06.05.1980
Sameinað þing: 52. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2353 í B-deild Alþingistíðinda. (2255)

149. mál, áfengiskaup ráðuneyta

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Ekki skal ég hafa þetta mál í flimtingum. Mér þykir þetta heldur leiðinleg umr. En ég skil það vel, og þurfti ekki sérstakar útskýringar á, að forsrn. fari með mest af brennivíni. Það er auðskilið. En ég er algerlega andstæður því að taka neitt upp eftir Svíum. Og aldrei hef ég fundið neinn mun á Íslandsmanninum hvort heldur hann var fullur af léttu víni eða sterku — heldur þægilegri ef hann hefur fengið sér almennilega í staupinu af sterku víni, heldur en ef hann bregður á hitt ráðið.

En það var aðallega í sambandi við þessa skýrslugjöf sem mig langaði til að forvitnast um hvort það væru nokkrar frekari fréttir af þessu kendiríi þeirra í janúar.