30.04.1980
Neðri deild: 67. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2263 í B-deild Alþingistíðinda. (2133)
127. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég vil nú taka undir þau ummæli, sem hv. síðasti ræðumaður viðhafði hér áðan, að mönnum ber að varast að taka upplýsingar frá Þjóðhagsstofnun of hátíðlega vegna þess að í sumum dæmum er þar um hreinar ágiskanir og áætlanir að ræða, sem hvorki styðjast við nógu sterk né gild rök, þótt hinar þýðingarmestu ákvarðanir séu á slíkum áætlunum byggðar. Er í þeim efnum skemmst að minnast ýmissa ákvarðana sem teknar hafa verið í sambandi við atvinnuvegina, því að við vitum að það, sem Þjóðhagsstofnun hefur t. d. sagt um stöðu ullariðnaðarins og annað því líkt, er byggt á hreinum ágiskunartölum og er ekkert raunhæft í þeim efnum. Og það er einmitt eitt af þeim málum sem ég tel hvað þýðingarmest að átta sig á, eftir hvaða leiðum verður við komið að afla gleggri og betri upplýsinga um stöðu atvinnuveganna á hverjum tíma og hvernig að slíkum upplýsingum skyldi unnið. Ég hef grun um það, að Þjóðhagsstofnun mundi kjósa að hafa meira bolmagn til þess að vinna úr slíkum plöggum fyrr en reynslan sýnir að gert hefur verið á undanförnum árum.
Það kom margt mjög athyglisvert fram í ræðu hv. 3. þm. Austurl., Halldórs Ásgrímssonar, enda er hann manna kunnugastur skattamálum og vel að sér í þeim, þótt á hinn bóginn kæmi jafnan fram að hann væri að verja vondan málstað, og greip í þeim efnum stöku sinnum til samanburðar sem hann sjálfur veit að ekki var réttur. Þannig getum við t. d. tekið þá fullyrðingu hans, að hann segist algerlega hafna því að um skattahækkanir sé að ræða núna, og spurt hann út í það, á hverju hann byggi slíka fullyrðingu. Það er náttúrlega viðurkennt og við vitum öll að þegar um skattkerfisbreytingu er að ræða, eins og núna, þá hlýtur skatturinn að koma öðruvísi niður en áður. Og vandinn við að taka einstök dæmi er einmitt í því fólginn, að einstök dæmi geta gefið villandi mynd af skattbyrðinni eins og hún verður. Þess vegna er ekki um annað að ræða en að taka þá heildarinnheimtu sem ríkissjóður ætlar sér að fá í sinn hlut. Ef við nú berum tekjuskatt einstaklinga, sem er í fjárlögum þessa árs, fyrir árið 1980, saman við það sem var í fjárlögum ársins 1979, þá kemur í ljós að ríkissjóður ætlar sér tæplega 5 milljörðum meira þótt aðeins sé reiknað með þeirri 45% tekjubreytingu milli ára sem hv. þm. taldi hámark að reikna með til þess að eðlilegur samanburður gæti orðið milli ára. Jafnvel þó við notum hans eigin tölur, þá er þarna um tæplega 5 milljarða viðbót að ræða, viðbótarskattheimtu miðað við það sem var á s. l. ári, og þessi skattheimta yrði 50% meiri eða 7.5 milljarðar, ef reiknað er út frá tölunni 47.5% hækkun skattgjaldstekna milli ára.
