06.05.1980
Sameinað þing: 52. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2348 í B-deild Alþingistíðinda. (2247)

145. mál, veiðar erlendra fiskiskipa í íslenskri fiskveiðilögsögu

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Út af þeim ummælum, sem hér hafa fallið, vil ég gjarnan að það komi fram, að það er æðilangt síðan ég hef lýst opinberlega yfir þeirri skoðun minni, að það ætti fyrir alllöngu að vera búið að taka upp formlegar viðræður við Dani út af þeirri hugsanlegu útfærslu sem þeir hafa ákveðið á fiskveiðilögsögunni við Grænland. Þar höfum við mikilla hagsmuna að gæta. Ég legg á það mikla áherslu, að við Íslendingar reynum að ná samstöðu um það að ná samkomulagi við Norðmenn í Jan Mayen deilunni, og sú samstaða næst ekki nema báðar þjóðirnar sýni lipurð og skilning í því að leysa þetta alvarlega vandamál. Því næst ber okkur að vinna að því að kynna málstað okkar í sambandi við útfærslu Dana og síðan kemur að því að ræða við Efnahagsbandalagið.

Ég vil ekki taka undir þau orð sem hér hafa fallið, að Efnahagsbandalagið láti aldrei nein fríðindi af hendi við aðra nema það fái að fiska jafnmikið magn af fiski á móti. En það er margt annað sem kemur til í samskiptum á milli þjóða. Hér verður um að ræða að fiska í órafjarlægð frá þeim löndum sem þessar þjóðir byggja sem eiga aðild að veiðum innan hafsvæðis Grænlands, og það getur verið nauðsyn á því fyrir þessar þjóðir að flytja afla til Íslands, sem er næst þessu hafsvæði, og vinna hann hér, þar sem Íslendingar keyptu hann, gerðu hann að sinni útflutningsvöru. Annað getur orðið til þess að auka á það, að þessar þjóðir komi sér upp verksmiðjuflota til að nýta þessi mið og jafnvel verði þá miklu stærri fiskveiðifloti.

Ég vil líka minna á það, að við Belga var gerður fyrsti samningurinn þegar fært var út í 50 mílur. Þeir voru lykillinn að Efnahagsbandalaginu. Sú þjóð hefur ekki farið fram á neina nýja samninga um ný skip til veiða hér við land. Þetta er úreltur gamall floti, sem gengur úr sér árlega, og aflamagnið færist óðfluga niður. Því er það kannske ekki rétta leiðin núna, þegar fram undan eru viðkvæmar, erfiðar viðræður við Efnahagsbandalagið, að byrja á því að segja upp slíkum samningum. Hún er ekki alltaf öruggust, stysta leiðin. Það verður stundum að fara betri veginn þótt hann sé aðeins lengri.