01.05.1980
Neðri deild: 68. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2271 í B-deild Alþingistíðinda. (2153)

127. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Atkvgr., sem nýlega fór fram um mál þetta hér í d., leiddi þá athyglisverðu staðreynd í ljós, að ríkisstj. hefur ekki þingmeirihluta lengur í Nd. Alþingis fyrir stefnu sinni í skattamálum. Það er öllum dm. ljóst og hefur komið fram að hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson, Alþb.-maður og stuðningsmaður ríkisstj., hefur gefið yfirlýsingu hér í þd. um að hann sé andstæðingur þeirra skattahækkana sem ríkisstj. er nú að framkvæma. Þetta korn fram við þessa afgreiðslu með þeim hætti, að hv. þm., sem er fulltrúi Alþb. í fjh.- og viðskn. þessarar d. sem hefur fjallað um þetta skattstigafrv., tók ekki þátt í störfum n. Hann var ekki viðstaddur þegar n. afgreiddi álit sitt á frv. og hafði þá ekki fjarvistarleyfi. Hann hefur ekki sést hér inni í þingsal í dag og hefur þó verið í húsinu. Hann hefur ekki tekið þátt í umr. um málið og hann var fjarstaddur atkvgr. án þess að hafa fjarvistarleyfi. Aðeins 20 dm. voru reiðubúnir til þess, þegar á átti að herða, að styðja ríkisstj. í þessu máli, og það hefði ekki nægt hæstv. ríkisstj. til að fá málið afgreitt, ef stjórnarandstaðan hefði ekki staðið við loforð sitt við ríkisstj. um að standa ekki í vegi fyrir því að hægt væri að afgreiða þetta mál á þessum tíma, ef stjórnarandstaðan hefði brugðið á það ráð að mótmæla vinnubrögðum ríkisstj. og því, að einn af þm. stjórnarliðsins, sem er andvígur ríkisstj. og skattastefnu hennar, skuli komast upp með það að fá sér frípassa frá slíku stórmáli, sem hann hefur tekið þátt í ari álykta gegn í stjórn Verkamannasambands Íslands, með því að bregða á það heldur ómerkilega ráð að þora ekki að koma hér inn fyrir dyr í sölum Alþingis í dag. Stjórnarandstæðingar hefðu getað mótmælt þessum vinnubrögðum með því að taka ekki frekar þátt í umr. eða atkvgr. og þá kæmist ríkisstj. ekki áfram með málið. Það eina, sem bjargar hæstv. ríkisstj., er að stjórnarandstaðan sýnir þann drengskap að standa við samkomulag og loforð sem hún hefur gefið hæstv. ríkisstj. Ef stjórnarandstaðan brygði á það ráð að mótmæla með þeim hætti, sem sérhver stjórnarandstöðuþm. er jafnfrjáls að eins og stjórnarsinninn Guðmundur J. Guðmundsson, að taka ekki þátt í störfum d. eða atkvgr. hér eins og hv. flokksbróðir fjmrh. Ragnars Arnalds, hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson, hefur gert, ef stjórnarandstaðan hefði ætlað að fá sér frípassa með sama hætti og hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson, þá væri hæstv. ríkisstj. komin í sjálfheldu og kæmi ekki málum fram hér í d. Þessi hæstv. ríkisstj. taldi sig byrja fyrir nokkrum vikum með 22 þm. á bak við sig í þessari d. Nú standa aðeins 20 eftir og með harmkvælum þó. Ég man satt að segja ekki eftir því, að nokkur ríkisstj. hafi verið jafnfljót að tapa tiltrú — ekki bara innan veggja þingsins, heldur fyrst og fremst utan veggja þess — eins og sú ríkisstj. sem er nú að byrja að syngja sitt síðasta, því að öllum þm. er ljóst, jafnvel þeim sem hreykja sér hvað hæst eins og hanar á haugi í ráðherrastólunum, að jörðin er farin að skjálfa undir þessari ríkisstj.

