05.05.1980
Neðri deild: 69. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2334 í B-deild Alþingistíðinda. (2213)

170. mál, viðskiptafræðingar og hagfræðingar

Menntmrh. (Ingvar Gíslason):

Herra forseti. Þær aths., sem gerðar hafa verið við frv., eiga rétt á sér, eins og ég held að hafi komið fram í ræðu minni áðan. Ég tel að það sé engan veginn gefið að rétt sé að afgreiða lögin svo, eins og þau eru lögð fram í frumvarpsformi, þó að ég hafi eigi að síður lagt þau fram í þessu formi og með þessu efni sem er og þá miðað við lög sem gilda um svipað efni, þó um aðrar starfsstéttir sé að ræða.

Ég get vel fallist á það og hef sjálfur komið auga á að sá réttur, sem Félagi viðskiptafræðinga og hagfræðinga er gefinn í 2. gr., er vissulega mikill og sjálfsagt að athuga betur hvort ástæða sé til að minnka hann eitthvað, draga eitthvað úr honum. Hitt er annað mál, að það er líka dálítið viðurhlutamikið að gefa þessum félagsskap minni rétt en t. d. félögum verkfræðinga, tæknifræðinga og arkitekta, sem vissulega hafa þennan mikla rétt nú þegar. Ég held því að það sé ástæða til þess, jafnvel þó að málið sé sýnt núna, að það sé athugað vel og frá ýmsum hliðum, og að því leyti til get ég vel tekið undir ýmsar þær aths. sem fram komu í ræðum þeirra sem töluðu á eftir framsöguræðu minni.