08.05.1980
Sameinað þing: 54. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2503 í B-deild Alþingistíðinda. (2373)

163. mál, flutningur gufuhverfils Kröfluvirkjunar til háhitasvæðis á Reykjanesskaga

Flm. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Við höfum hér, þrír þm. Alþfl., flutt till. til þál. um athugun á flutningi annars gufuhverfils Kröfluvirkjunar til nýtingar á háhitasvæði á Reykjanesskaga. Till. er þannig, að Alþ. álykti að fela ríkisstj. að láta fara fram svo fljótt sem verða má óvilhalla og sjálfstæða athugun á því að flytja annan gufuhverfil Kröfluvirkjunar frá Kröflu og á háhitasvæðið í Svartsengi eða á Reykjanesi.

Nú er það auðvitað svo, að það hefur verið áhugamál Íslendinga um langa hríð að nýta sér með einhverjum hætti þá varmaorku sem býr í iðrum jarðar, m. a. til raforkuframleiðslu. Menn hafa fikrað sig áfram í þessum efnum til að byrja með. Það var reist virkjun af þessu tagi í Bjarnarflagi og síðan var ákveðið að ráðast í virkjun af þessu tagi í Kröflu. Nú þarf í sjálfu sér ekki að rekja þá raunasögu sem átt hefur sér stað í sambandi við Kröfluvirkjun, en það er áreiðanlegt, að í sambandi við hana hefur samt einn grundvallarmisskilningur riðið húsum, nefnilega sá að það væri hagkvæmt að reisa sérstaklega stóra gufuvirkjun. Hagkvæmni gufuaflsvirkjananna liggur kannske fyrst og fremst í því, að það er unnt að reisa þær í litlum áföngum til þess að brúa bil í orkuþörf. Tölulega séð held ég að það sé alveg ljóst, að það sé svipaður kostnaður á uppsett megawatt í gufuaflsvirkjun eins og í hinum hagkvæmari, en þó ekki hagkvæmustu vatnsaflsvirkjunum. Hitt er ljóst, að virkjanir af þessu tagi geta verið sérlega hagkvæmar til þess að brúa bil í orkuþörf milli dýrra virkjana, milli stórra virkjana.

Þessi leið var ekki farin í sambandi við Kröflu, og ástandið á því svæði er náttúrlega vægast sagt hörmulegt. Keyptar voru tvær samstæður gufuhverfla og rafala til raforkuframleiðslu í Kröfluvirkjun, og var hvor samstæða 30 mw. að afli. Nú er það svo, að önnur samstæðan er óuppsett, þ. e. gufuhverfill og rafall annarrar samstæðunnar hefur aldrei verið settur upp, en hins vegar hafa kælikerfi og rafkerfi, sem tilheyra þessum óuppsetta hverfli, verið sett upp.

Að undanförnu hefur raforkuframleiðsla í Kröflu oftast verið á bilinu 4–8 mw. eða 12–25% af afköstum annarrar samstæðunnar, 6–12% af heildarafköstum þess vélaafls sem keypt var á Kröflusvæðið. Borholur við Kröflu hafa reynst dýrar og stopular, og ég held að það sé ljóst, að jafnvel þótt ráðist yrði í frekari boranir á þessu og næsta ári virðist fátt benda til þess að fljótlega fengist sú tíföldun — segi og skrifa tíföldun — á gufuafli sem þarf til að fullnýta báða gufuhverflana sem voru keyptir. Reynslan kennir okkur að það er óvarlegt að treysta á árangur af borunum þarna, og þegar af þeim ástæðum er auðvitað rétt að fara fram með gát, halda rannsóknum áfram og takmörkuðum borunum á tilraunaholum, en ég held að það væri mikil fjarstæða að gera ráð fyrir að raforkuþörf verði mætt með framleiðslu í Kröflu. Það má að sjálfsögðu bæta því við, að teljast verður enn yfirvofandi hætta á eldsumbrotum á svæðinu, sem gætu, ef illa tækist til, eyðilagt mannvirkin gersamlega. Þetta styður það náttúrlega enn frekar að farið verði fram með varfærni í framkvæmdum.

Þegar þetta er skoðað saman, hversu stopular holur hafa reynst og hversu eðlilegt er að fara fram með varfærni á þessu sviði, held ég að það sé alveg ljóst, að ekki þýði að gera því skóna, að á næstu árum náist sú tíföldun á afli sem nauðsynleg er til að fullnýta þá vélasamstæðu sem þarna er fyrir hendi.

