30.04.1980
Neðri deild: 66. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2232 í B-deild Alþingistíðinda. (2103)

131. mál, flugvallagjald

Garðar Sigurðsson:

Herra forseti. Mér er ljúft að stytta mál mitt ef forseti óskar eftir því, en ég fer ekki eftir fyrirskipun formanns þingflokks Framsfl. í þeim efnum og vona að ég eigi það ekki eftir.

Ég ætlaði að vera ósköp stuttorður, en ég botnaði satt að segja ekkert í því sem hv. þm. Pétur Sigurðsson, 1. landsk. þm., æsti sig sem mest út af. Þetta er dagfarsprúður maður en satt að segja bjóst ég hreinlega við sprengingu þegar hann hafði talað í rúmar 3 mínútur. Þessi hv. þm. sagði að ég hlyti að skilja þetta og hitt, ekki síst vegna þess að ég talaði tungum. En hvað segir ekki Páll frá Tarsus í Korintubréfinu: „Þótt ég talaði tungum manna og engla, en hefði ekki kærleika, yrði ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla.“ — Áframhaldið ætti Pétur kannske að kynna sér, sem er gott og gamalt ljóð. Einmitt þegar hið rétta hugarfar vantar er ekki nægilegt að tala tungum.

Ég skildi alls ekki hvað maðurinn var að fara þegar hann var að lýsa því voðaástandi sem hefði ríkt þegar þessi skattur var lagður á. Auðvitað var skelfilegt ástand í þjóðfélaginu þegar hægri stjórnin undir stjórn Geirs Hallgrímssonar, fyrrv. hæstv. forsrh., var hér við völd. Það er auðvitað skelfilegt fyrirbæri í sjálfu sér og jaðrar við náttúruhamfarir. Það er rétt. En ég vil bara segja það einu sinni enn, að sú hækkun, sem nú er lögð til, er aðeins verðlagshækkunin á milli ára og það er ekki óeðlilegt að gjaldið fylgi verðlagsþróun.

Ég skal viðurkenna það fyrstur manna, að þessi skattur hér innanlands er leiðinlegur skattur, þegar menn sjá þessa viðbót ofan á flugfargjaldið sitt hér innanlands, ekki síst með tilliti til þess að það kemur tiltölulega lítið fé út úr þessu. En þetta eins og annað í skatta- og álögukerfinu hjá okkur er fyllilega ástæða til að skoða betur. Ég held þó að menn ættu að gæta sín að taka ekki of mikið upp í sig, þegar þeir ræða mál eins og þetta, jafna þessu við átthagafjötra. Það er hræðilegt orð. Við vitum hvað átthagafjötrar voru og eru sums staðar enn, því miður. Að kalla það átthagafjötra að greiða til uppbyggingar flugvallakerfisins 650 kr. þegar menn fljúga á milli landshluta jaðrar við að vera ósæmilegt.

Við getum skammað hér hver annan eins og okkur gott þykir, en ég held að það sé best að það sé allt í hófi, og við eigum að tala um þetta málefnalega, en ekki með einhverjum eldgömlum tilvitnunum um hvað hefði skeð í þessari og hinni stjórninni, því að við vitum að jafnvel þó að menn ætli að reyna að slá sér upp á því að vera á móti sköttum, sem alltaf eru óvinsælir, er það ekki skynsamlegt af skynsömum mönnum að beita því um of.

Ég vil neita því, að ég hafi verið að bera hv. sjálfstæðismönnum á brýn að þeir hafi verið að svíkja kosningaloforð sín. Mér kemur það bara ekkert við. En sem betur fer, vil ég segja, heppnast þeim ekki að koma kosningaloforðum sínum öllum í framkvæmd.