05.05.1980
Neðri deild: 69. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2336 í B-deild Alþingistíðinda. (2219)
172. mál, Kennaraháskóli Íslands
Menntmrh. (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Því miður hef ég ekki lögin við höndina, en ég held að þetta, sem hv. þm. var að gera aths. við, sé óbreytt frá því sem verið hefur. Eins og segir í aths. við 1. gr. er lagt til að 1. tölul. 4. gr. standi óbreyttur, og ég held að mér sé óhætt að segja að 1. tölul. sé svona orðaður nú. Þetta er mjög í samræmi við það sem er í háskólalögum. Ég held því að aths. eigi ekki við þannig að ástæða sé til þess að gera mikið úr henni.
En hitt er alveg rétt, að það er sjálfsagt að athuga þetta. Óneitanlega er skólastjórn þarna fengið mikið vald og um það má auðvitað deila hvort svo skuli vera. Persónulega er ég heldur á því að skólastjórnir háskóla, hvort sem það er kennaraháskóli eða annar háskóli, eigi að hafa nokkuð mikið vald og sjálfstæði háskóla, megi gjarnan vera nokkurt. — En mér sýnist að þetta ákvæði sé óbreytt frá því sem verið hefur.