30.04.1980
Neðri deild: 66. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2217 í B-deild Alþingistíðinda. (2079)
7. mál, söluskattur
Frsm. meiri hl. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um breytingu á lögum um söluskatt með síðari breytingum, en hér er um það að ræða hvort staðfesta eigi brbl. frá 16. okt. 1979. Þau brbl. fjölluðu um að söluskattur yrði 22 stig í stað 20, en áður höfðu verið sett um það brbl. sem féllu úr gildi þegar Alþ. var rofið. Fjh.- og viðskn. klofnaði í afstöðunni til málsins. Meiri hl. n., ég ásamt hv. þm. Boga Sigurbjörnssyni, Guðmundi J. Guðmundssyni og Karvel Pálmasyni, leggur til að brbl. verði staðfest. Það er gert ráð fyrir þessari tekjuöflun í þeim fjárlögum, sem Alþ. hefur þegar samþ., og því nauðsynlegt að framlengja þá tekjuöflun, sem hér er gert ráð fyrir, eigi þau fjárlög að standast.