30.04.1980
Neðri deild: 67. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2269 í B-deild Alþingistíðinda. (2148)
131. mál, flugvallagjald
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Það liggur ljóst fyrir að þingflokkur sjálfstæðismanna hefur samþykkt að standa gegn frekari skattaálögum á þjóðina, hvort sem felst í þessu gjaldi, sem við erum nú að greiða atkv. um, eða hækkuðum tekjuskattsstiga. Þau orð, sem hér hafa fallið af hálfu Alþfl.-manna, eru merkileg að því leyti til, að forsaga þeirra er 25–35 milljarða kr. skattahækkun á þjóðina. Eftirfari þeirrar skattahækkunar er 25–30 milljarða kr. skattahækkun núv. vinstri stjórnar sem tók við af þeirri vinstri stjórn sem Alþfl. veitti lífshjálp í 13 mánuði. Það liggur ljóst fyrir, að Sjálfstfl. vill ekki bera ábyrgð á aukinni skattaálagningu á þjóðina, og með tilvísun til þess segi ég nei.