30.04.1980
Efri deild: 72. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2214 í B-deild Alþingistíðinda. (2068)

Umræður utan dagskrár

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Það var eiginlega aðeins eitt atriði sem ég vildi leiðrétta í seinni ræðu hæstv. ráðh. Hann sagði að ég hefði verið heimildarmaður dagblaðsins Vísis að þeirri frétt sem birtist á forsíðu í blaðinu. Þetta er ekki rétt. Dagblaðið Vísir hafði þetta eftir mér úr ræðu minni sem ég flutti við útvarpsumr., og var ég ekki að öðru leyti heimildarmaður þess blaðs. Það kemur ekki fram í fréttinni, sem ég viðurkenni að er villandi, að þarna er miðað við meðaltalsverðbreytingu milli ára. En ég ítreka það, af því að mér varð það á í messunni áðan að segja að fjárlögin væru gerð upp á 47% meðalverðbreytingu milli ára 1979 og 1980, að rétta talan er 46.5%, og þessi meðaltalshækkun er komin upp í 53–55% eftir þær upplýsingar sem hér hafa komið fram. Þetta getur hæstv. ráðh. staðreynt og ég get sent honum plögg um það á hverju fjárlög eru byggð að þessu leyti. Þetta er sú tala sem við fjvn.-menn fengum um meðalverðbreytingu milli áranna, 46.5%. Ég sagði víst 47 áðan, en þá leiðrétti ég það. Þetta er sem sagt hærri tala en hæstv. forsrh. talaði um sem hækkun á vísitölu á þessu ári, en þá var hann að tala um annað en ég. Ég vil benda honum á að við erum að tala þarna um tvo ólíka hluti. Hann virðist ekki skilja það.

Hann gerði líka aths. um að ég væri að tala um þetta greiðslubyrðarmál utan dagskrár nú. Ég gerði það einfaldlega vegna þess að ég gerði mér ekki miklar vonar um að geta átt orðastað við einn eða annan ráðh. um það þegar lánsfjáráætlun verður til umr. hér. Það hefur oftast verið svo, að hæstv. ráðh. hafa ekki látið svo lítið að vera viðstaddir umr. í hv. deildum Alþingis undanfarið, og ég býst ekki við að það verði mikil breyting á því. Mér þótti þetta svo alvarlegt mál að ég minnti á það í útvarpsumr., en þá var ekki á það minnst af hæstv. viðskrh. sem talaði á eftir mér. Mér þótti þetta aftur á móti svo alvarlegt mál að ég vildi vekja athygli á því hér.

Að lokum vil ég þakka hæstv, ráðh. fyrir svörin, þó að mér hafi fundist málflutningur hans heldur strákslegur með köflum og kannske gæta of mikillar reiði. En að lokum vil ég óska honum til hamingju að ætla að taka upp meiri verðlagshöft en þekkst hafa á Íslandi.