29.04.1980
Neðri deild: 65. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2182 í B-deild Alþingistíðinda. (2025)

127. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég vil í upphafi máls míns fagna því sérstaklega, að hæstv. fjmrh. skuli hafa orðið við þeirri beiðni að þingflokkunum gefist kostur á því að fylgjast með framkvæmd skattalaga nú í sumar, vegna þess að enginn vafi er á því, að í þeim efnum ríkir nú meiri óvissa en verið hefur um langt skeið, eins og raunar hefur komið fram í ummælum bæði hæstv. forsrh. og hæstv. fjmrh. Ég vil sem sagt færa hæstv. fjmrh. þakkir fyrir undirtektir hans og leyfa mér að vona að þessari nefndarskipan verði komið á sem allra fyrst.

Í sambandi við það frv., sem hér liggur fyrir, er það annars að segja, að það felur í sér mjög verulega hækkun á tekjusköttum. Ég held að það sé alveg óhjákvæmilegt bæði fyrir hæstv. ríkisstj. og stuðningsmenn hennar hér á Alþ. að viðurkenna þetta. Ef við leggjum til grundvallar þann tekjuskatt, sem gengið er út frá í fjárlögum 1978, og framreiknum hann til þessa árs, þá kemur í ljós að núv. hæstv. ríkisstj. ætlar sér að innheimta um 10 milljörðum meiri tekjuskatt heldur en skattalöggjöfin 1978 gefur, ef gengið er út frá þeirri þróun sem orðið hefur í verðlags- og launamálum, tekjubreytingu milli ára, sem hæstv. fjmrh. gerði mjög að umtalsefni áðan. Hæstv. fjmrh. sagði orðrétt, að gert sé ráð fyrir að ríkissjóður fái nákvæmlega sömu tekjur og gamla skattkerfið hefði skilað. Þetta gamla skattkerfi hefði skilað tæpum 10 milljörðum minna en gert er ráð fyrir í fjárl. Ég vil í þessu sambandi minna á að í sambandi við félagsmálapakkann 1978 gaf sú ríkisstj., sem þá var, fyrirheit um að skattar mundu lækka, og launþegar sættu sig við 2% launaskerðingu vegna þessa fyrirheits þeirrar ríkisstj. sem þá sat. Síðan hafa nýir kjarasamningar ekki verið gerðir. Núv. hæstv. ríkisstj. er því siðferðilega skuldbundin launþegum að þessu leyti og því fremur sem sjö af tíu ráðherrum voru aðilar að þessu loforði við launþegahreyfinguna og þeir þrír, sem eftir eru, buðu sig fram fyrir síðustu kosningar með þau orð á vörunum að þeir vildu afnema vinstri skattana. Þessi hækkun tekjuskattsins er um 30%, eitthvað á því bili sem tekjuskatturinn hækkar frá því sem var þegar hv. 1. þm. Reykn., Matthías Á. Mathiesen, var fjmrh. Það er nú þessi skattahækkun.

Ofan á þetta er svo söluskattshækkunin, sem hæstv. heilbrmrh. Svavar Gestsson sagði á verkalýðsmálaráðstefnu Alþb. fyrir skömmu að skipti launþega engu máli. Það má segja að það sé út af fyrir sig gott, að maður, sem hefur þvílíkar hugmyndir um skatta — að þeir skipti engu máli fyrir þá sem þá greiða, skuli vera búinn að láta viðskiptamálin frá sér í ríkisstj.