l. maí, alþjóðlegur baráttudagur verkalýðshreyfingarinnar, er runninn upp. Verkalýðsfólk, m. a. úr Alþb., flokki hæstv. fjmrh., hæstv. viðskrh. og hæstv. iðnrh., er um þessar mundir að undirbúa baráttugöngu 1. maí hér í Reykjavík og víðar með því að mála slagorð og kröfuorð á spjöld til þess að bera í göngunni á morgun. Hv. Alþb. menn hér í þinginu eru einnig önnum kafnir í nótt við framlag sitt til hátíðarhaldanna 1. maí. Framlag þeirra til hátíðarhaldanna 1. maí er þetta skattstigafrv. sem verið er að afgreiða hér, sem að áliti Þjóðhagsstofnunar rýrir kaupmátt almennings í þessu landi um 1.6%, sem að áliti Verkamannasambands Íslands mun torvelda kjarasamningagerð, sem að áliti Verkamannasambands Íslands er þess eðlis að sambandið spyr: Hvernig getur hæstv. ríkisstj. sífellt ætlast til fórna af öllum öðrum þegar hún heimtar ávallt meira í sinn hlut?

Þetta mál er framlag Alþb. til hátíðarhaldanna 1. maí. Þetta frv., sem þá verður væntanlega orðið lög, er veganesti hv. þm. Guðrúnar Helgadóttur í kröfugöngu Bandalags starfsmanna ríkis og bæja hér í Reykjavík á morgun. Þetta er veganestið sem hún hefur með sér eftir næturvinnuna hér á Alþingi. Þetta er veganestið sem hæstv. fjmrh., hæstv. viðskrh. og hæstv. iðnrh. hafa falið henni að flytja íslenskum verkalýð 1. maí.

Það er mjög athyglisvert hvernig komið er fyrir þeim flokki, Alþb., sem áður og fyrr þóttist umfram aðra til þess kominn í stjórnmálin að bera hag hins vinnandi fólks fyrir brjósti. Þegar Verkamannasambandið sendir þessari ríkisstj. álit sitt, sem í er falin harkaleg gagnrýni á stefnu ríkisstj. í skattamálum, sem m. a. að áliti Verkamannasambands Íslands mun torvelda gerð kjarasamninga á vinnumarkaðinum, þá er hrokinn í hinni nýju stétt Alþb., pappírstígrisdýrunum, gáfumannafélaginu, slíkur, að þeir velja aðfaranótt 1. maí til þess að svara Verkamannasambandi Íslands með þeim hætti sem hér er gert. Þetta er þeirra framlag í baráttugöngu verkalýðsins á morgun. Þetta er það veganesti sem hv. þm. Guðrún Helgadóttir og aðrir Alþb.-menn flytja launþegum í þessu landi frá hinni nýju stétt Alþb., frá gáfumannafélaginu, frá pappírstígrisdýrunum, frá hlaupastrákunum úr Framsfl., sem nú ráða ferðinni í þessum áður svo róttæka flokki.

Hlutur Sjálfstfl, í þessu máli er þó sýnu verstur. Hv. þm. Valdimar Indriðason sagði áðan, þegar hann gerði grein fyrir atkv. sínu, að um það, hvernig hann ráðstafaði atkv. sínu í þessu máli, þyrfti hann ekki að taka neinni leiðsögn frá öðrum, heldur færi hann eftir sannfæringu sinni. Þegar hv. þm. bauð sig fram og leitaði eftir stuðningi samborgara sinna lýsti hann því yfir, að sannfæring hans væri þveröfug við það sem hann segir að sé sannfæring sín í dag. Annaðhvort sagði hv. þm. ósatt, skrökvaði vísvitandi í desembermánuði s. l. á framboðsfundum í kjördæmi sínu, þegar hann sagði sína sannfæringu vera þá að afnema alla þá skatta sem ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar hafði lagt á landslýðinn, bauð sig fram til þess að gera það og hét að gera það ef samborgarar hans sæju til þess að hann fengi aðstöðu til áhrifa hér á Alþingi, annaðhvort sagði hv. þm. þá ósatt um sína sannfæringu eða hann segir ósatt um sína sannfæringu núna. Hv. þm. og aðrir flokksbræður hans, sem kjörnir voru til þings í desember á þeim forsendum sem þeir þá settu sér, voru samkv. því kjörnir til þings á röngum forsendum. Þeir sögðu þjóðinni vísvitandi ósatt í desembermánuði s. l. Þegar þeir gengu fram fyrir þjóðina og föluðust eftir stuðningi fólksins, þá sögðu þeir vísvitandi ósatt, þá breyttu þeir þvert gegn sannfæringu sinni, ef nokkuð er að marka það sem þeir segja í dag.

