30.04.1980
Efri deild: 72. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2215 í B-deild Alþingistíðinda. (2070)

5. mál, lántaka Bjargráðasjóðs

Frsm. (Guðmundur Bjarnason):

Herra forseti. Þegar frv. þetta, sem hér liggur fyrir til umr., var til 2. umr. í deildinni gat ég um að fram hefðu komið upplýsingar og beiðnir um að ábyrgðarheimildin vegna lántökunnar yrði hækkuð úr 850 millj. kr. í 1500 millj. kr. Ég óskaði eftir því, að fjh.- og viðskn. d. kæmi saman til fundar til að fjalla um það mál, og var það gert í morgun.

Á þann fund var kallaður Magnús E. Guðjónsson framkvæmdastjóri Bjargráðasjóðs til að gera grein fyrir stöðu sjóðsins og greiðsluáætlun fyrir árið 1980. Það kom fram hjá honum, eins og vitað var fyrir, að Bjargráðasjóður þyrfti að taka meiri lán en gert var ráð fyrir til að geta staðið við þessa greiðsluáætlun. Í framhaldi af því varð n. sammála um að leggja til að flutt yrði brtt. við 3. umr. þar sem lagt yrði til að þessar upphæðir yrðu hækkaðar eins og ég gerði grein fyrir áðan.

Brtt., sem er á þskj. 381, hljóðar svo:

„1. gr. orðist svo:

Fjmrh. fyrir hönd ríkissjóðs er heimilt að ábyrgjast með sjálfsskuldarábyrgð lán sem Bjargráðasjóður tekur, allt að 1500 millj. kr. Lánið má vera verðtryggt miðað við lánskjaravísitölu eða jafngildi 1500 millj. kr. í erlendri mynt. Ábyrgðin skal vera með þeim kjörum og skilmálum sem ráðh. ákveður og tekur hún jafnt til greiðslu afborgana, verðtryggingar, vaxta og annars kostnaðar.“

Í greiðsluáætlun Bjargráðasjóðs fyrir árið 1980 kemur m. a. fram, að gert er ráð fyrir að bæta tjón vegna uppskerubrests á kartöflum og veita lán og styrki vegna þessa uppskerubrests að upphæð 230 millj. kr. Í yfirliti, sem lagt var fyrir n., kemur fram að þetta uppskerutjón er reiknað á 440 millj. til 665 millj., eftir því hvaða forsendur eru lagðar fyrir, og sést á því að mikið vantar á að þetta tjón sé að fullu bætt. Voru nm. sammála um að koma þyrfti til meira fjármagn til að bæta þetta tjón betur en greiðsluáætlunin gerir ráð fyrir. N. lagði því til að leitað yrði eftir því við ríkisstj. eða ráðh. að þeir gæfu yfirlýsingu um það, áður en málið yrði endanlega afgreitt frá Alþ., þó það yrði við umr. um frv. þetta í Nd., að reynt yrði að bæta frekar tjónið vegna uppskerubrests á kartöflum en gert er ráð fyrir, svo og að nánari grein yrði gerð fyrir því, hvernig fyrirhugað er að lánskjör verði á þessum lánum, annars vegar þeim lánum, sem veitt verða vegna þessa uppskerubrests, svo og öðrum lánum sem Bjargráðasjóður fyrirhugar að veita vegna vorharðinda, heyskorts og annarra búsifja sem hann kemur til með að bæta.

N. leggur sem sagt til að frv. verði samþ. með þeirri breytingu sem flutt er á sérstöku þskj. og ég gerði grein fyrir áðan. Fjarverandi afgreiðslu málsins var Sigurlaug Bjarnadóttir.