05.05.1980
Neðri deild: 69. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2333 í B-deild Alþingistíðinda. (2212)

170. mál, viðskiptafræðingar og hagfræðingar

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Eins og fram kom hjá hæstv. menntmrh. hefur þetta mál verið á döfinni árum saman.

Það mun vera svo, að það er orðin nokkuð viðtekin venja í málinu að orðið „viðskiptafræðingur“ standi fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa prófi frá viðskiptadeild Háskóla Íslands, en „hagfræðingur“ standi hins vegar fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa hliðstæðu námi, en við háskóla erlendis. Er að því nokkurt hagræði að svo skuli vera greint á milli. Hins vegar hefur það valdið nokkrum vandræðum þegar við ræðum þessa málnotkun, hvernig eigi að titla þá sem lokið hafa prófi í viðskiptafræði hér, en síðan farið til framhaldsnáms erlendis og t. d. lokið þar magistersprófum. Þar sem slíkt hefur færst í vöxt, sem er vitaskuld af hinu góða, hefur nokkur ruglingur komist að varðandi þessar nafngiftir.

Ég vil taka undir það með hv. þm. Magnúsi H. Magnússyni, að það felast mjög ákveðnar hættur í því að þarna sé einokunarréttur of stífur. Fljótt á litið hallast ég að þeirri breytingu, sem hann talaði fyrir, að það sé ekki talað um „meðmæli“, heldur talað um „umsögn“, en í því felst nokkur blæbrigðamunur. Ég hygg að hér sé verið að benda á blæbrigðamun og sýnist sem sagt í fljótu bragði að hér gæti verið um skynsamlega breytingu að ræða.

Eins vil ég gera aths. við annað í þessu frv. eins og það er lagt fyrir, þ. e. við 1. gr. þess. Þar er sagt að þeir, sem hafi lokið prófi úr viðskiptadeild Háskóla Íslands, þurfi ekki leyfi ráðh., en um það leyfi er nánar fjallað í fyrri hluta þessarar greinar. Hér sýnist mér vera um nokkurt misræmi að ræða, því að mér sýnist að nákvæmlega það sama ætti að gilda um þá sem lokið hafa hagfræðiprófi, þ. e. B. A.- námi í hagfræði við viðurkennda erlenda háskóla eða magistersprófi, eftir því hvað við leggjum að jöfnu við hliðstæð próf hér heima. Mér finnst að viðskiptafræðideildin hér eigi ekki að hafa þau forréttindi sem hér er verið að leggja til. Ef viðskiptafræðingar hér heima þurfa ekki slíkt leyfi ráðh. eiga auðvitað ekki heldur þeir, sem lokið hafa prófi úr viðurkenndum háskólum erlendis, að þurfa sérstaklega að sækja um slíkt leyfi.

Það er út af fyrir sig ákaflega skiljanlegt að starfshópar vilji vernda starfsheiti sitt, en engu að síður er rétt að vara við því að slíkri vernd geta fylgt tilteknar einokunarhættur. Í 3. gr. þessa frv. er reynt að mæta þessari hættu með því að ráðh. skeri úr ágreiningi. Þessi grein virðist þó ganga nokkuð á 2. gr. frv. vegna þess að þar er talað um „meðmæli“ Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga.

Hæstv. ráðh. gerði ráð fyrir því að þetta mál yrði skoðað vandlega í n. Hér er um ákaflega viðkvæmt mál að ræða og það verður vitaskuld gert, en ég taldi rétt að þessar aths. kæmu fram.