01.05.1980
Neðri deild: 68. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2274 í B-deild Alþingistíðinda. (2154)
127. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Hv. þm. Sighvatur Björgvinsson upplýsti hér að stjórnarliðið hefði ekki getað fengið þetta frv. samþykkt nú nema með því móti að stjórnarandstaðan — og þar með hann sjálfur — hjálpaði til með því að sækja þingfund. Mér er bæði ljúft og skylt að þakka hv. þm. fyrir þessa aðstoð við að koma þessu frv. fram og sjálfsagt að það komist til skila til þjóðarinnar að það sé honum að þakka að þessi frv. ná fram að ganga. (HBl: Það er nú hægt að bæta úr því enn náttúrlega.)
Hv. þm. réðst hér með illyrðum að vissum þm. Sjálfstæðismanna út af því, að ekki hefði verið staðið við fyrirheit frá því fyrir kosningar um afnám tiltekinna skatta. Þessi ræða hv. þm. og tal þeirra, hans og hv. þm. Vitmundar Gylfasonar og jafnvel fleiri, vekja nokkra furðu. Ég veit ekki betur en um margra ára skeið hafi Alþfl. boðað þá stefnu, flutt um það frv. og till. að lækka og jafnvel afnema tekjuskatt. Ekki síst var það fyrir kosningarnar 1978 sem þessi boðskapur hljómaði. Þeir komust í ríkisstj., þessir hv. þm., og fengu tækifæri til að framkvæma sína stefnu, sem þeir vafalaust hafa fengið þúsundir atkv. út á, að lækka eða afnema tekjuskattinn. Nú skulum við segja að þeir hafi ekki fengið því framgengt að afnema hann eða lækka hann verulega vegna samstarfsmannanna. En þeir létu sér ekki nægja að láta þennan tekjuskatt vera óbreyttan, heldur lögðu sitt lið til að stórhækka hann í valdatíð þeirrar ríkisstj. sem sat á árunum 1978–1979. Hv, þm. Sighvatur Björgvinsson og Vilmundur Gylfason studdu það, greiddu atkv. með því hér á Alþ. og gerðu mögulegt að hækka verulega tekjuskattinn á öllum almenningi, þvert ofan í öll gefin loforð. Ég held að hv. þm. Vilmundur Gylfason hafi einhvern tíma kalla sjálfan sig arkitekt þessa mikla kosningasigurs Alþfl. 1978. Hann stóð ekki að því síður en aðrir flokksbræður hans að gera það mögulegt að hækka tekjuskattinn á fólkinu, þvert ofan í gefin loforð.
Ég verð að segja að það er blöskranlegt að heyra þessa hv. þm. koma hér upp í ræðustól og býsnast yfir því að verið sé að hækka tekjuskatt, segja þeir, sem er hrein blekking því þetta frv. felur ekki í sér hækkun á skattbyrðinni. Mér finnst að þessir hv. þm. ættu heldur að hafa hægra um sig og allra síst að bera brigsl á aðra þm. í þessu sambandi.
En hér hafa nokkrir aðrir þm., m. a. nú í þessum umr. hv. þm. Halldór Blöndal, ráðist á okkur flokksbræður sína, sem stöndum að ríkisstj., fyrir að við höfum tekið þátt í að heita því fyrir kosningar að afnema alla skatta vinstri stjórnarinnar, en ekki staðið við það. Nú vil ég, áður en ég vík að þessu nánar, í rauninni byrja á því að bera af mér sakir, því að hv. þm. dróttaði því að mér að ég hefði verið leiðbeinandi hans í leiftursókninni. Ég vil biðjast alveg undan öllu slíku, að ég beri með leiðbeiningum, ráðum eða einhverri uppeldisstarfsemi varðandi hann nokkra ábyrgð á því sem hann segir eða gerir. En við skulum líta á hvernig staðið hefur verið að þessum fyrirheitum í hinni svokölluðu leiftursókn.
