05.05.1980
Efri deild: 75. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2311 í B-deild Alþingistíðinda. (2187)
83. mál, Heyrnar- og talmeinastöð Íslands
Frsm. (Karl Steinar Guðnason):
Herra forseti Heilbr.- og trn. hefur fjallað um frv. til l. um Heyrnar- og talmeinastöð Íslands og fengið umsagnir fjárlaga- og hagsýslustofnunar og Tryggingastofnunar ríkisins. Jafnframt kölluðum við til ráðuneytis Birgi Ás Guðmundsson talkennara.
Nefndin var sammála um að mæla með samþykkt frv. með þeim breytingum sem fluttar eru á þskj. 419. Þær brtt. eru fjórar.
Í 1. lið er gerð tillaga um að breyta orðinu „uppeldisfræðingur“ í: taluppeldisfræðingur.
Við 5. gr. bætist: Í samræmi við hliðstæðar greiðslur almannatryggingalaganna. Hljóðar þá mgr. þannig: „Ráðh. setur að fengnum tillögum stjórnarstofnunarinnar reglur um þátttöku ríkisins í kostnaði vegna slíkra tækja í samræmi við hliðstæðar greiðslur almannatryggingalaganna.“
Þetta er gert til þess að ekki skapist misræmi í greiðslum til hinna ýmsu þátta et bættir verða.
Við 6. gr. bætist: og skal sú gjaldskrá vera í samræmi við gjöld fyrir aðra veitta sérfræðiþjónustu. Hljóðar greinin þá þannig: „Að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar skal ráðh. heimilt að setja með reglugerð gjaldskrá fyrir veitta þjónustu stöðvarinnar og skal sú gjaldskrá vaxa í samræmi við gjöld fyrir aðra veitta sérfræðiþjónustu.“
7. gr. breytist á þann veg: Í stað orðanna „Stofnunin skipuleggur ferðir sérfræðinga“ verði upphaf greinarinnar“ þannig: Stofnunin skipuleggur ferðir starfsmanna sinna. — Það eru fleiri en sérfræðingar sem þarna skulu starfa og þykir þetta víðtækara orðalag.
N. leggur til, eins og sagði áðan, að frv, verði samþ. með þessum brtt.