05.05.1980
Efri deild: 75. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2328 í B-deild Alþingistíðinda. (2196)
18. mál, öryggi á vinnustöðum
Karl Steinar Guðnason:
Eins og ég sagði áðan er ég samþykkur þeim brtt. sem komið hafa fram, en ég tel að við þurfum að athuga mjög gaumgæfilega ef við fellum niður síðasta málslið 77. gr., þar sem segir:
„Það, sem á kann að vanta, að framangreindir tekjustofnar nægi til þess að standa undir rekstrinum, greiðist úr ríkissjóði.“
Ef við fellum þetta niður verðum við að gera það með það í huga að Vinnueftirlit ríkisins verði ekki sett í fjárhagslegt svelti og þessi lög verði um leið gerð að markleysu, en vissulega er hætta á því ef stofnunin fær ekki næga tekjustofna. Ég tel að með samþykkt þessa frv. sé verið að taka þátt í byltingu á sviði þessara mála og þess þurfi að gæta að í komandi fjárlögum, næstu fjárlögum, verði stofnuninni séð fyrir fjármagni er nægi til að sinna þeim verkefnum sem um er að ræða.
Það kom fram áðan og hefur víða komið fram í umr. um frv., að hér sé verið að stofna til mikils bákns, hér sé um að ræða mikla útþenslu á ríkisapparatinu. Ég tel að það sé hinn mesti misskilningur, því að það, sem hér er fjallað um, er til víða í kerfinu. Einhver aukning verður, en það er hert á öllum atriðum og starfsemin gerð virkari með því að miðstýra núverandi starfsemi.
Ég endurtek, að ég vona að við næstu fjárlagagerð verði séð fyrir því að niðurfelling á þessu ákvæði verði ekki til að draga úr gildi stofnunarinnar.