07.05.1980
Neðri deild: 71. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2460 í B-deild Alþingistíðinda. (2322)
18. mál, öryggi á vinnustöðum
Magnús H. Magnússon:
Herra forseti. Ég lýsi ánægju minni með að frv. það, sem hér er til umræðu, Skuli nú vera komið til afgreiðslu í þessari hv. d. eftir vandlega umfjöllun í hv. Ed. Aðdragandi frv. er langur, eins og fram kom hjá hæstv. forsrh., allar götur frá því í apríl 1977, en nefnd var skipuð til að vinna í málinu og undirbúa málið í september það sama ár.
Þegar stjórn Ólafs Jóhannessonar tók við haustið 1978 var lögð áhersla á að flýta undirbúningi málsins. Frv. var fullbúið í apríl 1979 og lagt fyrir Alþ. í maímánuði það sama ár, þannig að nú hefur það verið á borðum alþm. í heilt ár og þess vegna er ekki hægt að segja að menn hafi ekki haft tækifæri til að skoða það. Þeir, sem bera landbúnaðinn sérstaklega fyrir brjósti, hefðu auðvitað átt að ræða það við landbúnaðarmenn eða menn frá þeirri starfsstétt ef þeim fannst alveg sérstaklega mikil ástæða til þess umfram það sem nefndin hafði samþykkt.
Vegna þess, hvað langt var liðið á starfstíma Alþingis þegar frv. var fyrst lagt fram og frv. er margbrotið, var ekki gert ráð fyrir afgreiðslu þess vorið 1979, heldur var það lagt fram til kynningar. Strax og Alþingi kom saman að loknum kosningum í des. s. l. var frv. aftur lagt fyrir hið háa Alþingi með rökstuddri von um afgreiðslu á yfirstandandi þingi.
Ég mun ekki fara mörgum orðum um frv. nú, enda hefur það verið gert áður, t. d. í framsöguræðu minni með því vorið 1979 og að hluta aftur við síðari framlagningu þess í des. s. l. og svo auðvitað í ræðu hæstv. forsrh. áðan og í ræðu hv. 2. þm. Norðurl. e. Örfá atriði vil ég þó undirstrika.
Það hefur allan tímann verið og er mjög góða samvinna og mjög góð samstaða svo til allra viðkomandi aðila um öll meginatriði málsins og er það geysilega þýðingarmikið að mínu mati. Þarna eru fulltrúar atvinnurekenda, fulltrúar Sambands ísl. sveitarfélaga, fulltrúar launþegasamtaka og aðrir slíkir. Eina undantekningin er fulltrúi Heilbrigðiseftirlits ríkisins, sem hv. 2. þm. Norðurl. e. minntist á. Hann kom með sérálit daginn sem frv. var lagt fram í nefndinni, ekki fyrr. Það var erfitt að taka mikið tillit til þess, auk þess sem tillögur hans gengu allar út á að fá meiri peninga í skoðun á aðbúnaði. Vinnustaðaeftirlit var búið að vera í gangi lengi. Það var ekki búið að ganga frá skýrslu formlega, en nm., allir aðrir en hann, voru sannfærðir um að útkoman á því mundi engu breyta varðandi þetta frv.
Allar tillögur forstjóra Heilbrigðiseftirlits ríkisins gengu í þá átt að gera málið flóknara og dýrara. Auðvitað stafar samstaðan af því að hagsmunir allra fara hér saman. Því hafa nm. flestir gert sér fulla grein fyrir. Það er vissulega hagur atvinnurekandans jafnt og launþegans að starfsmenn hafi sem allra besta vinnuaðstöðu. Vellíðan starfsfólks og vinnugleði vex og afköst aukast. Á þessu græða allir. Það er líka beggja hagur að allt sem unnt er sé gert til að forðast vinnuslys og atvinnusjúkdóma. Og það er ekki aðeins hagur aðila vinnumarkaðarins, heldur einnig ríkissjóðs og þjóðfélagsins alls. Hvert slys og hvert atvinnusjúkdómstilfelli kostar þjóðfélagið óhemjumikla peninga, auk vanlíðunar og hugarangurs þeirra, sem fyrir óhöppunum verða, og aðstandenda þeirra, og er auðvitað aðalatriðið að koma í veg fyrir slíkt. Manneskjulegt vinnuumhverfi og slysavarnir á vinnustað verða seint of dýru verði keyptar.
