29.04.1980
Sameinað þing: 50. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2154 í B-deild Alþingistíðinda. (2009)

Umræður utan dagskrár

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég vil nú fyrst lýsa yfir sérstakri ánægju minni yfir því, að síðasti ræðumaður, hv. þm. Guðrún Helgadóttir, skuli þó segja að það sé grundvöllur fyrir íslenska menningu að fullkomið tjáningarfrelsi eigi sér stað, því þetta er ekki í samræmi við þær stjórnmálaskoðanir sem hún lýsir allajafna að hún hafi, og ekki í samræmi við skrif hennar í Þjóðviljanum fyrr og síðar um menningarmál og tjáningarfrelsi, þar sem hún vill fara allt aðrar leiðir, eins og ræða hennar bar með sér. Eða hvers konar fíflagangur er það að byrja á því að segja að 132 manneskjur hafi sótt um styrk úr ákveðnum sjóði, þar af 2 um ársstyrk, 34 um 9 mánaða styrk, og lesa svo upp fimm nöfn og segja: Ég auglýsi eftir svörum um það, hvort alþm. telja þessa hæfasta af þessum 36? Hverjir voru hinir 31? Það er um það sem málið snýst. Málið snýst ekki aðeins um það, hverjir fengu styrkinn, heldur fyrst og fremst um það, hverjum var hafnað. Ásakanirnar eru um það, að þeir menn, sem úthlutuðu, hafi gert rangt upp á milli þess fólks sem sótti um styrkinn og átti vissulega jafnan rétt á við aðra til að fá starfsstyrk úr eigin sjóði. Eða hverjir eiga opinbert fé? Er ekki eðlilegt að úthlutun opinbers fjár sé opinber og þessi plögg verði öll lögð á borðið og ekki aðeins rithöfundar, ekki aðeins alþm., heldur öll þjóðin fái að fylgjast með því, hvernig þessi úthlutun var.

Þessi hv. þm. kemur og segir: Þarna er einn rektor, þarna er einn bókmenntafræðingur, þarna er einn prófessor, eins og maður hrökkvi eitthvað í kút þó það sé talað um svona titla. Nei, það er auðvitað algjört aukaatriði þessa máls, en sýnir einungis, hversu þessi hv. þm. og þeir í menningarklíku Alþb. eru komnir langt frá fólkinu í landinu, að beita rökum eins og þessum þar sem hvergi er komið nálægt kjarna málsins.

Við getum raunar talað líka um Norræna þýðingarsjóðinn. Þar er líka þessi óskaplega leynd. Það má ekki koma fram hverjir í raun sækja um, hverjum er synjað, af því að sannleikurinn þolir ekki dagsins ljós.

Ástæðan fyrir því, að ég kvaddi mér hljóðs, var ekki sú að svara endilega hv. síðasta ræðumanni, heldur miklu fremur hitt, að ég var hálfundrandi á viðbrögðum hæstv. menntmrh. Ég lít svo á að það sé töluvert alvarlegt mál ef fjórði eða fimmti hver rithöfundur í landinu lýsir yfir með undirskrift sinni að um flokkspólitíska úthlutun hafi verið að ræða. Ég tel að það sé í rauninni enn alvarlegri tíðindi vegna þess að á aðalfundi Rithöfundasambandsins var viðurkennt að nauðsynlegt væri að taka þessi mál upp að nýju, stokka spilin upp, og sérstök nefnd var skipuð í því skyni. Og það vekur athygli, að tveir af þrem nm. eru í hópi þeirra sem telja að um flokkspólitíska misbeitingu hafi verið að ræða. Einmitt í þessari nefndarskipun felst viðurkenning á því, að það er fótur fyrir þeirri gagnrýni sem hér er hreyft, það er kjarni málsins, og náttúrlega algjörlega út í hött að Alþ. eigi ekki að fylgjast með því ef opinbert fé er veitt einstaklingum án þeirrar yfirsýnar sem nauðsynleg er í þvílíkum tilvikum sem hér um ræðir.

Einn rithöfundur, sem hefur skrifað margar bækur og ég átti tal við um þetta mál, sagði mér í gær að í rauninni væri þessi úthlutun krafa um það að Rithöfundasamband Íslands klofnaði í tvennt, þessi úthlutun yrði ekki skilin á annan veg, og ef svo héldi fram sem horfði, að innan rithöfunda risi upp einhver yfirstétt sem hefði töglin og hagldirnar, sem hefði peningaráðin, þá vitum við að því fylgir í raun ófrelsi vegna þess að þá sitja menn ekki við sama borð varðandi opinbera styrki hvar sem þeir eru í pólitík. Þetta er kjarni þessa máls.

