07.05.1980
Neðri deild: 71. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2476 í B-deild Alþingistíðinda. (2341)

6. mál, tímabundið vörugjald

Menntmrh. (Ingvar Gíslason):

Ég tel að það mæli margt með því, ef efni málsins er skoðað, að þessi till. verði samþ. Það er vitað og mér er það ljóst, að hljómplötuverð á Íslandi er ákaflega hátt og hljómplötuútgáfa á í miklum erfiðleikum. Hins vegar hygg ég að þetta mál þurfi í heild miklu nánari skoðunar við og ég geri ráð fyrir að svo geti farið að á vegum míns ráðuneytis fari fram slík athugun áður en langir tímar líða. En þetta mál hefur ekki hlotið að mínum dómi eðlilega meðferð hér eða umfjöllun í þinginu að þessu sinni og með tilliti til þess segi ég nei.