29.04.1980
Sameinað þing: 50. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2143 í B-deild Alþingistíðinda. (2006)
Umræður utan dagskrár
Sigurlaug Bjarnadóttir:
Herra forseti. Tilefni þess, að ég kveð mér hér hljóðs utan dagskrár, eru mótmæli 46 íslenskra rithöfunda gegn nýafstaðinni úthlutun starfslauna úr Launasjóði rithöfunda. Þessi mótmæli hafa að vonum vakið mikla athygli. Ég vil í upphafi leyfa mér að lesa hér upp yfirlýsingu þá sem rithöfundarnir 46 rituðu nöfn sín undir, en hún hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Við undirritaðir félagar í Rithöfundasambandi Íslands mótmælum því gerræði stjórnar Launasjóðs rithöfunda að úthluta hæstu starfslaunum eftir flokkspólitísku sjónarmiði. Þetta hefur stjórn Launasjóðs nú gert annað árið í röð. Sama gildir að mestu um næsthæstu starfslaun. Fyrirmynd slíkrar ráðsmennsku um listræn málefni verður ekki fundin nema hjá þjóðum, sem búa við illræmt stjórnarfar, og þjónar þeim tilgangi einum að vísa þeim frá ritstörfum sem hafa aðrar stjórnmálaskoðanir. Fyrir því krefjumst við þess að núv. stjórn Launasjóðs rithöfunda víki nú þegar og að ráðgast verði innan Rithöfundasambandsins um nýja stjórn Launasjóðs. Fyrsta lagagrein Rithöfundasambands Íslands hljóðar svo:
„Rithöfundasamband Íslands er styrktarfélag rithöfunda.“ Sambandið er því ekki flokkspólitískt. Lög Rithöfundasambands Íslands ber að halda meðan það er við lýði.“
Undir þetta skrifa, eins og áður segir, 46 rithöfundar. Það er augljóst mál, þegar nær fjórðungur félaga í Rithöfundasambandi Íslands sér ástæðu til slíkra aðgerða, að þá hefur eitthvað farið aflaga. Hér eru bornar fram svo alvarlegar ásakanir á hendur mönnum í vandasömu trúnaðarstarfi, í stjórn Launasjóðs rithöfunda, sem ákvarða árlega skiptingu starfslaunanna, að Alþ. ber, að ég tel, skylda til að láta málið til sín taka þegar eftir er leitað, enda er hér um að ræða ráðstöfun á almannafé, fjárveitingu úr ríkissjóði á fjárlögum hvers árs til Launasjóðsins. Í ár nemur upphæðin 114 millj. kr.
Til Launasjóðs rithöfunda var stofnað fyrir 5 árum með lögum frá Alþ. og veitt úr honum í fyrsta skipti árið 1976. Daginn eftir að þessi lög voru samþ., í maí 1975, kom til umræðu á Alþingi fsp. til þáv. menntmrh., Vilhjálms Hjálmarssonar, vegna andmæla 16 rithöfunda sem töldu sig hafa verið órétti beitta við úthlutun svokallaðra viðbótarritlauna sem úthlutað var í fáein ár áður en Launasjóðurinn hafði tekið til starfa. Rithöfundarnir kröfðust endurmats á úthlutuninni og fengu um síðir leiðréttingu sinna mála, að ég hygg fyrir atbeina Alþingis og viðkomandi ráðh., þótt svör hans á þingi við umræddri fsp. gæfu ekki mikil fyrirheit.
Ég vil leyfa mér — með leyfi forseta — að vitna hér í kafla úr svari fyrrv. menntmrh., Vilhjálms Hjálmarssonar, í umr. um þessa fsp., en þar sagði hann m. a., og svaraði þá málaleitan um að endurmetin yrði úthlutun þessara viðbótarritlauna:
„Ráðuneytið hefur ekki ákveðið að láta fara fram endurmat á þessari tilgreindu úthlutun. Hins vegar hefur rn. skipað n. til að gera úttekt á stöðu lista og listafólks í þjóðfélaginu. Mun sú n. ljúka störfum innan eins árs. Hlutverk þessarar n. er m. a. að leitast við að gera sér grein fyrir því hvort listin, listafólkið og starfsemi þess njóti nú eðlilegrar hlutdeildar í þjóðartekjum, hvort skipt sé með eðlilegum hætti á milli hinna ýmsu listgreina, og jafnframt að gera sér grein fyrir, hvort eðlilega hafi verið staðið að úthlutun þeirra fjármuna sem bundnir eru einstókum mönnum. Það er ekki ætlunin að þessi n. geri till. um úrbætur. Þetta er könnunarnefnd og hún mun skila sínum niðurstöðum til menntmrh., sem seinna mun beita sér fyrir því í samráði við listafólkið í landinu að fram fari athugun og tillögugerð um hugsanlegar úrbætur á þessu sviði.“
Og menntmrh. heldur enn áfram um þessa leiðréttingu sem fram á var farið, með leyfi forseta:
„Þetta viljum við gera með því að leita réttlætis almennt í úthlutunum, en alveg sérstaklega með því að setja ljós ákvæði í væntanlega reglugerð“ — þá á hann við Launasjóðinn nýstofnaðan. — „Svo er það auðvitað á valdi okkar allra þm. sem og annarra borgara að veita almennt og öflugt aðhald þeim er starfa að úthlutun listamannalauna hverju sinni.“
Þessi tilvitnuðu ummæli fyrrv. hæstv. menntmrh., Vilhjálms Hjálmarssonar, á Alþingi gefa beint tilefni til að beina þeirri spurningu til núv. hæstv. menntmrh., Ingvars Gíslasonar, hvað hafi orðið um þessa n. sem menntmrn. skipaði fyrir 5 árum, hvernig hún hefur starfað og hver hafi orðið árangurinn af störfum hennar og hvort hugsanlega mætti nýta niðurstöður hennar til leiðréttingar á þessum vandamálum íslenskra rithöfunda eins og þau liggja fyrir nú.
