07.05.1980
Neðri deild: 70. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2433 í B-deild Alþingistíðinda. (2284)

180. mál, lánsfjárlög 1980

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Ég þakka móttökurnar, en trúi því vart af okkar kunningsskap um nokkra áratugi, forseta og mín, að hann hræðist mig þegar ég kem hér upp í ræðustól nú, enda þótt liðið sé nokkuð fram yfir miðnætti. Ég hef aldrei vitað til þess, ef hann hefur séð draug, að þá væri hann hræddur og færi á flótta.

En út af því frv., sem hér er til umr., leyfi ég mér að vísa til umræðna um lánsfjáráætlunina af hálfu okkar sjálfstæðismanna. Ég vil þó í sambandi við 3. gr. frv. vekja athygli hæstv. fjmrh. á því, að þessi grein er ekki óbreytt frá lánsfjárlögunum á s. l. ári. (Fjmrh.: Það sagði ég ekki.) Ég tók svo eftir og það gerðu fleiri, að að hér væri um óbreytta grein að ræða. Ef ráðh. telur sig ekki hafa sagt það, þá höfum við tekið vitlaust eftir. En hér er verið að auka skylduna úr 20% í 40%. (Fjmrh.: Það var 40% í fyrra.) Skv. grg. kemur það skýrt fram, að þar stendur 20%. Ég held að ég fari rétt með að það hafi verið 20% í fyrra og sé verið að auka það í 40%.

Ég gerði grein fyrir því við umr. um lánsfjáráætlun, að við sjálfstæðismenn mundum flytja brtt. við þessa grein þannig að hún verði eins og lánsfjárlögin sem samþykkt voru í des. 1977 með lánsfjáráætluninni fyrir 1978, þar sem lífeyrissjóðirnir voru skyldaðir til að ávaxta a. m. k. 40% af fé sínu í verðtryggðum bréfum. Þannig verður sú brtt. sem við munum bera fram.

Ég vil svo að lokum þakka ráðh. svör við spurningum mínum varðandi það, að Alþ. verði gefin skýrsla um stöðu ríkissjóðs um síðustu áramót, svo og framlagningu ríkisreiknings fyrir árið 1979 áður en þingi lýkur.