. sagði áðan að þjóðarskútan þyrfti að komast á lygnari sjó. Þessi stjórn hafði beggja skauta byr fyrstu vikurnar, en nú er það breytt. Nú hefur slegið í bakseglið, það gefur á og skipshöfnin ber það ekki einu sinni við að munda austurstrog, heldur horfir hún á ráðvillt og ráðþrota, en í skutnum situr sjálfur formaðurinn og heldur að sér höndum. Sálarskip þessarar ríkisstj. fer nú heldur betur hallt á hlið, og það sem verra er: það hrekur til skaðsemdanna, eins og segir í vísunni.

Það er talað um það þessa dagana, og það er raunar ekki ný bóla, að stjórnmálamenn hafi glatað tiltrú almennings. Eigum við að líta aðeins á hvernig þessum sæmdarmönnum, sem nú verma ráðherrastólana, tíu talsins, hefur tekist að halda tiltrú almennings, hvernig þeir hafa staðið við þau loforð sem þeir gáfu ýmist fyrir fáum vikum eða fáum mánuðum? Bara örfá dæmi. Það er af nógu að taka.

Nokkrum dögum fyrir kosningar skrifaði Gunnar Thoroddsen, núv. forsrh., grein í Morgunblaðið undir fyrirsögninni: „Þak á fjárlögum leiðir til lækkunar.“ — Takið eftir: „leiðir til lækkunar“. — Þar segir orðrétt: „Það er ekki lengur hægt að hækka skatta. Þeir eru þegar orðnir allt of háir.“ Þetta sagði forsrh. Gunnar Thoroddsen í nóvember, en þá var hann líka í framboði fyrir Sjálfstfl. sem ætlaði sér að afnema alla skatta vinstri stjórnarinnar. Samtals ætlaði núv. forsrh. sér að afnema skatta sem námu 19.9 milljörðum kr. En hvað hefur hæstv. forsrh., oddviti ríkisstj., verið að gera að undanförnu? Það veit þjóðin öll.

10. febr. s. l. var viðtal við fjmrh. Ragnar Arnalds í sjónvarpi. Fréttamaður spurði: Getur þjóðin fengið yfirlýsingu frá nýjum fjmrh. um að skattar verði ekki hækkaðir eða nýir skattar lagðir á? Og fjmrh. sagði orðrétt í svari sínu: „Ég verð var við það í fjölmiðlum núna seinustu daga að stjórnarandstaðan er að sjálfsögðu farin að hræða fólk á því að nú hafi tekið við völdum miklir skattpíningarmeistarar. Ég held,“ sagði Ragnar Arnalds, „að það sé nú kannske nokkuð snemmt að fullyrða slíkt, og þess vegna svara ég þeirri spurningu neitandi að það sé ætlunin að leggja aukna skattbyrði á almenning í landinu.“

En hvað hefur fjmrh. Ragnar Arnalds verið að gera undanfarna daga? Hann hefur mælt fyrir hverju skattahækkunarfrv. á fætur öðru hér í sölum Alþingis, milli þess sem hann hefur fullvissað launþega landsins, eins og hann gerði í ræðu sinni áðan, um að nú væri enginn grundvöllur til grunnkaupshækkana.

Föstudaginn 29. febr. svaraði Gunnar Thoroddsen forsrh. spurningum lensenda dagblaðsins Vísis, og þann dag birti blaðið fimm dálka fyrirsögn yfir þvera forsíðu. Þar segir orðrétt: „Hvorki gengisfelling né hratt sig að svo stöddu.“ Og síðan segir: „Gunnar Thoroddsen forsrh. sagði á beinni línu Vísis í gærkvöld að hvorki yrði um að ræða gengisfellingu né hratt gengissig að svo stöddu, er hann var spurður um gengismál í framhaldi af umræðum um þau síðustu daga.“

Þetta var 29. febrúar. Tveimur dögum síðar var aftur fimm dálka fyrirsögn í dagblaðinu Vísi: „Engin gengisfelling, segir Tómas Árnason viðskrh.“ Og nú les ég aftur orðrétt: „Það verður engin gengisfelling, sagði Tómas Árnason þegar Vísir ræddi við hann í morgun, en ríkisstj. fjallaði einmitt um gengismálin á fundum sínum um helgina.“ En hvað gerðist svo? Prentsvertan á þessu blaði var varla orðin þurr þegar landsmenn fengu það yfir sig í hádegisútvarpi að gengið hefði verið fellt.