Að því er varðar tilvitnuð ummæli ráðh. fyrrv. um ljós ákvæði í væntanlegri reglugerð með lögum um Launasjóðinn, sem nú er um deilt, þá erum við þar komin að einu af meginatriðum þessa deilumáls rithöfunda nú. Þessi reglugerð, er samin var með lögunum, er að mati þeirra rithöfunda, sem nú andmæla, allt of óljós og þyrfti nauðsynlega endurskoðunar og breytinga við.
Spurningin, sem við alþm. stöndum frammi fyrir nú, er hvernig Alþ. geti brugðist við í þessu máli. Ég ítreka það sem ég sagði í upphafi, að Alþ. geti ekki leitt það hjá sér þegar fram kemur svo ákveðin ásökun frá fjölmennum hópi íslenskra rithöfunda á hendur einum ákveðnum stjórnmálaflokki, Alþb., að fulltrúar hans í samtökum rithöfunda beiti gerræðisfullum aðgerðum eftir flokkspólitískum sjónarmiðum til að útiloka og lítilsvirða með ítrekuðum hætti þann hóp starfsbræðra sinna sem ekki aðhyllist þeim þóknanlegar stjórnmálaskoðanir. Slíkt er með öllu óviðunandi og stórskaðlegt menningarlífi okkar, tjáningarfrelsi og almennu lýðræði í landinu.
Ég vil vísa til viðtala í Morgunblaðinu í dag við tvo af hinum 46 andmælendum, þá Ingimar Erlend Sigurðsson og Baldur Óskarsson, og einnig við stjórnarformann Launasjóðs rithöfunda, prófessor Svein Skorra Höskuldsson, og formann Rithöfundasambands Íslands, Njörð P. Njarðvík. Hjá Ingimar Erlendi kemur það fram, sem er eitt helsta gagnrýnisefnið, að í efsta launaflokknum, sem fær 9 mánaða starfslaun, eru bæði í ár og í fyrra einvörðungu rithöfundar sem eru utan í eða innan í, eins og hann kemst að orði, einum ákveðnum stjórnmálaflokki, þ. e. Alþb. Í næsthæsta flokknum, með 6 mánaða starfslaun, eru aðeins fjórir af tólf sem ekki eru hallir undir þann sama flokk. Bent er á að tveir efstu launaflokkarnir séu þeir sem raunverulega skipti máli sem alvörustarfslaun, þess vegna varði miklu að sanngirni og óhlutdrægni sé beitt við úthlutun í þessum flokkum.
Ég hef líka heyrt á það minnst, að hlutur ungra rithöfunda sé við nýlega úthlutun mjög fyrir borð borinn. Þeir eru teljandi á fingrum annarrar handar, að ég hygg, ungir rithöfundar sem hafa hlotið nokkur laun úr Launasjóðnum nú. Mér persónulega er kunnugt um einn ungan og efnilegan rithöfund sem hefur gefið út þrjár bækur, tvær ljóðabækur og eina skáldsögu. Hann hefur sótt tvisvar um laun úr Launasjóðnum og tvisvar hefur hann fengið synjun. Hann hafði gert fastlega ráð fyrir því með tilliti til reglna sjóðsins, að hann fengi veitt úr honum í sumar, og gert sínar starfsráðagerðir samkvæmt því, en þær hrynja nú að sjálfsögðu allar til grunna.
