08.05.1980
Sameinað þing: 54. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2513 í B-deild Alþingistíðinda. (2378)
163. mál, flutningur gufuhverfils Kröfluvirkjunar til háhitasvæðis á Reykjanesskaga
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Fyrsti flm. þessarar þáltill. lét í það skína, að í þáltill. kæmi fram till. um að fara í að kanna jarðhitann á þessu svæði. Í þáltill. sjálfri kemur slíkt ekki fram. Í grg. er mjög lauslega að því vikið. Með leyfi hæstv. forseta ætla ég að lesa þáltill.:
„Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að láta fara fram svo fljótt sem verða má óvilhalla og sjálfstæða athugun á því að flytja annan gufuhverfil Kröfluvirkjunar frá Kröflu og á háhitasvæðið í Svartsengi eða á Reykjanesi.“
Ég hefði sagt að Svartsengi væri á Reykjanesi, en geri það ekki að deiluefni hér við hv. þm., enda er þetta í hans kjördæmi. (KJ: Er Reykjanes á Reykjanesi?) Ég geri það ekki að deiluefni við hv. þm., eins og ég sagði, en vil fletta hér á bls. 2. Þar er losaralega að því vikið, að í þessari athugun þurfi „að fjalla um tæknilega útfærslu flutnings og uppbyggingar stöðvar á Reykjanesi“. Svo kemur hér örstutt innskotssetning: „mat á þeim háhitasvæðum sem til álita koma“. Það er rannsóknin: „mat á þeim háhitasvæðum“. Svona rannsókn verður ekki framkvæmd án borunar. Það veit hv. flm. Þess vegna hefði í þessari till. — ef átt hefði að taka hana alvarlega sem hlutlausa í þessu máli — átt í upphafi að minnast á borun á Reykjanesi, til að gera þar athuganir og rannsóknir eins og eðlilegt er sem undanfari í svona máli.
Ég ætla ekki að hafa mörg orð um þá útreikninga, að það þurfi á annað hundrað holur fyrir norðan til að fá þá gufu sem þarf. Hver einasti Íslendingur, sem hefur leitt hugann að þessum málum, hlýtur að gera sér grein fyrir því, að við höfum eytt óeðlilega litlum hluta af þeim fjármunum, sem veittir eru til framkvæmda, í rannsóknir í þessu landi. Og af því súpum við seyðið. Ég vil halda því fram, að borunarkostnaðurinn við Kröflu sé að sumu leyti hluti af þeim heildarkostnaði sem af rannsóknum á jarðhita á Íslandi leiðir og mun leiða.
Það vill nú svo til, að þarna eru tvö gufulög í jarðlögunum sem talað er um. Þetta var ekki vitað þegar fyrstu holurnar voru boraðar. En þegar seinni borunin fór fram og sú hola var boruð sem fyrst og fremst gefur þarna orku, þá var farið út í það að einangra efra gufusvæðið frá. Þess vegna vil ég halda því fram sem staðreynd í dag, að ef ekki kemur til eldgos fyrir norðan, þá sé hægt að ná miklu meiri árangri í gufuöflun heldur en þeir „billegu“ útreikningar barnaskóladæmis báru með sér sem hv. verkfræðingurinn bar á borð fyrir þingheim hér áðan. En kannske er það svo með suma, að þeim væri það annast um að aldrei kæmi í ljós hvort hægt hefði verið að koma stöðinni við Kröflu á stað með borunum. Ef til vill er það grunntónninn á bak við þann hugsunarhátt sem kemur fram í afstöðu þeirra til þeirra mannvirkja sem þar eru, miðað við stöðuna eins og hún er í dag.