05.05.1980
Neðri deild: 69. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2332 í B-deild Alþingistíðinda. (2209)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Garðar Sigurðsson):
Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sinnt þingstörfum um sinn leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1.. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Sigurgeir Bóasson skrifstofustjóri í Bolungarvík, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Steingrímur Hermannsson,
2. þm. Vestf.“
Þegar hefur farið fram rannsókn kjörbréfs Sigurgeirs Bóassonar og þarf ekki að taka það aftur til skoðunar. Býð ég hann velkominn til starfa.