Nú eru aðstæður þær, að undanfarið hefur rafmagn til stóriðju verið skammtað, og þjóðin hefur auðvitað liðið af því verulegt fjárhagslegt tjón bæði í útflutnings- og gjaldeyristekjum. Það má alveg eins gera ráð fyrir því, að þetta ástand gæti farið versnandi á komandi vetri og að þá lægju ýmis atvinnutækifæri ónýtt hjá garði, t. d. í Grundartangaverksmiðjunni, sem í sjálfu sér er reiðubúin til að auka framleiðslu sína ef hún fær nægilega raforku. Í heild má því segja að málin lýsi sér þannig, að yfirvofandi sé áframhaldandi raforkuskömmtun, að vélasamstæður við Kröflu liggi ónýttar og ýmislegt bendi til þess, að þar sé ekki í náinni framtíð að fá nægilega gufu og nægilega örugga til þess að nýting verði á báðum þessum hverflum.

Hins vegar er það svo, að tvö háhitasvæði eru allvel þekkt og mest rannsökuð hér á landi: háhitasvæðin í Svartsengi og á Reykjanesi. Þessi háhitasvæði hafa reynst allstöðug, andstætt því sem segja má um Kröflusvæðið. Og borholur á þessu svæði, einkum í Svartsengi, hafa þar á ofan reynst mun ódýrari en í Kröflu.

Þegar við þannig búum við yfirvofandi raforkuskömmtun, eigum ónýtta gufuhverfla við Kröflu, sem ekki eru tiltakanlega miklar líkur á að komist í nýtingu mjög fljótlega, og höfum allgóða þekkingu á allstöðugum varmasvæðum annars staðar á landinu, þá sýnist vera ástæða til að líta til þess, hvort ekki megi nýta þann hluta Kröfluvirkjunar, sem óuppsettur er a. m. k., á þeim svæðum sem hér um ræðir og allvel eru þekkt: í Svartsengi og á Reykjanesi.

Nú eru gufuhverflarnir, sem keyptir voru til Kröflu, auðvitað ætlaðir ákveðnum gufueinkennum, ef ég má orða það svo, sem reyndar hafa ekki reynst vera fyrir hendi við Kröflu. Og eftir því sem ég kemst næst af viðtölum við menn, sem kunna um þessi mál að fjalla, þá má allt eins gera ráð fyrir því, að ámóta góð nýting fengist á gufuhverflunum í Svartsengi eða Reykjanesi eins og ætla má að fengist í Kröflu ef gufa fengist þar. Þessir hverflar eiga því að geta skilað stærstum hluta afls síns við þau gufueinkenni sem eru í Svartsengi og á Reykjanesi og að líkindum ámóta miklu og þeir gætu skilað við Kröflu þó að vel tækist til þar með gufuöflun.

Það er út frá þessum sjónarmiðum og til þess að gá að því, hvort ekki megi nýta þessa fjárfestingu betur, sem við höfum flutt þessa þáltill. um að samanburður yrði gerður á valkostum, þeim valkosti annars vegar að láta allt kyrrt vera í Kröflu og liggja þar ónotað og ónýtt um nokkra ófyrirsjáanlega framtíð ellegar að flytja aðra samstæðuna suður og koma henni þar í nýtingu. Sá samanburður, sem hér þyrfti að gera, er af því tagi, að annars vegar er um að ræða fjármagnskostnað af einni tækjasamstæðu, sem fyrirsjáanlega mun engu skila í tekjur eða raforkuframleiðslu á næstu árum og hins vegar möguleikinn á að nýta hana og þá kostnaðurinn af því að flytja tækin suður um heiðar og setja þau upp á stað þar sem raforkuframleiðsla getur átt sér stað og tekjur fengjust til að standa undir kostnaði, jafnframt því sem gjaldeyrisskapandi vinnsla í stóriðjufyrirtækjum yrði a. m. k. ekki skorin niður í sama mæli og annars má gera ráð fyrir.

Það er augljóst, að því fyrr sem gripið yrði til aðgerða af þessu tagi, ef raunhæfar reynast, þeim mun betra. En á hinn bóginn er ekki ráð að flana að neinu. Það gerðu menn í sambandi við Kröflu og ástæðulaust að endurtaka ævintýri af því tagi. Þess vegna er hér lagt til að sérstök athugun fari fram svo fljótt sem verða má á möguleikanum á því að flytja þessa óuppsettu samstæðu og væntanlega þá tilheyrandi kæli- og rafkerfi. Athugunin þyrfti að fjalla um tæknilega útfærslu á flutningi af þessu tagi og uppbyggingu stöðvar á Reykjanesi. Hún þyrfti að fjalla um mat á þeim háhitasvæðum sem til álita koma og kostnaðarsamanburð á þeim valkostum sem ég hef hér rakið. Enginn þarf að efast um að það hlýtur að vera kostnaðarsamt að flytja tækin, en um hagkvæmni verður auðvitað ekki fullyrt nema að undangenginni athugun, og þess vegna er þessi till. flutt.

