03.05.1980
Sameinað þing: 51. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2293 í B-deild Alþingistíðinda. (2165)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Pétur Sigurðsson):
Mér hefur borist svo hljóðandi bréf frá Svavari Gestssyni, 2. þm. Reykv.:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sinnt þingstörfum um sinn leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Reykjavík, Guðrún Hallgrímsdóttir verkfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.
Garðar Sigurðsson,
forseti Nd.“
Guðrún Hallgrímsóttir hefur setið á þingi áður og kjörbréf hennar verið athugað og býð ég hana velkomna til áframhaldandi starfa.