07.05.1980
Neðri deild: 71. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2469 í B-deild Alþingistíðinda. (2328)
18. mál, öryggi á vinnustöðum
Steinþór Gestsson:
Herra forseti. Mér kom það raunar á óvart að fram kæmi í þessum umr. sú skoðun að bændur vildu ekkert gera í öryggismálum varðandi vinnuslys eða hefðu ekkert gert í því tilfelli. Ég hef því ekki í höndum nein þau gögn sem tiltæk eru til að sanna hið gagnstæða. En mig langar aðeins, vegna þess sem hér var haldið fram af hv. 6. þm. Norðurl. e., að taka það fram að ég kannast ekki við það, sem hann fullyrti, að margar dráttarvélar í landinu séu óskráðar og því ótryggðar. Alls staðar, þar sem ég þekki til, eru dráttarvélar skráðar, enda varðar það við lög að þær séu ekki skráðar. Meira að segja elstu dráttarvélar, sem til landsins komu 1945, þær heimilisdráttarvélar eru skráðar eins og aðrar.
Þá kom mér einnig á óvart það sem sami hv. þm. hélt fram, að ekkert hafi verið gert til að tryggja öryggi í sambandi við dráttarvélar og margar vélar væru enn án öryggisgrindar. Það er að vísu rétt, að til eru þó nokkrar vélategundir sem ekki fást öryggisgrindur á. En Búnaðarfélag Íslands og Stéttarsamband bænda hafa haft fastan starfsmann til að leiðbeina bændum um öryggisgrindur á dráttarvélar og um að útvega öryggisgrindur á dráttarvélarnar þegar þær fást ekki beint frá framleiðendum vélarinnar. Á flestar vélar hefur verið hægt að smíða öryggisgrindur, en til eru þær tegundir sem ekki hefur reynst unnt að gera slíkt við. — Þetta vil ég láta koma hér fram, þó ég geti ekki sýnt í neinum tölum hversu margar vélar hér er um að ræða.
Í þriðja lagi vil ég koma að því, að hér hefur verið sagt að frá Búnaðarþingi hafi ekki komið fram neinar tillögur um frv. sem hér liggur fyrir til umr. Það er rétt. En venjan er sú, að þegar um er að ræða frv., sem snerta landbúnaðinn, hafa þau verið send af rn. til Búnaðarþings. Þetta frv. var ekki sent Búnaðarþingi. Ég man satt að segja ekki hvort það var komið fram hér í Alþ. þegar Búnaðarþing kom saman. En ég vil minna á það aftur, að þrátt fyrir að þetta mál hafi ekki verið tekið til efnislegrar umfjöllunar á síðasta Búnaðarþingi hafa þessi mál æ ofan í æ verið þar til umræðu og gerðar um þau ályktanir og væri hægt að rifja það upp betur síðar.