Hv. síðasti ræðumaður las lista fyrir mig áðan. Ég hrökk ekki í kút þegar ég heyrði að Thor Vilhjálmsson væri sá sem hefði fengið flestar vikurnar greiddar. Hver var númer tvö, hver var númer þrjú og hver var númer fjögur? Þetta var afskaplega rauðleitur listi, heyrðist mér, án þess að ég sé að halda því fram að allir þeir starfsstyrkir, sem þar hefur verið úthlutað, hafi verið óverðugir borið saman við aðra. En ég leyfi mér að fullyrða að í þessum efnum orkar áreiðanlega tvímælis um sumt. Eða treystir hv. þm., sem spurði okkur svona mikið og er félagi í Rithöfundasambandi Íslands og sagði hér áðan: Þorir einhver að segja að þetta séu rithöfundar sem séu ekki þess virði að fá 9 mánaða styrk úr eigin sjóði? — Þorir hún að segja að allir, sem var hafnað, séu ekki þess virði? Ef hún segir að þessir hafi verið þess virði og þess vegna hafi þeir átt að fá það, þá - með því að beita útilokunaraðferðinni og lesa þessa setningu rétt — þýðir hún að hinir hafi ekki verið þess virði. Er hún manneskja fyrir þeim orðum? Og hverjir voru þá hinir sem ekki voru þess virði? Það þarf að koma fram. Það er í rauninni hryggilegt og sorglegt á þessari miklu upplýsingaöld, þar sem maður heldur að maður geti umsvifalaust komist að því hvað er að gerast í þjóðfélaginu, þá skuli leyndin vera svo mikil og hin flokkspólitíska mismunun fjármagns í skjóli nefnda og jafnvel verkalýðshreyfingar að maður kemst hvergi nálægt því að vita hvað raunverulega er að gerast. .

Það er líka undarlegt að Alþb. kemur þar yfirleitt við sögu. Hvaða flokkur var það árið 1978 sem mest hagnaðist á þeim fjáraustri sem þá var úr sjóðum verkalýðshreyfingarinnar til þess að fjármagna þær kosningar? Og hvað hefur hæstv. heilbrmrh., sem var sítautandi undir ræðu Sigurlaugar Bjarnadóttur, gert til þess að standa við stóru orðin um það að samningarnir frá 1977 ættu að fara í gildi? Ekki neitt.

Hins vegar hefur hann skrifað um það greinar í Þjóðviljann að það eigi að misbeita verkalýðshreyfingunni fyrir vagn Alþb., og hann hefur í ræðu innan þeirra samtaka lýst yfir sérstakri ánægju sinni yfir því, hversu vel tókst til um þessa misnotkun, — sú ræða var prentuð í Þjóðviljanum. (Félmrh.: Ertu hissa á því?) Ég er ekki hissa á því, því hæstv. ráðh. er siðlaus. Ég skal reyna að vera þinglegur í orðbragði, herra forseti. Og eitthvað svipað hefur raunar komið fram í sambandi við afstöðuna til listanna. (Félmrh.: Dæmi?) Við erum nú að fjalla um eitt hér, úthlutun úr Launasjóði rithöfunda, við erum að sjá það þar. Þar er verið að fjalla um þetta. Enda er staðreyndin sú, að úr þessari þrætu okkar verður ekki skorið nema á einn veg, að öll nöfnin verði lögð á borðið, við fáum að sjá hverjir sóttu, við fáum að kynna okkur þetta. Það er eini vegurinn. Þessi gagnrýni er komin fram, hún hefur vakið athygli, hún er á forsíðum blaðanna. Menn tala um hvort það sé svo, að lítil menningarklíka, snobbklíka, eigi að ráða því hverjir hafi tækifæri til að skrifa fyrir almannafé.

Ég vil beina þeirri spurningu til hæstv. menntmrh.,hvort hann geti ekki séð um það fyrir okkur að við fáum lista yfir þá sem sóttu um starfslaun úr Launasjóði rithöfunda fyrir þessa úthlutun og þá síðustu, svo við getum hér á hinu háa Alþingi sjálf dæmt um hvernig þetta lítur út. Ég held að þeir menn, sem taka að sér að þiggja laun fyrir að úthluta almannafé, verði að þola gagnrýnina, verði að þola dagsljósið. Mér þætti þess vegna fróðlegt að fá svar við því. Ég er ekki þeirrar skoðunar að neinn einn hafi einkaleyfi á menningunni, og ég er ekki alveg viss um það, þegar ég lít yfir þennan lista hér, að ég sé sammála því að þessir fimm, sem þarna eru efstir, séu kannske bestu skáldin eða bestu rithöfundarnir þarna. Ég er ekki alveg sammála um það. Það eru a. m. k. ekki þeir rithöfundar og þau skáld sem ég les helst, það er ljóst mál. Það má margt um það spjalla og væri fróðlegt að fá það fram.