Hv. 2. þm. Norðurl. e. taldi að það þyrfti að skoða þetta mál betur, sér í lagi varðandi landbúnaðinn. Eins og ég sagði hefur þetta verið til skoðunar á hinu háa Alþingi í heilt ár og fyllilega það og auk þess er brtt. frá hv. Ed. sem gengur út á sérstaka reglugerð varðandi landbúnaðinn og kem ég að því síðar.
Hann talar um að draga úr yfirbyggingunni. Það er nauðsynlegt, en það er líka þessu frv. ætlað að gera. Því er ætlað að sameina a. m. k. þrjár, ef ekki fjórar stofnanir í eina, hvort sem það yrði deildaskipt stofnun eða hvernig sem því yrði hagað. Vinnustaðaeftirlitið yrði eitt og hið sama. Þar með erum við að reyna að vinna gegn Parkinsonslögmálinu, en ekki með því.
Við getum ekki heldur litið fram hjá því, að það hafa orðið mjög mörg og alvarleg slys í landbúnaði. Þess vegna er ekki óeðlilegt að landbúnaðurinn sé tekinn með þegar svona lög eru samin og samþykkt. Það er ekki hægt að líta fram hjá því, að þar hafa mörg banaslys orðið og mörg slys á unglingum, sem e. t. v. hefði verið hægt að koma í veg fyrir sum hver.
Frv. gengur út á það að leysa sem flest mál á vinnustöðunum sjálfum, leysa þau heima í héraði, en ekki fá menn úr Reykjavík. Þess vegna held ég að hv. 2. þm. Norðurl. e. ætti að geta verið sæmilega ánægður með frv.
Gagnvart greiðslum atvinnurekenda er gengið út frá því að þær verði á sama hátt og núna er greitt í slysatryggingar. M. ö. o.: það er greitt ákveðið gjald fyrir hverja tryggingarskylda vinnuviku. Ég get ekki ímyndað mér að bændur fari verr en aðrir út úr því.
Herra forseti. Ég tel að þær sárafáu breytingar, sem orðið hafa á frv. í hv. Ed., séu sumar til bóta og engar þeirra til skaða. Ein breytingin gengur út á það, eins og hér hefur verið greint frá, að fyrir 1. júní 1981 verði sett reglugerð um þau ákvæði laga þessara sem snerta landbúnaðinn. Það er auðvitað gott og blessað. En ég vil vekja athygli á því núna sérstaklega, og reyndar kom hv. 2. þm. Norðurl. e. inn á það, að ýmsar aðrar reglugerðir þarf einnig að setja. Lögin, þótt ítarleg séu, eru að þessu leytinu til rammalöggjöf.
Þá vil ég vekja athygli á því, að stefnt er að einföldun á öllu eftirliti með vinnustöðum, eins og ég hef lítillega drepið á. Nú fær Vinnueftirlit ríkisins með að gera eftirlit sem hingað til hefur verið í margra höndum með tvíverknaði, árekstrum og aukakostnaði sem hlýtur að fylgja því. Hugmyndir mínar voru og eru þær, og ég reikna með að það séu hugmyndir þeirra sem að þessu frv. standa, að sameina í eina stofnun að mestu eða öllu leyti Öryggiseftirlit ríkisins, Brunamálastofnun ríkisins, Heilbrigðiseftirlit ríkisins, a. m. k. að því er eftirlit með vinnustöðum snertir, og þar með eftirlit með öllu öðru en heimahúsum.
Þarna koma inn fleiri aðilar. Hv. 2. þm. Norðurl. e. minntist á Rafmagnseftirlit ríkisins. Vitanlega á eftirlitsstarf þeirra úti á vinnustöðunum að falla undir þetta sama eftirlit með því að sameina allar hinar mörgu stofnanir sem nú eru hver í sínu horni að vinna að eftirliti. Ein kemur og segir að það eigi að vera hlíf á þessu, önnur kemur og segir að það sé betra að hafa hlífina hinum megin. Báðar hafa í sjálfu sér rétt fyrir sér og báðar leysa vandann, en það er árekstur og eigandinn veit ekkert hvorri hann á að hlýða. Lögum samkv. á hann að hlýða þeim báðum. Það er oft hægt að leysa sama vandann með mismunandi hætti. Í þessu sambandi á að vera hægt að koma í veg fyrir að maðurinn fái þessi fyrirmæli í dag og önnur í næstu viku. Einmitt með því móti, sem frv. gerir ráð fyrir, fengjum við öruggara, fljótvirkara og ódýrara kerfi. En að því þarf áfram að vinna og það mál er engan veginn komið í höfn þó að búið sé að samþ. þessi lög, en það er stórt spor í rétta átt.