Nú get ég alveg tekið undir það með hv. þm., að auðvitað er tekjuskattshugtakið — eftir þeim skattalögum, sem hér er gert ráð fyrir — hjá einstaklingum ekki sambærilegt við það sem áður var, vegna þess að þar er ýmsu sleppt, bæði tekju- og gjaldamegin, svo sem eigin húsaleigu teknamegin, en aftur til frádráttar er sleppt liðum eins og fyrningum á eigin húsnæði, fasteignagjöldum, húseigendatryggingu, viðhaldi o. s. frv. Ég þori að fullyrða það, að þegar þetta dæmi er gert upp í heild út frá tekjuöflunarsjónarmiðum ríkissjóðs, þá hagnast ríkissjóður á þessari breytingu, eins og menn geta rétt séð á svipstundu, með því að sá frádráttur, sem húseigendur höfðu af viðhaldi á sínu eigin húsnæði, kom að mestu leyti fram í lækkun á hæsta skattþrepinu, þar sem mest munaði um það. Þess vegna er enginn vafi á því, að þessi breyting hefur a. m. k. ekki svipt ríkissjóð miklu í teknalegu tilliti. Miklu fremur gæti ég trúað hinu, ef þetta dæmi væri gert upp, að ríkissjóður hagnaðist heldur á þessari breytingu.
Það er líka annað atriði í þessu sambandi, sem menn skyldu gæta að. Það er náttúrlega gott að geta talað um það, að launþegar græði á 10% frádrætti frá tekjuskattsstofni þar sem ekki var um slíkan fastan frádrátt að ræða á s. l. ári. En til þess að svara þessu hefur hæstv. ríkisstj. hækkað skattþrepin um 5% til þess að ná þessu öllu til baka og meiru til. Eins og ég hef áður sagt hér í þessari d., þá er fastur frádráttur launamanna 4% í lífeyrissjóð og 1% félagsgjald, þannig að hver einasti launamaður í landinu hefur a. m. k. 5% frádrátt, svo að þessi 5% sem til viðbótar koma eru náttúrlega, eins og ég hef áður sagt, gagnvart meðallaunamanni rétt eins og hann skuldaði hálfa milljón yfir árið. Það er nú ekki meira, auk þess sem þessi frádráttur er notaður sem réttlæting fyrir því að hækka tekjuskattsþrepið um 5%.
Þá kem ég að einu atriði, sem ég vildi ræða örlítið við hæstv. forsrh. úr því að hann gerði deildinni þann heiður að koma hér í kvöld. Hann sagði í sjónvarpsviðtali í gærkvöld að tekjuskattur mundi lækka, sérstaklega hjá þeim sem hefðu almennar launatekjur og lægri. Nú hef ég fengið um það upplýsingar hjá kjararannsóknarnefnd,hverjarvorumeðalatvinnutekjurverkamannsáárunum 1978, 1979 og 1980. Ég hef á hverju einasta ári reiknað þessar atvinnutekjur eftir þeim skattstigum sem hafa verið í gildi á viðkomandi árum, bæði hjá kvæntum verkamönnum og ókvæntum, og niðurstaðan af þessu dæmi er sú, að hlutfallslega hafa beinir skattar hækkað á árinu 1979 frá því sem var á árinu 1978 og á árinu 1980 eftir þessum lögum frá því sem var í fyrra, gagnstætt því sem þessi hæstv. ráðh. sagði hér á Alþ. fyrir hálfum mánuði og gagnstætt því sem hann sagði í sjónvarpinu í gærkvöld. Eða hvernig ber að skilja orðið almennar launatekjur? Væri ósanngirni að reikna sem svo, að þarna væri átt við meðalatvinnutekjur verkamanns? Hið sama kæmi raunar út úr dæminu þótt við tækjum meðalatvinnutekjur iðnaðarmanns, meðalatvinnutekjur verslunarmanns. Hér er sem sagt um blekkingar að ræða, enda er það augljóst af því, að innheimtur tekjuskattur hjá ríkinu, það sem ríkið ætlar í sinn hlut af tekjuskatti, það hækkar meira en nemur verðbólgunni milli ára. Hv. stuðningsmenn þessarar ríkisstj. hafa reynt að verja sig með því, að tekjuskatturinn sé þannig upp byggður að ef menn hafi litlar launatekjur, þá greiði ríkið fyrir menn útsvar og sjúkratryggingagjald og þar fram eftir götunum. Þetta á náttúrulega við í algerum undantekningartilvikum og ekki um það sem maður kallar almennar atvinnutekjur, en sleppum því. Sú tala um tekjuskattinn, sem er í fjárl., er nettótala. Þá er búið að taka þetta allt til greina þannig að þegar við berum skattbyrðina saman, það sem ríkisstj. ætlar sér að ná út úr þessum tekjuskatti, þá skiptir þetta ekki máli. Skattbyrði tekjuskattsins birtist í fjárl. Svo einfalt er það. Og enginn annar samanburður getur verið réttur en sá einn að bera saman þessa heildarniðurstöðu. Og allra síst eftir að fyrir liggur, m. a. frá hæstv. forsrh. og hæstv. fjmrh., að þeir viti nánast ekkert um hvernig þetta nýja skattkerfi kemur út í einstökum tilvikum, hvorki gagnvart launafólki né atvinnurekstrinum. Þá er það heildarskattheimtan sem gefur besta mynd.