Formaður Sjálfstfl., sem hér talaði áðan, gerði í umboði forseta Íslands tilraunir til stjórnarmyndunar á s. l. vetri. Það tók að vísu alllangan tíma áður en nokkrar tillögur væru lagðar fram um stjórnarmyndun. Loksins kom þó frá honum eitt plagg þar sem settar voru fram ýmsar hugmyndir varðandi stjórnarmyndun. Í þeim hugmyndum formannsins var að vísu gert ráð fyrir nokkurri lagfæringu eða lækkun á tekjuskatti. En þessar till. voru þeim annmarka háðar, að þær byggðust á því að ríkissjóður yrði í ár rekinn með verulegum halla, eins og m. a. kom fram í umsögn Þjóðhagsstofnunar um þær hugmyndir. Með þessu, að leggja hugmyndir eða till. varðandi stjórnarmyndun fyrir aðra flokka sem fólu í sér greiðsluhalla hjá ríkissjóði á árinu, var ekki aðeins farið inn á hættulega braut, því að eitt það hættulegasta í sambandi við viðnám gegn verðbólgu er að halda áfram að reka ríkissjóð með halla og láta Seðlabankann prenta þeim mun fleiri seðla. Þessar hugmyndir voru einnig brot gegn einu grundvallaratriði í stefnu Sjálfstfl. fyrr og síðar: að reka ríkissjóð hallalausan bg helst með greiðsluafgangi. Þarna var sem sagt minnst á nokkra tekjuskattslækkun, en í þessum hugmyndum formannsins var ekki minnst á það einu orði eða gerðar nokkrar till. um að allir skattar vinstri stjórnar Ólafs Jóhannessonar yrðu felldir niður. Það láðist alveg að minnast á þá, með þessari einu undantekningu varðandi tekjuskattinn.
Mér finnst það sannast sagna koma úr hörðustu átt, þegar þessi hv, þm. og liðsmenn hans ráðast nú að þeim sjálfstæðismönnum, sem standa að núv. ríkisstj., með ásökunum og brigslyrðum um að þeir séu að svíkja kosningaloforð með því að beita sér ekki fyrir því að fella niður alla skatta sem stjórnin 1978–1979 lagði á, því að í þessum stjórnarmyndunartilraunum formanns Sjálfstfl. hvarf hann sjálfur frá því og gerði ekki till. um það og virðist ekki hafa dottið í hug að setja það skilyrði fyrir þeirri stjórnarmyndun sem hann var að reyna.
Það frv., sem hér liggur fyrir, hefur verið afflutt kirfilega, eins og við höfum heyrt hér. Hvað er hér um að ræða? Það er um að ræða í þessu frv. fyrst og fremst breytingar á skattstiga eða skattprósentum í gildandi skattalögum frá 1978 sem ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar beitti sér fyrir og fékk sett. Þessum skattaprósentum í því frv. varð að breyta vegna þess að þau skattalög, sem nú verður farið eftir við álagningu í fyrsta sinn, voru byggð á staðgreiðslu skatta sem ekki hefur komist á. Þess vegna varð að breyta þessum prósentum. Það er meginefni þessa frv.
Ég skal ekki fara frekar hér út í áhrif og efni þessa frv. En ég vil fullyrða eitt: að skattalögin, þessi sem við erum nú að afgreiða, breytingar á skattalögunum frá 1978, þýða ekki aukna skattbyrði frá því sem orðið hefði samkv. skattalögunum frá 1978, sem sett voru fyrir forgöngu ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar. Það er alrangt að hér sé um þyngingu á skattbyrði að ræða. Það var ljóst að samkv. þeim lögum mundu skattar hækka og það verulega á vissum hópi manna, og það fór ekkert leynt, að vegna þess að tekin yrði upp sérsköttun hjóna og 50% afsláttur af tekjum útivinnandi eiginkonu væri felldur niður mundu skattar hækka samkv. þeim lögum óbreyttum á hjónum þar sem bæði hefðu verulegar tekjur. Það verður eins samkv. þessu frv. sem hér liggur fyrir, að þessi skipulagsbreyting leiðir til skattahækkunar á þessum tiltekna hópi gjaldenda. Hins vegar er það líka staðreynd, að á hinum lægri tekjum fjölskyldufólks verður skattbyrðin léttari nú en hefði orðið samkv. þessum skattalögum frá 1978.