30.04.1980
Neðri deild: 66. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2226 í B-deild Alþingistíðinda. (2098)
131. mál, flugvallagjald
Frsm. 2. minni hl. (Karvel Pálmason):
Herra forseti. Hér er á ferðinni enn eitt skattahækkunarfrv. hæstv. ríkisstj. og ekki það skásta að mínu viti, þó að upphæðirnar sem slíkar séu kannske minni en í mörgum öðrum tilfellum. Á þskj. 374 er nál. frá 2. minni hl. fjh.- og viðskn. þar sem fram kemur sú afstaða Alþfl. að hann er andvígur þeirri hækkun sem frv. gerir ráð fyrir, bæði að því er varðar hækkunina á flugvallagjaldinu á innanlandsflugi og leggur til að það verði gersamlega fellt niður og einnig að ekki verði jafnmikil hækkun á flugvallagjaldinu að því er varðar utanlandsflugið.
Það má út af fyrir sig til sanns vegar færa, að 94 millj. kr. skipti ekki sköpum, t. d. fyrir árið 1979, en sú var gjaldtaka af innanlandsflugi. Eigi að síður er óréttlæti að taka gjald af þeim farþegum úti í dreifbýlinu sem fyrst og fremst og kannske einvörðungu langtímum saman úr árinu byggja á flugsamgöngum við hina ýmsu staði. Hér er því óréttlátur skattur á þessa þjóðfélagsþegna, og er það í sjálfu sér „prinsip“-afstaða að ekki eigi að leggja hann á. Það má raunar líka segja að mikil skattheimta með flugvallagjaldi af flugferðum til útlanda dragi úr því, að utanlandsferðir geti orðið svokölluð almenningseign hjá fólki og það geti leyft sér að ferðast til útlanda.
Um þetta geta verið skiptar skoðanir. En í alla staði er óréttlætanlegt að leggja þessar auknu byrðar, þó að ekki séu miklar í fjármunum talið, á dreifbýlisfólk sem byggir samgöngumöguleika sína fyrst og fremst og í mörgum tilfellum einvörðungu stóran hluta úr árinu á flugsamgöngum.
Það er því flutt brtt. á þskj. 375 þess efnis, að í stað 8800 kr. flugvallagjalds á utanlandsflugið komi 7400, það verði ca. 35% hækkun á þessu gjaldi á utanlandsfluginu, en ekki 60% eins og frv. gerir ráð fyrir.
Í öðru lagi er gert ráð fyrir að gjaldið verði fellt niður af innanlandsfluginu. Ég þarf ekki að hafa fleiri orð um hver ástæðan er fyrir þeirri brtt.
Þá er gert ráð fyrir að síðasti málsliður fyrri mgr. 2. gr. verði felldur niður, en hann sýnist mér vera einvörðungu um það að ekki megi sjást þetta sérgreinda gjald á farseðlinum, það verði að felast. Það er óeðlilegt að mínu viti að slík skattheimta, sé hún á annað borð, sé ekki sýnileg öllum sem hlut eiga að máli, og því óeðlilegt að ætlast til þess að þetta sé ótilgreint í verði miðans. Þetta á að aðgreinast.
Í síðasta lagi er svo lagt til að síðari mgr. í 2. gr. laganna falli niður, en hún er um að ráðh. sé heimilt að hækka gjaldið í réttu hlutfalli við þá hækkun sem kann að verða á vísitölu byggingarkostnaðar. Hér er greinilega verið til frambúðar að festa þessa gjaldtöku og skattheimtu. Það er óeðlilegt, því að eins og áður hefur komið fram er hún að okkar áliti ranglát að öllu leyti gagnvart innanlandsfluginu og verður að sjálfsögðu að stemma stigu við eða halda í hækkanir á þessum skatti að því er varðar utanlandsflugið. Það er því óeðlilegt að gert sé ráð fyrir að ráðh. hafi heimild til að hækka þetta gjald í hlutfalli við það sem vísitala byggingarkostnaðar hækkar.
Þetta eru þær brtt. sem eru fluttar af hálfu 2. minni hl. fjh.- og viðskn. á þskj. 375.
Það mætti margt fleira um þetta og önnur skattheimtumál hæstv. ríkisstj. segja, en nú er hart keyrt á það af hv. stjórnarliðum að mesta skattpíningarmálið hljóti hér afgreiðslu sem sérstök afmælisgjöf hæstv, ríkisstj. og þá fyrst og fremst Alþb. til launafólks og lágtekjufólks áður en hátíðisdagur verkalýðsins rennur upp, og ég skal ekki, nema þá sérstakt tilefni gefist til, reyna frekar að tefja fyrir því eða verða þröskuldur í vegi þess að þetta að því er virðist sérstaka réttlætismál hæstv. ríkisstj. verði hér afgreitt áður en 1. maí rennur upp. Ég mun því ekki hafa fleiri orð um þetta frv., a. m. k. ekki að sinni.