30.04.1980
Efri deild: 72. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2212 í B-deild Alþingistíðinda. (2066)
Umræður utan dagskrár
Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Ég er sannast sagna undrandi á þeim ósæmilegu ummælum hv. fyrirspyrjanda að telja að ég hafi farið með blekkingar og ósannindi í fjölmiðli, sjónvarpi, í gær. Hver einasta tala, sem ég nefndi þar, stendur fyllilega. Ég nefndi þar tvær tölur í sambandi við verðbólgu. Ég sagði að ég vonaðist til þess að hún yrði ekki hærri á þessu ári en 40%, a. m. k. yrði hún ekki yfir 45%. Síðari talan er byggð á þessum áætlunum, sem við höfum hér rætt um, frá Þjóðhagsstofnun, sem aftur á móti byggjast á því að verðhækkanir haldi áfram eins og verið hefur, en ætlunin er í þess stað að breyta til um vinnubrögð.
Út af því, að í fjölmiðlum var sagt frá því að á þessu ári mundi verðbólgan verða 55% og Þjóðhagsstofnun borin fyrir því, sagði ég auðvitað, sem rétt er, að þetta væru ekki réttar tölur. Hv. þm. veit ákaflega vel að þessar tölur, sem Þjóðhagsstofnun hafði nefnt í sinni áætlun, leiða til annarra talna. Þær leiða til þess að frá nóv. í fyrra til nóv. er verðbólga 47.8%, en miðað við ársbyrjun til ársloka 45%.
Dagblaðið Vísir, sem birti þessa frétt og hv. fyrirspyrjandi er heimildarmaður að, segir svo, eins og ég las upp áðan, að spá Þjóðhagsstofnunar sé 55% óðaverðbólga á þessu ári. Síðan eru taldar þessar tölur og sagt að niðurstaðan sé þessi. Þetta er alrangt, eins og ég hef gert hér grein fyrir og þarf ekki að fara um það fleiri orðum.
Hins vegar er það næsta furðulegt, að hv. þm. skuli ekki doka við með umr. eins og þessar um erlendar lántökur þangað til lánsfjáráætlun liggur fyrir. Þá er hægt að ræða hvort erlendar lántökur séu of miklar eða ekki.1 stað þess fer hv. þm. af stað utan dagskrár, örfáum dögum áður en lánsfjáráætlun verður lögð fyrir þingið, býr sér til tölu um erlendar lántökur, sem stjórnin hafi ákveðið, og byggir svo áætlanir sínar og ádeilur út frá því. Það væri auðvitað full ástæða til að spyrja þennan hv. þm., ef honum finnst þær lántökur verða of miklar sem fyrirhugaðar eru, hvort hann ætli að leggja til að lækkaðar séu lántökur t. d. til Hitaveitu Akureyrar, svo að ég nefni eitt dæmi. Þegar hann er að deila á ríkisstj. fyrir að stefna í of miklar lántökur væri eins gott að fá fram hvaða framkvæmdir það eru sem hv. þm. vill fresta eða hvað hann á við með þessu eða hvort þetta er bara innantómt tal.
Varðandi hins vegar umr. um erlendar lántökur og framkvæmdir er sjálfsagt að bíða þess að málið komi formlega til umr. á þingi.