29.04.1980
Neðri deild: 65. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2199 í B-deild Alþingistíðinda. (2032)
165. mál, grunnskólar
Menntmrh. (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. um breyt. á lögum nr. 63/1974, um grunnskóla. Þetta frv. er ekki mikið að vöxtum, aðeins tvær greinar, en hins vegar má segja að efni frv. sé nokkuð viðamikið í raun og veru.
Eins og kunnugt er fjallar 88. gr. grunnskólalaganna um gildistöku laganna og hvernig framkvæma skuli þau. Í 88. gr. segir, að lögin öðlist þegar gildi og komi til framkvæmda svo fljótt sem aðstæður leyfa í hverju skólahverfi að dómi menntmrn., þó eigi síðar en innan 10 ára frá gildistöku, en stefnt skuli að því, að ákvæði laganna um síðasta ár skólaskyldu komi til framkvæmda samtímis á landinu öllu sex árum eftir gildistöku laganna.
Í því frv., sem hér er lagt fram, segir að stefnt skuli að því, að ákvæði laganna um síðasta ár skólaskyldu komi til framkvæmda samtímis á landinu öllu sjö árum eftir gildistöku laganna. M. ö. o.: það er verið að lengja gildistökuákvæðið hvað varðar skólaskylduna um eitt ár, þannig að ef þetta frv. verður að lögum mun skólaskyldan ekki koma til framkvæmda alls staðar á landinu fyrr en sjö árum eftir gildistölu, en ekki sex árum eins og nú segir í lögunum. Þessi lög voru sett 1974 eða samþ. þá og tóku gildi, þannig að ef ekki kæmi nú til breyting á þessu ákvæði, þá mundi þetta ákvæði af sjálfu sér ganga í gildi og koma til framkvæmda næsta haust. En ýmislegt hefur orðið til þess að mér hefur þótt rétt að flytja þetta frv. og fresta þessari framkvæmd um eitt ár. Ástæðan til þess er sú, að það er augljóst mál að ekki er enn þá viðbúnaður til viða í landinu til þess að láta níu ára skólaskylduna taka gildi í haust. Það hefur ekki tekist að framkvæma þau lög, sem hér um ræðir, svo hratt að það sé eðlilegt eða mögulegt að þetta ákvæði taki gildi í haust. Enn er þess skylt að geta, að það er nokkur ágreiningur uppi meðal manna í landinu um nauðsyn þess að lögfesta níu ára skólaskyldu, og það segir auðvitað sitt í þessu máli. Og síðast en ekki síst vil ég nefna þau rök, sem ekki eru hvað minnst virði, að ég held að það sé skynsamlegt að tengja afgreiðslu þessa máls — að láta skólaskylduna koma að fullu til framkvæmda — því að nýskipan verði samþ. hér á Alþ. á framhaldsskólastiginu.
Það er í raun og veru efni þessa máls að fresta um eitt ár framkvæmd lagaákvæða um skólaskyldu, úr átta árum í níu. Ég hef talið upp hér í stuttu máli nokkur rök fyrir því. Ég vil geta þess m. a., að mjög nýlega var haldinn fundur í fulltrúaráði Sambands grunnskólakennara og það telur eðlilegt að fresta gildistöku ákvæðisins um skólaskyldu. Ég nefni það sem dæmi um ályktanir í þá átt, sem reyndar eru fleiri. Mér þykir líka rétt að nefna hér bréf sem ég hef fengið frá svokallaðri endurskoðunarnefnd grunnskólalaga, en það er nefnd sem menntmrh. skipaði fyrir ári eða svo til þess að vinna að endurskoðun grunnskólalaganna, eins og reyndar er gert ráð fyrir í lögunum sjálfum að gera skuli. Þessi nefnd er enn að störfum, hefur ekki lokið verki sínu, en í bréfi, sem hún ritaði mér í marsmánuði s. l., leggur hún til að þessu sérstaka ákvæði um níu ára skólaskylduna verði frestað til haustsins 1981. Þetta vil ég nefna til stuðnings því að þetta nái fram að ganga.
Ég skal ekki hafa öllu fleiri orð um þetta nú við þessa umr., herra forseti. Ég vænti þess og legg á það nokkuð mikla áherslu, að sú n., sem fær þetta mál til skoðunar, fjalli um það svo að það sé tryggt, að þetta mál geti gengið fram sem lög á þessu þingi, og ég vona að ekki verði ágreiningur um að svo verði. En till. mín er sú, að þegar þessari umr. er lokið verði málinu vísað til menntmn., og ég vænti þess, að hv. nm. taki þetta mál til skjótrar umr. Og ég endurtek það, að ég tel ákaflega brýnt, eins og sakir standa, að þessi frestun nái fram að ganga. Í því felst þó engan veginn af minni hálfu endilega vísbending um að ég telji að þessu beri að fresta eilíflega. Um það hljóta að verða frekari umr., enda er mér ljóst að á þessu máli eru ýmsar hliðar sem nauðsynlegt er að ræða frekar, en eins og sakir standa tel ég eðlilegast að gildistölu níu ára skólaskyldu verði frestað um ár.