Ég sakna þess nú sérstaklega, að hæstv. forsrh. skuli ekki vera hér við. Þegar þessi mál bar á góma fyrir skömmu í Sþ. viðhafði hæstv. forsrh. þau ummæli, að hlutfall skatta af meðaltekjum væri lægra nú en verið hefði um margra ára skeið. Af þessum sökum aflaði ég mér upplýsinga um það hjá kauplagsnefnd, hverjar hefðu verið meðalatvinnutekjur verkamanns, bæði einhleypings og kvænts verkamanns, á árunum 1978, 1979 og 1980, og reiknaði út þá skatta sem þessi verkamaður hefði fengið eftir því skattkerfi sem á hverjum tíma var í gildi. Eftir því kemur í ljós, að á árinu 1978 greiddi einhleypur verkamaður, sem hafði meðalatvinnutekjur verkamanna í laun, um 25.86% í skatta, á árinu 1979 26.14% og samkv. lögum ríkisstj. 28.46%. Ef við tökum með sama hætti meðalatvinnutekjur kvæntra verkamanna — og þá eru teknar inn í dæmið þær meðaltekjur sem eiginkonur verkamanna höfðu á árunum 1978, 1979 og 1980, þá kemur í ljós að á árinu 1978 greiddu verkamannshjón 19.15% í beina skatta — þetta á allt við um beina skatta — árið 1979 19.24% og á árinu 1980 21.43%. Þarna er um verulega hækkun að ræða á skattbyrði verkamannafjölskyldna.

Það er að sjálfsögðu hægt að búa til margs konar samanburð á milli ára þegar verðbólgan er jafnmikil og hún er núna, ég tala ekki um þegar um mjög mismunandi skattkerfi er að ræða milli ára, ef menn gera tilraun til þess að framreikna meðaltekjur frá liðinni tíð. Það má auðvitað gera með margvíslegum hætti. En kjarni málsins er þessi, að í ár fer hlutfallslega meira í beina skatta hjá meðalverkamannafjölskyldunni en gerði í tíð ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar. Þetta er mergurinn málsins. Þetta er sá eini samanburður sem hægt er að viðhafa. Það gerir dæmið gagnvart þeirri ríkisstj. enn hagstæðara, að á þeim tíma, sem síðan er liðinn, hafa óbeinir skattar hækkað mjög verulega, eins og hv. 3. þm. Norðurl. e. hefur rækilega gert grein fyrir og ég skal ekki fara út í hér.

Það má auðvitað í þessu sambandi fara ofan í einstök atriði. Ég tel ástæðu til þess að leiðrétta það sem fram kom í ræðu hæstv. fjmrh. áðan, að þær breytingar, sem voru gerðar milli 2. og 3. umr. í Ed., hafi falið í sér lækkun á sköttum allra einhleypinga. Þetta er rangt. Þær leiðréttingar náðu ekki einu sinni til meðaltekna verkamanns, sem hefur á þessu ári um 5.1 millj. í atvinnutekjur. Áhrif þeirrar breytingar hurfu þegar meðattekjur urðu í kringum 4.9 millj. kr. Á þær tekjur, sem þar eru fram yfir, verður aftur skattahækkun eftir þeim breytingum sem gerðar voru í Ed., og þær skattahækkanir taka m. a. til verkamanns með meðalatvinnutekjur. Það er nauðsynlegt að þetta komi fram. Og ég vil mjög taka undir það sem hv. 6. landsk. þm. sagði hér áðan, að þessar miklu skattaálögur, sem ríkisstj. stefnir að, hljóti að hafa í för með sér mikla erfiðleika í sambandi við samningsgerðina nú á þessu vori. Ég er ekki alveg með það í höfðinu, en ef ég man rétt hefur lækkun beinna skatta verið einna efst á blaði í kröfugerð hinna almennu verkalýðsfélaga frá því á árinu 1973 eða 1974 eða eitthvað um það bil, og svo er enn, sem er eðlilegt þegar á það er lítið að beinu skattarnir eru komnir upp í 65% og menn vilja þá heldur í þessari miklu verðbólgu hafa aðeins færri krónur en vita þó að þeir eigi þær.