En það er nú einu sinni þannig í pólitík, að það verður ekki bæði sleppt og haldið. Og ég verð að segja eins og er, að hlutur þeirra manna er hörmulegur sem þykjast eiga aðild að tilteknum flokki, taka þátt í störfum hans og stefnumótun, sitja fundi hans, taka þar þátt í umræðum um hvaða afstöðu flokkurinn og þeir, sem flokkinn mynda, eigi að hafa til tiltekinna mála, sitja þar og þegja þunnu hljóði, gera enga tilraun til að hafa áhrif á flokksbræður sína til þess að breyta um skoðun, gera enga tilraun til að láta fram koma að þeir séu annarrar skoðunar en þeirrar sem flokkurinn er að móta, og koma svo, eftir að ákvörðun hefur verið tekin, og segja: Nei, ég er ekki með. Ég er á annarri skoðun — og gera félaga sína þannig ómerka til orðs og æðis. Ég harma það ekki þó svo Sjálfstfl. eigi við slíkt heimilisböl að búa. En furðulegt er innræti þeirra manna, það verð ég að segja, sem geta gert sér þannig leik að því að draga dár að félögum sínum, gera lítið úr þeim og sjálfum sér og flokki sínum, sjálfum sér og samstarfsmönnum sínum til ævarandi háðungar og skammar með framferði sínu hér innan sala Alþingis. Og jafnvel metnaðurinn, jafnvel hrokinn og stoltið, hæstv. landbrh., megnar ekki að fela þetta. Það getur enginn hani galað nógu hátt til þess að kæfa þessar raddir.

Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til þess að bæta mörgum orðum hér við. Það er auðvitað ljóst, að þær skattahækkanir, sem nú er verið að afgreiða, eru afgreiddar á ábyrgð þeirra flokka, sem þeim veita atfylgi, og þá ekkert síður á ábyrgð Sjálfstfl. en annarra, vegna þess að skattstigafrv. og hækkun flugvallagjaldsins og hækkun söluskattsins og hækkun útsvarsins hefðu fallið ef þm. Sjálfstfl., félagar í þingflokki hans, kjörnir til trúnaðarstarfa af kjósendum hans, þátttakendur í stefnumótun hans og störfum, valdir í þingnefndir af þingflokki hans, fullgildir,meðlimir í flokknum: þingflokki, flokksfélögum og öllum stofnunum Sjálfstfl., hefðu ekki orðið þess valdandi að öll þessi mál fengu þann meiri hl. sem til þurfti. Þeirra er ábyrgðin. Sjálfstfl. getur ekki skorast undan því að eiga jafnvel öðrum flokkum fremur ábyrgðina á slíkum afgreiðslum. Því getur hann ekki velt yfir á aðra því að þeir, sem úrslitunum ráða, eru hans menn, fullgildir hans menn, sem sitja í trúnaðarstöðum fyrir þann flokk, bæði innan og utan veggja Alþingis. En furðulegt — ég segi það aftur — er innræti og skapferli þeirra manna sem geta látið sér sæma að leika ekki bara sjálfa sig svo grátt, heldur félaga sína líka.