Ingimar Erlendur Sigurðsson leggur áherslu á að nauðsynlegt sé að endurskoða reglugerðina, sem stjórn Launasjóðsins starfar eftir, og bendir jafnframt á að nefnd sú, sem skipuð var á aðalfundi Rithöfundasambandsins s. l. laugardag, sé aðeins málamyndanefnd, til þess skipuð að svæfa málið, hún eigi ekki að skila áliti fyrr en á næsta aðalfundi sambandsins eftir u. þ. b. eitt ár, en fyrir næstu áramót muni hins vegar núverandi stjórn sambandsins, flestir þar með réttum pólitískum lít, skipa stjórn Launasjóðsins eftir að þriggja ára starfstíma núverandi stjórnar lýkur. Menn óttast af fyrri biturri reynslu að nýja stjórnin, sem falin verður ráðsmennska með starfslaunin næstu þrjú árin, verði með sama markinu brennd og sú fyrri.
Baldur Óskarsson, annar rithöfundur sem viðtal er við í Morgunblaðinu í dag, segir í tilvitnuðu viðtali að aðrir andmælendur leggi sérstaklega áherslu á, andstætt því sem Njörður P. Njarðvík leyfir sér að staðhæfa í sama viðtali í dag, að mótmæli hinna 46 rithöfunda séu ekki persónuleg árás á þá rithöfunda, sem skipað er í efstu launaflokkana. Hann segir að með því að halda því fram sé ekki um annað að ræða en útúrsnúninga sem ekki séu svaraverðir.
Það eru allir sammála um að þeir rithöfundar, sem hæstu launin hafa hlotið nú, eru alls góðs maklegir. En það er réttilega bent á að það eru til fleiri rithöfundar sem hefðu verið jafnmaklegir.
Viðbrögð einstakra manna við þessum mótmælum rithöfunda nú eru í þá átt, að við þessu sé svo sem ekkert að gera, rithöfundar sem og aðrir listamenn þurfi hvort eð er alltaf að rífast út af öllu. Því er til að svara, svo sem mótmælendur hafa bent á, að í tíð fyrstu stjórnar Launasjóðsins, sem úthlutaði starfslaunum á árunum 1976–78, varð aldrei neinn ágreiningur eða óánægja, þar var ekki starfað eftir pólitískum línum, heldur reynt að viðhafa heiðarleik í vinnubrögðum, sanngirni og víðsýni í því vandasama starfi sem nefndinni er falið.
Í þessari fyrstu nefnd áttu sæti Guðrún P. Helgadóttir, Bjarni Vilhjálmsson og Vésteinn Ólason. Í núverandi stjórn sjóðsins eiga sæti Sveinn Skorri Höskuldsson, Fríða Sigurðardóttir og Björn Teitsson.
Nú hefur það jafnan verið talið heldur ógeðfellt að ákvörðunaraðilar um málefni listamanna væru valdir eftir flokkspólitískri tilnefningu, og víst væri það betra og í alla staði menningarlegra að slíkir fulltrúar veldust til þeirra trúnaðarstarfa eftir þeim kostum sem hvað nauðsynlegastir eru í þessu tilliti. Ég á við eiginleika eins og trausta menntun, hlutlægni, víðsýni og einlægan vilja til að bregðast ekki trúnaði við þá listamenn sem óneitanlega eiga mikið undir störfum þessara manna komið. En reynslan í þessum málum hefur því miður verið með þeim hætti, að eðlilegt virðist að álykta að illskásta leiðin sé, a. m. k. þegar um er að ræða úthlutun fjár sem veitt er af Alþ. til listamanna, að stjórnmálaflokkarnir tilnefni menn til að annast þá úthlutun, einfaldlega til að tryggja skaplegt jafnvægi, fyrirbyggja pólitíska valdníðslu. Pólitísk misbeiting valds er ávallt og alls staðar hvimleið, en enga klæðir slíkt athæfi jafnilla og þá menn sem kenna sig við listir og menningu.
Það er raunar sú lausn, sem hér var imprað á um pólitískt skipaða nefnd, sem rithöfundar í hópi hinna 46 andmælenda nú benda á sem þrautalendingu eftir það sem á undan er gengið.
Bent skal á í þessu sambandi, að í stjórn Rithöfundasjóðs Íslands sitja tveir menn úr hópi rithöfunda og einn tilnefndur af menntmrn. Vel mætti hugsa sér að sama skipan væri á höfð um skipan stjórnar Launasjóðsins sem styrinn stendur um nú.
Þetta mál verður að taka upp hér á Alþ. til að afstýra áframhaldandi árekstrum af þessu tagi í framtíðinni. Ég vænti þess, að núv. hæstv. menntmrh. láti málið til sín taka svo sem vera ber.