Sú eftiráskattheimta, sem menn hafa orðið að una við upp á síðkastið, er orðin algerlega óþolandi og þess sjást merki víða í atvinnulífinu, að menn eru farnir að halda að sér höndum vegna hennar. Ég hitti síðast í dag mann sem hafði ekki komið nálægt rekstri áður. Hann hafði ekki gert sér grein fyrir öllum þeim pinklum, sem á reksturinn eru lagðir, og lét í ljós undrun yfir því, að nokkur maður skyldi gera það að ævistarfi að berjast þeirri vonlausu baráttu að reyna að reka fyrirtæki með hagnaði eins og komið er efnahagsmálum okkar Íslendinga núna.

En það er ekki aðeins svo, að hinir beinu skattar hækki um 30% frá því sem var í tíð ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar, heldur hefur þróunin því miður orðið sú á síðari hluta s. l. árs og það sem af er þessu ári að launakjörin hafa skerst verulega. Ef við lítum á kaupmáttinn á s. l. ári kemur í ljós að launakjör verkamanna hafa að jafnaði skerst um einhvers staðar á milli 1 og 2% á s. l. ári og launakjör verkakvenna litlu minna. Það er þetta fólk sem verður að borga hvað dýrustu verði þá óstjórn sem nú er í landinu. Og ef við horfum á þróunina eins og hún hefur orðið á þessu ári, þá hafa lífskjörin dregist verulega saman. Mér finnst eftirtektarvert, að málsvarar launafólks, bæði Alþýðusambandsins og BSRB, hafa ekki minnst einu einasta orði á þá þróun sem orðið hefur í þessum efnum. Ég held að það sé m. a. vegna þess, að þessir aðilar þora ekki að horfa framan í raunveruleikann eins og hann er, því að lífskjörin hafa dregist mjög alvarlega saman á þessu ári — mjög alvarlega.

Hæstv. fjmrh. flutti um það undarlega ræðu hér áðan, að sú breyting, sem í Ed. var gerð á skattafrv. milli 2. og 3. umr., hefði komið einhleypingum og einkanlega einstæðum foreldrum mikið til góða. Ég skal ekki draga úr því, að þar var nokkuð létt á skattabyrði þeirra sem lægstar höfðu tekjurnar miðað við það sem ríkisstj. hafði ætlað sér. En gagnvart einhleypingum var ekki um skattalækkun að ræða í heild, ef borið er saman við fyrri kerfi, heldur þyngjast beinu skattarnir þvert á móti, þegar lítið er á þá sem heild, frá því sem var á árinu 1978, a. m. k. ef miðað er við það dæmi sem í Þjóðviljanum var talað um. Og eins og ég sagði áðan, þegar komið er upp yfir 4.9 millj. rennur þessi lækkun út í sandinn, en hins vegar eru skattar á hjónum þyngdir um 40 þús. kr. að meðaltali og um 20 þús. kr. á einhleyping. Þegar þetta dæmi er líka skoðað í heild kemur í ljós að það, sem gefið er með annarri hendinni, er tekið með hinni. Þetta stenst nokkurn veginn á samkv. upplýsingum Reiknistofnunarinnar.

Hæstv. fjmrh. gerði úr því nokkurt mál, að ríkissjóður mundi nú greiða stærri hlut en áður upp í útsvör og annað því um líkt. Þegar skattalögin eru skoðuð í heild skiptir þetta ekki heldur máli vegna þess að sú tala, sem gengið er út frá í sambandi við tekjuöflun ríkissjóðs, er nettótala. Það er gert ráð fyrir að útsvörin komist öll til skila, 11.88% plús sjúkrasamlagsgjaldið, plús sá mikli tekjuskattur sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrv. Og í öllum þessum útreikningi hæstv. fjmrh. kemur ekki heldur fram hversu mikil hækkun útsvarsins er þegar það er hækkað úr 11.1% í 11.88%. Það er hætt við því, að sú breyting vegi miklu þyngra líka gagnvart því fólki, sem þarna er um að ræða, heldur en sú smávægilega lækkun sem þeir guma svo mjög af og ég hef raunar ekki séð útreikninga á hvernig fundin er, þegar samanburður er gerður við árið 1978 t. d. eða 1979.

