05.05.1980
Neðri deild: 69. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2335 í B-deild Alþingistíðinda. (2217)
172. mál, Kennaraháskóli Íslands
Menntmrh. (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Þetta frv. er ekki mikið að vöxtum, en það fjallar um nokkrar tilteknar breytingar á lögum um Kennaraháskóla Íslands.
Eins og menn þekkja voru lög um Kennaraháskólann samþykkt hér fyrir um það bil 9 árum. Þeim hefur, að ég held, í engu verið breytt frá því að þau voru samþ. hér vorið 1971. Hins vegar gerðu lögin sjálf ráð fyrir að þau yrðu endurskoðuð tveimur árum eftir að þau tóku gildi og menntmrh. þáv., sem fór með menntamál árið 1973, mun hafa skipað nefnd til þess að annast endurskoðun á þessum lögum. Sú nefnd skilaði áliti í júnímánuði 1976 og síðan var frv., sem nefndin hafði samið, lagt fyrir Alþ. bæði 1976 og aftur 1977–1978, en það hefur ekki hlotið neina afgreiðslu.
Nú telja forráðamenn Kennaraháskólans, rektor og skólastjórn, að það sé mjög brýnt að breyta vissum atriðum, þó í smáu sé og án þess að þeir hafi gert kröfu til þess að það viðamikla breytingafrv., sem endurskoðunarnefndin lagði fram, yrði lagt fram á þessu þingi. Ég hef fallist á það fyrir áeggjan rektors Kennaraháskólans að flytja þetta frv. og kynna þessar breytingar fyrir hv. Alþingi.
Það er óhætt að segja að þessar breytingar eru yfirleitt ekki veigamiklar, en þær eiga það sameiginlegt, að þær eru yfirleitt til samræmingar við aðra löggjöf sem komið hefur á þeim tæpu 10 árum sem lögin um Kennaraháskólann hafa staðið. Þetta er sem sagt mest að leiðrétta og samræma Kennaraháskólalögin gildandi löggjöf sem síðar hefur komið fram, eins og t. d. lögum um embættisgengi kennara og reyndar einnig lögum um Háskóla Íslands, að nokkru leyti.
Ég held að það sé ekki þörf á því að fara mjög ítarlega út í þessar breytingar. Ég vænti þess að menntmn., sem trúlega fær málið til athugunar, fari yfir það, kynni sér það og kveðji rektor Kennaraháskólans til umræðna um þessar breytingar. Ég legg að vísu á það nokkra áherslu að málið fái framgang á þessu þingi, en það verður þó að ráðast hvernig til tekst um það. Þ,6 ætti það að geta tekist ef vel er að unnið í n. og ef menn setja sig inn í þessar breytingar.
Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði þessu máli vísað til 2. umr. og menntmn.