Það væri og fyllilega eðlilegt, að borin væri fram hér á Alþ. fsp. til menntmrh., sem hann svaraði skriflega, um það, hvaða umsóknum hefði verið synjað í ár um starfslaun, en upplýst er að af 144 umsóknum var 64 synjað, 80 hlutu náð fyrir augum sjóðsstjórnar. Því mun vafalaust verða til svarað, að hér sé um allt of viðkvæmt mál að ræða og rithöfundum, sem synjað var nú, væri lítil þökk í slíku tiltæki. En því má þá svara á móti, að starfslaun úr Launasjóði skoðast ekki sem verðlaun eða viðurkenning svipað og hin hefðbundnu listamannalaun. Þau eru fyrst og fremst veitt út á ákveðin verk sem höfundar eru að vinna að eða hyggjast vinna að um ákveðinn tíma.
Á s. l. ári var þess farið á leit að stjórn Launasjóðsins mætti á almennum fundi í Rithöfundasambandi Íslands og kynnti þar starfsreglur sjóðsins. Þessi ósk virðist í alla staði eðlileg. Hér er um tiltölulega nýjan sjóð og nýjar reglur að ræða sem eðlilegt er að rithöfundar, sem hans eiga að njóta, vilji vita sem gerst um. Viðbrögð formanns Rithöfundasambandsins, Njarðar P. Njarðvík, voru þau að synja alfarið þessari málaleitan, með þeim ummælum m. a. að rithöfundar væru dónar. Þótti starfsbræðrum formannsins og starfssystrum lítt til um háttvísi hans í þeirra garð og ekki í þeim lýðræðisanda sem ríkja ætti í samtökum þeirra og rithöfundar almennt vilja að ríki þar.
Herra forseti. Það er ekki með neinum fögnuði sem ég hef reifað þetta mál hér á hinu háa Alþingi. Það er þvert á móti mjög svo dapurlegt að til þess þurfi að koma. Mér verður vísast brugðið um pólitískt ofstæki, ómengað íhald og annað þaðan af verra. Ég mótmæli fyrir fram slíkum áburði, og ég vil taka hér til fróðleiks smákafla, sem skrifaður er af einum af okkar þekktari rithöfundum, Jóni Óskari, sem um langt skeið taldist ákveðinn sósíalisti og taldi sig í þeirra hópi, en hefur nú eitthvað veikst í trúnni með árunum, að því er virðist. Hann skrifar í síðustu bók sinni í æviminningum hans sem hafa komið út að undanförnu, þar skrifar hann í lokakafla, með leyfi forseta:
„Sósíalistar lesa yfirleitt ekki bækur sem þeir eru hræddir um að geti veikt skoðanir þeirra, enda prédika heittrúaðir sósíalistar fyrir félögum sínum að óhollar bækur skuli varast. Þeir eru eins hræddir við slíkar bækur og Biblíutrúarmenn við það sem þeir kalla ókristileg rit, og bækur andsnúnar sósíalisma hafa verið bannfærðar í Sovétríkjunum á sama hátt og kaþólska kirkjan bannfærði ókristilegar bækur fyrr á öldum og gerir víst raunar enn þó að skemmra dugi en fyrr.“
Ég hygg að Jón Óskar verði ekki sakaður um sama hugarfar og ég, hið ómengaða íhald. En fróðlegt er að heyra ummæli þessa virta rithöfundar um fyrrverandi skoðanabræður sína.
Hér hafa því miður skeð þeir atburðir sem eru síður en svo vel til þess fallnir að stuðla að einingu og góðri samvinnu í hópi íslenskra rithöfunda. Eins og kunnugt er voru um langt skeið starfandi tvö félög rithöfunda á Íslandi. Það er ekkert launungarmál að skiptingin var þar eftir pólitískum línum. Viss hópur, minnihlutahópur rithöfunda, felldi sig ekki við vinnubrögð meiri hluta þröngsýnna starfsbræðra sinna sem settu pólitísk klíkusjónarmið ofar hagsmunum rithöfundastéttarinnar sem faglegrar heildar og neyttu aflsmunar eftir geðþótta þegar svo bar undir. Fyrir nokkrum árum tókst fyrir viðleitni velviljaðra og frjálslyndra manna meðal rithöfunda, að ég hygg úr öllum stjórnmálaflokkum, að sameina félögin tvö. Þar var, býst ég við, að allra mati stigið heillavænlegt spor í rétta átt. Sá ágreiningur og sárindi, sem orðið hafa nú út af margnefndri skiptingu starfslauna úr Launasjóði rithöfunda, eru hnefahögg í andlit þeirra manna sem vilja ekkert frekar en að friður ríki og gott samstarf meðal íslenskra rithöfunda. Við hljótum að vona að þetta él gangi yfir eins og önnur él og að íslenskir rithöfundar muni bera gæfu til þess í framtíðinni að standa saman um að auðga og standa vörð um íslenska menningu og eflingu bóklegrar menntar í landinu.