Þetta mál er nú svo þrautrætt, að það er út af fyrir sig ekki ástæða til að hafa um það miklu fleiri orð á þessu stigi. Ég vil aðeins ítreka það, að þau ummæli hæstv. fjmrh. og stuðningsmanna ríkisstj., að fólk með lágar tekjur hagnist verulega á þessari skattkerfisbreytingu, eru röng. Þau stangast á við staðreyndir og eru sögð gegn betri vitund. Það er kjarni málsins. Og þegar verið er að tala t. d. um það, að þessi 10% frádráttarregla sé eitthvað voðalega mikið sem gert sé fyrir launþega, að þeir eigi að þakka sérstaklega fyrir þessi 10% sem þarna séu gefin eftir sem fastur frádráttur, þá skulum við hafa það í huga, að allir launþegar verða nú í fyrsta lagi að greiða 4% af tekjum sínum í lífeyrissjóð og félagsgjöld í verkalýðshreyfingunni eru 1%, þannig að þar eru nú komin 5% . Ef maður með meðalatvinnutekjur verkamanns, 5.1 millj. skuldaði svo einn víxil upp á 600 þús. kr. og greiddi af honum vexti allt árið, þá væri það komið sem vantar upp á 10%. Það er nú ekki meira en þetta. Og við getum einnig tekið þetta öðruvísi. Um leið og ríkisstj. lögfestir þessa 10% frádráttarreglu, þá eru tekjuskattstigarnir hækkaðir úr 20% upp í 25, 30% í 35 og 40% í 45. Það er því einnig tekið til baka, þannig að þegar upp er staðið verður þessi 10% regla, sem átti að verða til hagsbóta fyrir launþega, í raun til þyngingar, vegna þess að núv. hæstv. ríkisstj. hefur haft þann háttinn á, að keyra þetta mál fram með það sjónarmið eitt í huga að ná sem mestum skattatekjum út úr almenningi í landinu.

Síðast í gær talaði ég við einn mann í Skattstofu Reykjavíkur um þetta mál og spurði hann hvernig honum lítist á. Hann lét einmitt í ljós þennan ugg, að launþegar mundu fara mjög illa út úr þessari skattkerfisbreytingu af því að skattstigarnir eru svo háir.

Þegar hæstv. fjmrh. talar um það, að allir stjórnmálaflokkarnir beri ábyrgð á þessu frv., þá er það ekki rétt að þessu leyti gagnvart launþegum. Það er ríkisstj. sem knýr fram þessa miklu skattheimtu með ósanngjörnum og óhæfilega háum skattstigum, ekki aðeins hér, heldur einnig í sambandi við útsvarið.

Ég skal ekki á þessu stigi hafa þessi ummæli lengri. Ég harma aðeins að svo skuli nú komið sem raun ber vitni, að menn eru farnir að hugsa sig um tvisvar áður en þeir leggja mikið á sig til þess að afla tekna og skapa verðmæti í þjóðarbúið. Og það urðu okkur mikil vonbrigði mörgum, að þessi mikla skattpíningarstefna skuli knúin í gegnum Alþ. með atkv. manna sem kjörnir voru á þing fyrir Sjálfstfl. og höfðu skuldbundið sig til þess fyrir síðustu kosningar að létta af vinstri sköttunum, en margfalda þá ekki, eins og ég hef hér sýnt fram á að gert hefur verið. Jafnmikil og óvissan er í kjaramálunum hefði það þó verið lágmarkskrafa, að ríkisstjórnin hefði látið við það sitja að skattbyrðarnar á meðalverkamannstekjur hefðu verið nokkurn veginn jafnmiklar og áður, en ekki þyngdar eins og raun ber vitni, og kemur til með að spilla mjög verulega í þeim kaupdeilum sem nú eru uppi.