Ég sakna þess að hv. 8. landsk. þm., Guðrún Helgadóttir, skuli ekki vera hér inni, en það kom fram hér áðan - hér er hv. þm. kominn og það er mjög gott, — það kom fram áðan í framíkalli hennar við ummælum hv. 3. þm. Vestf., Sighvats Björgvinssonar, framíkalli sem ég vissi nú raunar ekki hvort átti að vera léleg fyndni eða hvernig átti að skilja það, að Bandalag starfsmanna ríkis og bæja væri sammála því skattafrv. sem hér liggur fyrir. Er það rétt skilið? Hún kinkar kolli, ég skil að það þýði já, þó að okkar hugsunarháttur sé 6líkur. Þó getur verið að þetta þýði nei, ég þori ekki að ábyrgjast það. En nú hef ég fyrir því örugga vitneskju, að þetta skattafrv. hefur að vísu verið rætt innan stjórnar BSBR, en því fer víðs fjarri að þar hafi verið gefið grænt ljós á samþykki þess. Hitt liggur hins vegar ljóst fyrir, að stjórn BSRB hefur ekki einungis mótmælt þeirri skatthækkun, sem fólst í hækkun söluskattsins, heldur hefur stjórn BSRB einnig mótmælt hækkun útsvarsins, þeirri hækkun beinna skatta sem þar kom fram. Og augljóst er að sjálfsögðu að hið sama gildir um þær skattahækkanir sem hér eru boðaðar. Í þessu sambandi er einnig nauðsynlegt að hafa það í huga, að alveg síðan á fyrri hluta þessa áratugs, síðan 1973 eða 1974 eða þar um bil, hefur það verið rauður þráður í sambandi við alla samningagerð verkalýðshreyfingarinnar að reyna að knýja á um það við ríkisvaldið að skattheimtan minnkaði. Og það á náttúrlega ekki hvað síst við núna þegar beinir skattar eru komnir upp í nær 65%. Menn gera sér náttúrlega grein fyrir því, að það eru ólíkt meiri kjarabætur í því fólgnar að fá hreinan hagnað í lækkun skattanna heldur en þótt tekjurnar hækki lítils háttar og 65% af þeim séu svo teknar til baka í ríkishítina.