Þetta er bara enn eitt dæmið um það, hvernig framsóknarmenn tala eitt og gera annað.

Eigum við að taka fleiri dæmi? Það er af nógu að taka. Í sjónvarpsþætti daginn sem stjórnin var mynduð var Steingrímur Hermannsson spurður um hvernig ætti að afla peninga til að gera allt hið góða sem frá segir í málefnasamningi ríkisstj. Á að hækka skatta? spurði fréttamaður. Þá svaraði Steingrímur Hermannsson orðrétt: „Nei, það er ekki meiningin. Það hefur verið á okkar stefnuskrá að hækka ekki skatta. Við teljum ekki svigrúm til þess.“ — En hvað hefur Steingrímur Hermannsson verið að gera síðan?

Nú geta hlustendur um það dæmt hvernig saman hafa farið orð og efndir hjá þeim ágætu mönnum sem nú stjórna landinu. Þeir hafa hækkað útsvörin, sem koma verst við láglaunafólkið. Þeir eru að hækka tekjuskatt og þeir hafa ekki fellt niður einn einasta skatt.

Við afgreiðslu fjárlaga lagði Alþfl. fram ítarlegar tillögur um lækkun tekjuskatta á almennar launatekjur. Alþfl. lagði fram tillögur um að verja 4 milljörðum kr. til jöfnunar hitunarkostnaðar, en á því sviði hefur viðgengist eitthvert hróplegasta ranglæti og misrétti sem dæmi eru um í okkar þjóðfélagi, þar sem þeir, er verða að kynda hús sín með olíu, verða að greiða margfaldan hitunarkostnað á við þá sem njóta ódýrustu hitaveitu. Þessa fjár, rúmlega 7 milljarða til að lækka tekjuskatta og 4 milljarða til jöfnunar hitunarkostnaðar, átti að afla innan ramma fjárlaganna með því að lækka nokkuð framlög til ýmissa liða, m. a. til Lánasjóðs námsmanna og til ýmissa landbúnaðarliða. Við bentum á að það væri óeðlilegt að framlög til Lánasjóðs hækkuðu um 141% á ári, það væri út úr hlutföllum við allt annað í frv., það ætti að reka þennan sjóð eins og raunverulegan lánasjóð og þar ættu menn að borga til baka jafnstórar krónur og þeir fengju að láni. Það er rangt og það er útúrsnúningur og illgirni — svo ég noti sömu orð og ráðh. fjármála notaði hér áðan — að segja að við höfum með þessu sérstaklega verið að ráðast að námsmönnum. Við bentum á að þetta ætti að vera raunverulegar lánasjóður. En allar tillögur Alþfl. felldi stjórnarliðið. Þær voru felldar þrátt fyrir loforð og skattar hafa verið hækkaðir og eru enn að hækka þrátt fyrir öll loforð.

En var það þetta sem almenningur var að fagna þegar þessi ríkisstj. var mynduð? Ég held ekki. Lúðvískan og ábyrgðarleysi Alþb. ráða nú stjórnarstefnunni. Hjá Framsfl. ber hæst eins, og venjulega sinnuleysið og hentistefnuna: já, já, nei; nei. En um Sjálfstfl.: er raunar það helst að segja, að hann er heillum horfinn, ef ekki öllum horfinn, og það sem meira er, að það virðist enginn sakna hans.

Þessi ríkisstj. ætlar ekki að efna þau loforð sem hún gaf þjóðinni í febrúar. Mörg þeirra hefur hún þegar svikið. Þessi ríkisstj. ætlar ekki að ráðast gegn verðbólgunni, til þess ræður Alþb. allt of miklu um stjórnarstefnuna. Þessi ríkisstj. ætlar ekki að takast á við vandann í landbúnaðarmálum. Hún gerir það ekki vegna þess að í henni sitja framsóknarmenn úr þremur flokkum. Það, sem þó skiptir mestu máli, er að myndun þessarar ríkisstj. bar að með þeim hætti, að hvorki verður það kennt við heilindin né drengskapinn sem sumir töluðu hvað mest um fyrir kosningar. Það er sú staðreynd sem ræður stefnu hennar og gjörðum, því miður. Þessi ríkisstj., þótt ung sé, hefur þegar dæmt sig sjálf. Hún er að hnýta eigin hengingaról, en dóm kjósenda hlýtur hún að verðleikum þegar þar að kemur. — Þökk fyrir áheyrnina. Góða nótt.