29.04.1980
Sameinað þing: 50. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2158 í B-deild Alþingistíðinda. (2011)

Umræður utan dagskrár

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að þæfa þetta mál lengi. Ég get tekið undir það, að þessar umræður eru með dapurlegu sniði og mætti gjarnan slá á aðra strengi þá og þegar svo ber til að menntamál og listir eru til umræðu á hinu háa Alþingi.

Það kann vel að vera að hv. 7. landsk. þm. hafi stungið tólg í ræðu sinni, en hæstv. félmrh. beit alveg höfuðið af skömminni í þeirri offorsfullu ræðu sem hann gusaði hér út úr sér. Hann talaði um „kröfu um pólitískan klíkuskap“, en nefnd, sem fer með stórfé úthlutað af Alþ., er kærð af nær fimm tugum þekktra einstaklinga fyrir að hafa misnotað með grófum hætti aðstöðu sína og farið rangt að varðandi það hlutverk sem henni hafði verið falið. Þetta er ákæran. Þetta er ákæran sem er hið alvarlega í málinu. Og að hér séu fluttar fram kröfur um atvinnuofsóknir! Öll var ræða hæstv. félmrh. eins og ég hefði heyrt spilaða plötu tekna upp eftir Einari Olgeirssyni fyrir fjörutíu árum eða svo. Og þó vill hann halda því fram að hann sé uppi árið 1980 og með hugmyndir sem samsvari því. Hér er öllu öfugt snúið eins og heyra mátti á ræðu hans.

Það er heldur ekkert einhlítt sem hv. 7. landsk. þm. bað um, að plögg yrðu lögð á borðið. Það er endalaust álitamál hvernig verja eigi slíku fé og hverja beri helst að styrkja til að stunda listiðn sína. Það er enginn dómari og verður aldrei til í þeim sökum.

En það, sem að mínum dómi ber að gera og hæstv. menntmrh. er knúinn til, það er að taka röggsamlega á málinu og rannsaka hvað er hæft í þessari stóralvarlegu ákæru, sem getur ekki verið borin fram nema af mjög illri nauðsyn og af því sem viðkomendur hafa talið sig vera til knúða, því að enginn vill — og ég trúi síst að félagar þeirra í listinni — leggja nafn sitt við slíkt nema af hinni brýnustu nauðsyn. Ekki trúi ég því svo óskapfellilegt sem þetta allt saman er.

En ég verð að segja það, að fyrir utan dapurleikann, sem á mann sækir vegna þessarar umræðu allrar, þá varð ég ekki að hressari við ræðu hæstv. menntmrh. Það var mikið svig sem hann fór í — stórsvig. Og ég sá ekkí betur en hann félli eiginlega í hverju hliði. Hann byrjaði á því að lýsa yfir að hann vildi engan dóm á þetta leggja. En síðan tók hann að vefengja og — ég gat ekki betur skilið — allt að því að halda því fram að hér væri um söguburð að tefla sem þessir ákærendur hér hafa flutt fram. Hann byrjaði að vefengja þetta og taldi þetta og taldi þetta laust í reipunum og lítils megnugt frá rakalegu sjónarmiði séð og færði m. a. fram sem rök í því, að í ákærunni væri Alþb. ekki nefnt. Er þó sagt skýrum stöfum að hér sé úthlutun á hæstu stöllunum. Það er átt við hin fjögur sem úthlutun fengu eftir flokkspólitísku sjónarmiði. Væntanlega hefur þessi mannfjöldi ekki talið sig þurfa að kveða sterkara að orði um hvað átt væri við, þar sem í hópnum er frú Svava Jakobsdóttir. Þó að hann láti nú sem svo að hann viti lítt um stjórnmálaskoðanir Björns Teitssonar, sem er framsóknarmaður og hefur ekki dregið dul á það alla sína ævi, þá ætti hann nú að vita þetta. (Gripið fram í.) Já, það er vinstri sveifla á honum eins og mörgum framsóknarmanninum, m. a. hæstv. menntmrh., sem oft hefur verið í því svigi líka og fallið í hliðunum.

Nei, ég var að halda það, að sokkabandsár Einars Olgeirssonar væru liðin, að það væru liðnir tí mar. Ég hélt að maður, sem gæti verið sonarsonur hans, kæmi ekki hér upp og spilaði slíka plötu: „krafa um atvinnuofsóknir“ „krafa um pólitísk klíkusjónarmið“, þó að menn taki fyrir kæru, mjög alvarlegs eðlis, sem snertir fjármuni sem Alþ. veitir, taki fyrir á hinu háa Alþingi, sem að líkum lætur að auðvitað var í framhaldi af þessari alvarlegu umræðu.

Og mjúklega tók hæstv. menntmrh. á málinu þegar hann sagðist ekkert sjá á móti því að slíkt mál yrði tekið hér til umfjöllunar á Alþ. Slíkt er náttúrlega að yppta öxlum kæruleysislega yfir þessu. Það er alveg ljóst að Alþ. neyðist til-og er það þó mín skoðun að mjög verði þá að því sótt áður en gripið verður til slíkra vinnubragða — að taka málin í sínar hendur. Alþingi neyðist til þess ef menn telja að að baki þessu liggi svo sterk rök að þarna sé greinilega misfarið með stórfé sem Alþ. veitir í þessu skyni.

Það er ekkert nýtt að listamenn fljúgist á og deildar séu meiningar í þeim hópi. Það er alveg rétt. Í þessum hópi rithöfunda hafði þó miðað í rétta átt, þeir höfðu sameinast í hagsmunasamtökum sínum og væri mjög miður ef þetta leiddi til þess að leiðir skildi enn á ný. Ég mundi helst vilja fá að trúa því, að hér réði einber tilviljun, en ég get ekki, þar sem ég er miklu ókunnugri en ákærendurnir, lokað augunum fyrir alvöru málsins og hlýt að krefjast þess, að málið verði rannsakað til hlítar og að Alþingi taki í taumana ef því líst málið svo vaxið, þar sem það hlýtur að snúa beint að því vegna þeirra fjármuna sem þarna um teflir.

Nei, það er ekki skemmtileg umræða að menn kallist á um það og nefni nöfn rithöfunda og listamanna, hvort heldur menn eru að vefengja rétt þeirra og gildi sem listamanna eða þykjast geta teflt einhverjum öðrum jafnfærum fram. Það er ekki hæfileg umræða á hinu háa Alþingi. Hins vegar kemst það ekki hjá því, eins og ég segi, þótt dapurlegt sé, að taka til höndum ef mönnum sýnist sem stórlega sé misfarið með fjármuni sem það af góðum hug hefur veitt til svo brýnna þarfa, stórbrýnna þarfa eins og það er aðstyrkja rithöfunda móðurmálsins til góðra verka.