Í þessari þáltill. er gert ráð fyrir að hér verði um að ræða sjálfstæða og óvilhalla athugun, og með því er fyrst og fremst átt við að hún verði ekki falin aðilum sem sérstakra hagsmuna eiga að gæta eða hafa á nokkurn hátt borið ábyrgð á ævintýrinu í Kröflu. Þetta á sem sagt að vera vönduð athugun, framkvæmd af sjálfstæðum og óvilhöllum aðilum.

En til þess að gera þingheimi grein fyrir þeim tölum sem hér um ræðir, þá held ég að það láti nærri að þá vélasamstæðu, sem hér um ræðir, þ. e. hverfil og kælikerfi og rafkerfi, megi meta á 5.3 milljarða. Það eru sem sagt tæki þarna upp á 5.3 milljarða sem fyrirsjáanlega komast ekki í notkun fljótlega. Þar af er hverfilsamstæðan upp á líklega um 2.4 milljarða og tilheyrandi kælikerfi og rafkerfi upp á 2.8–2.9 milljarða.

Nú er þess að gæta auðvitað, ef koma á suður kælikerfi og rafkerfi sem þegar hefur verið sett upp þarna fyrir norðan, að það kostar nokkuð að taka það niður. Þau mál verður auðvitað að athuga vandlega.

Ef þessar ágiskunartölur reynast réttar um fjárhæðir sem þarna mætti hugsanlega koma í nýtingu, þá sýnist þar vera um mjög umtalsverða fjarhæð að ræða. Og hver og einn getur leikið sér að því að reikna fjármagnskostnaðinn af því að láta liggja ónýtta 5 milljarða af þessu tagi. Á móti þeim kostnaði á svo að vega kostnaðinn af því og ávinninginn af því að setja þessi tæki upp annars staðar, þar sem hafa má af þeim tekjur og stuðla að frekari gjaldeyrisskapandi atvinnu hér á landi.

Mér sýnist, en þó segi ég það með fyrirvara, að heildarkostnaður af fyrirtæki af þessu tagi gæti verið um 13 milljarðar, að 30 mw. stöð geti kostað um 13 milljarða. Þar af eigum við sem sagt í stöðina tæki sem liggja ónýtt þarna norður við Kröflu upp á einhvers staðar á bilinu 5–5.5 milljarða. Þetta hlýtur auðvitað að vekja menn til umhugsunar um það, hvernig best sé að halda á þessum málum.

Meginhlutinn af hinum kostnaðinum, mismuninum á þessum 5–5.5 milljörðum, sem við eigum í einni hverfilsamstæðu, kælikerfi og rafkerfi, og þessum 13 milljörðum, sem giska má á að þetta fyrirtæki kosti í heild, —meginhlutinn af mismuninum liggur í gufuveitunni og borholunum, en ágiskun um borkostnað hlýtur að vera miklum vafa undirorpin. En á það er alveg sérstaklega að líta í þessu sambandi, að það er vitað að borholur á svæðunum í Svartsengi og á Reykjanesi eru ódýrari en t. d. borholur við Kröflu, þannig að það kostar hlutfallslega langtum minna að koma þessari ónotuðu fjárfestingu í brúk með því að setja tækin upp á þeim svæðum sem hér er sérstaklega lagt til að verði athuguð, þ. e. í Svartsengi og á Reykjanesi.

Í fjármagnsfátæku þjóðfélagi tel ég að okkur sé skylt að leita allra leiða til þess að nýta það fé, sem við höfum, þá fjármuni, sem við höfum, og það sé mikill ábyrgðarhluti að horfa upp á það, að milljarðar kr. liggi ónýttir eins og þeir gera við Kröflu og allt virðist benda til að þeir muni gera áfram. Þess vegna er nauðsynlegt að kanna alla möguleika á því að hafa tekjur af þessari fjárfestingu sem menn hafa þegar lagt í, — fjárfestingu upp á sem sagt yfir 5 milljarða, sem liggur þarna og ekki er fyrirsjáanlegt að menn fái tekjur af öðruvísi en að finna sér aðrar leiðir til að nýta þær en að láta þetta liggja ónotað við Kröflu.

Ég skal ekki fjölyrða frekar um þetta eða fara út í forsögu málsins við Kröflu, en ég tel, að hér sé um þess háttar mál að ræða, að það sé ástæða til þess að hraða athugun af þessu tagi, og vænti þess því fastlega, að Alþ. sjái sér fært að samþykkja þessa þáltill. þannig að athugun af þessu tagi geti komist til framkvæmda sem allra fyrst.