Ég get ekki annað en látið í ljós undrun mína yfir því sem hæstv. menntmrh. sagði áðan, að ekki hefði komið fram hvaða flokkur það væri sem þessir menn telja að hafi misbeitt sínum áhrifum í sambandi við þessa úthlutun. Einn rithöfundurinn komst svo að orði í blaðagrein: „Til þess að komast í þessa flokka þurfa menn að uppfylla tvö skilyrði: að styðja núverandi formann Rithöfundasambandsins og að vera í eða á Alþb.“ — Menn þurfa ekki að giska á neitt, eins og hæstv. menntmrh. sagði. Hins vegar er það rétt, að það var ekki í yfirlýsingunni. En menn þurftu ekki að giska á það. Þetta kom skýrt fram í blöðum. Varðandi það, hvort þessir menn af einhverri tilviljun eru í Alþb. eða ekki, ef þeir hafa misfarið með fé í þágu þess flokks, þá skiptir engu máli í hvaða flokki þeir eru. Þó þeir séu framsóknarmenn skiptir það engu máli. Þó þeir hafi boðið sig fram fyrir Framsfl., þá skiptir það ekki máli.

Ég get ekki á það fallist, að það sé auðvelt að hrekja að hér sé um flokkspólitíska úthlutun að ræða fyrr en ég sé nöfnin, umsóknirnar. Ég held að það sé lykillinn að þessu. Og ég tek undir að maður hleypur ekki eftir hvaða sögu sem er. Maður hefur séð annað eins til Alþb. og veit vel um það, að þeim mönnum er ekki allt heilagt í þeim efnum þegar þeir eru að hossa sínum gæðingum. Og ef saga opinberra styrkja er rakin kemur það býsna víða fram, að þar sem Alþb. hefur tökin, þar hefur verið hyglað eftir pólitískum línum. Um það má nefna mýmörg dæmi, og þetta kemur kannske best fram í því, að ýmsum rithöfundum einmitt úr röðum Alþb.-manna ógnar þetta siðleysi. Þeir skammast sín fyrir þessa úthlutun. Og þeir skilja í rauninni ekki hvað komið hefur fyrir félaga sína í Alþb. og skoðanabræður. Nema það sé þetta sem hv. þm. Karvel Pálmason er að segja, að það séu menningarvitarnir sem séu búnir að ná undirtökunum. (Gripið fram í: Gáfumannadeildin.) Gáfumannadeildin, já. Það er a. m. k. afskaplega óheppileg tilviljun hvernig til hefur tekist ef þarna er engin flokksleg lína á bak við, einhver undarleg tilviljun hvernig menn hafa raðast sem hafa flesta mánuðina á bak við sig. Ekki mundu það teljast af hlutlausum manni þeir rithöfundar sem bestar bækur hafa skrifað á undanförnum árum, nema þeir sem það hafa gert séu svona óduglegir að sækja um.

Ég get e. t. v. tekið undir það með síðasta ræðumanni, Guðrúnu Helgadóttur, að það sé vonandi að þeir séu fáir sem hafi ekki einhvern tíma komist á blað. Ég sé nú ekki að menn lifi lengi á því, þó þeir fái tveggja mánaða laun. Ég sé það ekki. En það má kalla allt hvaða nöfnum sem mönnum sýnist, og það verður líka að segja, að það var kannske pínulítið skiljanlegt að þrátt fyrir allt, þrátt fyrir þessa misnotkun, þrátt fyrir þetta siðleysi sem lýsir sér í því að vilja ekki opna þetta og hreinsa út, þá er samt leyfilegt í þessu landi að kjósa Alþb., eins og þm. sagði, og freistandi fyrir þá sem vilja láta hygla sér undir vissum kringumstæðum, a. m. k. eins og nú er komið. En sem sagt, ég býð þetta fram til þess að hreinsa andrúmsloftið, hæstv. menntmrh., að þessi plögg verði lögð fram, þm. geti kynnt sér hverjir sóttu, og þá mætti í leiðinni láta það fylgja hvernig staðan er hjá Norræna menningarmálasjóðnum eða hvað hann nú heitir, svo að við getum gengið úr skugga um að þarna hafi ekki verið úthlutað eftir flokkspólitískum sjónarmiðum, eins og skiljanlegt er að grunsemdir vakni um eins og allt er í pottinn búið.