29.04.1980
Sameinað þing: 50. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2165 í B-deild Alþingistíðinda. (2016)
Umræður utan dagskrár
Menntmrn. (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. Ég vil taka undir það sem kom fram í máli hv. 4. þm. Vestf. nú síðast, að við erum ekki fær um að dæma um þessa ásökun, hvort hún sé rétt eða röng, og það var einmitt það sem ég var að segja að meginefni, held ég, í ræðu minni fyrr í dag. Ég leyfði mér að rekja veilur í röksemdum og ásökunum þeim sem fram hafa komið af hálfu þeirra 46 rithöfunda sem skrifað hafa undir þetta ásökunarskjal.
Það væri sjálfsagt hægt að halda þessum umr. nokkuð lengi áfram, en ég ætla ekki að gera það, heldur ætla ég aðeins að ganga beint til þess og víkja að því, sem að mér hefur verið beint í þessum umr., og þá m. a. um það, hvort ég mundi ekki vilja beita mér fyrir því að gerðar séu ráðstafanir til þess að listi yfir þá, sem ekki fengu úthlutun, yrði birtur. Ég er fús til þess að beita mér fyrir slíku. Ég held satt að segja að það skeri ekki úr þrætunni þó að slíkur listi yrði birtur, en hann hefur óneitanlega talsvert upplýsingagildi, og ég sé ekki að sá listi sé neitt launungarmál.
Eins hefur það komið mjög ákveðið fram, og ég tek þá hæstv. félmrh. og hv. 10. þm. Reykv., Friðrik Sophusson til dæmis um það og reyndar fleiri, að þeir hafa talið að það sé nauðsynlegt að þetta mál verði kannað til hlítar, þ. e. hvort þessi ásökun eigi við rök að styðjast, að úthlutunarnefndin hafi misnotað aðstöðu sína í þágu Alþb. Ég get tekið undir það að eðlilegt sé að kanna þetta mál til hlítar. Ég vil þó í allri auðmýkt benda mönnum á að þetta er alls ekki auðvelt verk. Ég er fús til þess fyrir mína parta að athuga í fyrsta lagi og fyrst og fremst með hvaða hætti slík könnun getur farið fram svo að hún leiði til óyggjandi niðurstöðu. Það mun ég að sjálfsögðu gera með því fylgjast sem best með þessu máli og kynna mér það frá öllum hliðum. Og ég er fús til að gera mitt til þess að slíkar upplýsingar, sem þarna er beðið um, verði sem ítarlegastar og fyrst og fremst að þær leiði til þess að rétt niðurstaða fáist í þessu máli.
Ég verð að segja sem er, að þetta mál hefur að ýmsu leyti borið heldur leiðinlega að. En ég ætla ekki að segja að það hafi ekki að einhverju leyti verið ástæða til þess að hafa uppi þessi mótmæli og þessar ásakanir, sem þeim fylgja. Ég hef eigi að síður fundið marga annmarka á rökstuðningi þeirra sem að mótmælunum standa, og ég hygg að þeir verði að rökstyðja sitt mál betur þegar til þess kemur að upplýsa það betur en orðið er. Að því leyti til stendur það sem ég sagði hér í upphafi, að það sé erfitt fyrir okkur að dæma um þetta mál núna. Og það gleður mig satt að segja, að hv. 4. þm. Vestf. skuli vera sama sinnis um þetta og ég, að þetta þurfi að kanna betur. En ég skal nota mína aðstöðu og mitt vald til þess að þetta verði upplýst sem best, og hafi ég einhverjar upplýsingar í þessu efni eða verði ég mér úti um þær, þá skal ekki standa á að þær berist þm. og Alþingi og öðrum sem láta sig þetta mál varða.
Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri, en endurtek það sem ég hef sagt, að ég skal verða hv. þm. innan handar um upplýsingar eftir því sem mér er unnt. En ég bendi jafnframt á það, að þetta er ekki vandalaust verk. Ég geri naumast ráð fyrir því, að þeir, sem borið hafa þetta mál hér inn á Alþ. og vilja að það verði kannað til hlítar, telji að það verði kært til dómstóla, og ég þekki engan dómstól sem beinlínis Fjallar um þessi mál. Þess vegna vil ég taka mér tíma og frest til þess að athuga hvernig slík könnun má fara sem skaplegast fram.