Ég verð nú að segja það í sambandi við þessi kjaramál almennt, að það kom mér afskaplega mikið á óvart þegar ég hlustaði á það í sjónvarpinu í gær hjá hæstv. forsrh., að hann leit svo á að 1% grunnkaupshækkun mundi innan árs jafngilda 1% hækkun verðbólgunnar. Þetta er gagnstætt þeim kenningum sem ég hef heyrt um þetta mál, og væri fróðlegt að fá upplýsingar um það frá hæstv. fjmrh. Ég sakna þess að hann er ekki hér inni, en ég get geymt mér þessa spurningu, ef hann skyldi birtast. En ég sé að formaður Framsfl. er hér viðstaddur og það væri gaman að spyrja hann einnig að því, hvort það sé hans skoðun að 1% hækkun láglaunatekna, 1% grunnkaupshækkun, þýði 1% hækkun verðbólgunnar. Við skulum gá að því, að verkalýðshreyfingin hefur sýnt mikla hógværð nú við þessa samningsgerð. Ég hygg að þess séu fá eða engin dæmi, svo mjög sem kaupmáttur almennra launatekna hefur verið skertur á síðari helmingi ársins 1979 og það sem af er þessu ári. Ætli það megi ekki reikna með því, að kjaraskerðingin bara frá áramótum sé í kringum 2–3% og eitthvað svipuð á síðari helmingi s. l. árs? Það er náttúrlega mjög undarlegt og ég verð að segja að það sé mjög mikil hógværð sem verkalýðshreyfingin sýnir með því að fara eingöngu fram á 5% grunnkaupshækkanir af þeim mönnum sem sjálfir boðuðu samningana í gildi fyrir tveim árum. Og maður verður líka að hafa það í huga og það er skiljanlegt, að ekkert gagntilboð skuli enn hafa borist opinberum starfsmönnum eftir óratíma, ef skilningur ríkisstj. allrar er sá að 1% grunnkaupshækkun handa almennum launþegum í landinu jafngildi 1% verðbólguhækkun. Það er náttúrlega ekki eðlilegt, að menn með slíkan hugsunarhátt sýni þeim mönnum kurteisi sem vinna hjá þeim við hinar opinberu stofnanir né flýti sér að svara þeim, komi með gagntilboð í þeirri vinnudeilu sem þar stendur yfir. En ég leyfi mér að fullyrða að afturhaldsmálflutningur af þessu tagi er aftan úr grárri forneskju og að þvílík ummæli hafa ekki heyrst eftir stjórnmálamönnum í nokkra áratugi, eins og þau að 1% hækkun grunnkaups jafngildi 1% hækkun verðbólgunnar. Og að þetta skuli gerast á sama tíma og Alþb. er valdamesti flokkurinn í ríkisstj. er svo sem eftir öðru í þessu stjórnarsamstarfi.
Ég tek undir það, sem hv. síðasti ræðumaður, Halldór Ásgrímsson, sagði, og vil ítreka það, að það er náttúrlega til lítils að vera með alls konar talnaleik í sambandi við það frv. sem hér liggur fyrir. Eftir þeim viðræðum, sem ég hef átt bæði við endurskoðendur og starfsmenn á skattstofum, þá eru þeir mjög uggandi um þá niðurstöðu sem verður út úr þessu skattafrv. eins og það liggur fyrir. Og ýmsir hafa haft við orð að meðal launþega muni verða mikil ólga þegar skattskrárnar verða lagðar fram, enda næsta spaugilegt þegar hæstv. fjmrh. var að gefa það í skyn hér í gær, að allir muni verða ánægðir með gjöldin sín í sumar.
Það er eftirtektarvert, að í þeim upplýsingum, sem borist hafa frá Þjóðhagsstofnun, er gert ráð fyrir að á þessu ári minnki þjóðartekjur á mann um 1% á árinu. Ég hef ekki orðið þess var hér á Alþ. að ríkisstj. hafi af þessum sökum boðað neinar sérstakar aðgerðir til eflingar atvinnurekstrinum. Þvert á móti hafa klyfjarnar á hann verið þyngdar. Það er ekki að sjá að bjart sé fram undan í sumum greinum, meira að segja um stöðnun að ræða, og menn óttast atvinnuleysi í sumum greinum. En á sama tíma og þjóðartekjur á mann minnka um 1%, þá eykst samneyslan um 2%. Á sama tíma og hver einstakur hefur minna til skiptanna tekur ríkissjóður meira til sin. Það er náttúrlega ekki við því að búast við þvílíkar aðstæður að greiðlega gangi að ná samstöðu eða samningum á vinnumarkaðinum, allra síst þegar viljaleysi ríkisstj. til þess að mæta sanngjörnum kröfum launafólks er jafnafgerandi og raun ber vitni.