08.05.1980
Sameinað þing: 54. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2523 í B-deild Alþingistíðinda. (2388)

162. mál, könnun á áhrifum af ákvæðislaunakerfum

Guðmundur J. Guðmundsson:

Herra forseti. Örfá orð. Hér liggur fyrir ákaflega tímabær þáltill. frá hv. þm. Guðrúnu Hallgrímsdóttur þess efnis, að Alþ. feli ríkisstj. að beita sér fyrir könnun á heilsufarslegum og félagslegum áhrifum af ákvæðislaunakerfum (afkastahvetjandi launakerfum) á það fólk sem tekur laun samkv. því. Niðurstöður skulu liggja fyrir eigi síðar en að ári liðnu. Að rannsókn lokinni skal ríkisstj., ef þurfa þykir, beita sér fyrir nauðsynlegum breytingum á vinnuskilyrðum þess verkafólks, er hlut á að máli, í samráði við samtök þess.

Nú var það ekki ætlan mín — enda ekki beint uppörvandi andrúmsloft að tala fyrir þeim fjölda sem hér situr — að fara neitt ítarlega í þessi mál og væri þó ærin ástæða til. Ég vil hins vegar lýsa yfir stuðningi mínum og þakka tillögumanni fyrir þessa tillögu.

Það er ekki tími til að ræða hér um atvinnusjúkdóma. Reyndar hélt tillögumaður prýðilega framsöguræðu þar sem hann gerði grein fyrir till. sinni. Ég skal þess vegna spara mér það, þó ég viti um fjölmargar starfsgreinar þar sem atvinnusjúkdómar eru býsna tíðir. Og mig hefur satt að segja lengi undrað, hvað þar er um algjöran vegg að ræða þó að það sé komið í lög að læknum beri að tilkynna atvinnusjúkdóma. Ég vil leiða hest minn frá því máli öllu.

Það, sem ég hef hins vegar sérstakar áhyggjur af, og þar hygg ég að þessi till. geti orðið til bóta, er það, hvaða áhrif bónusvinna hefur á heilsufar fólks sem í henni vinnur. Þeir, sem vinna bónusvinnu, eru ábyggilega langsamlega flestir í frystihúsum og yfirgnæfandi meiri hluti þeirra eru konur. Það er ekkert um það að deila, að þetta bónuskerfi hefur hækkað laun þeirra, sem í því vinna, meira en flest annað, sennilega meira en nokkuð annað. Ætli tekjuaukning liggi ekki á bilinu 30–100%, eftir því hver í hlut á? En spurningin er sú, hvort þarna er ekki of fast keyrt. Konur, sem vinna í frystihúsum, vinna kannske 8, 10, 12, í einstaka tilfellum 14 tíma, þó það sé nú ekki algengt nema þá á einstökum árstímum. Við skulum halda okkur við 8 eða 10 tíma, oft og tíðum misjafnt eftir landshlutum og árstímum, að þær vinni 8–10 tíma á dag eftir þessu kerfi. Er ekki full ástæða til að ganga úr skugga um hvort þetta kerfi hafi atvinnusjúkdóma í för með sér? Við skulum gera okkur ljósa grein fyrir því, að þetta kerfi verður ekki afnumið. Að vísu má vera að það eigi eftir að breytast og þróast. En er ástæða til að gera einhverjar ráðstafanir, setja t. d. ákvæði um hámarksvinnutíma í þessari vinnu? Er hægt með einhverri fræðslu og upplýsingum um, hvernig standa skuli að vinnu, að hindra hugsanlega atvinnusjúkdóma sem af þessu kæmu? Sannleikurinn er sá, að sennilega er ástandið í þessum málum jafnmisjafnt og staðirnir eru margir. En ég er persónulega ekki í minnsta vafa um að mjög víða hefur fólk orðið fyrir varanlegu heilsutjóni.

Hér er aðeins lagt til að þetta mál verði kannað. Tekið verði ákveðið úrtak og kannað af læknum — svo ég haldi mig við þessa einu starfsgrein, það er full ástæða til að fara í fleiri — hvort fram komi einhver skýr einkenni hjá þeim sem þessa vinnu stunda sem bendi til atvinnusjúkdóma eða einhvers yfirálags sem ástæða sé til að varast. Sé svo, þá þyrfti að athuga til hvaða gagnráðstafana mætti grípa. Ég hef bent á fræðslu og upplýsingar um það, hvernig staðið skuli að vinnu. Svo má vel vera að það þurfi að ákveða einhvern hámarksvinnutíma. Fleira mætti nefna.

Þarna erum við að fjalla um velferð og heilsu þess fólks sem ásamt sjómönnum stendur undir allri útflutningsframleiðslu þjóðarinnar. Það hefur ekki af hálfu þjóðfélagsins verið malað svo mikið undir þessar verkakonur, sem í fiski vinna eða hafa lagt svo mikið fé af hálfu þjóðfélagsins til þeirra, að slík rannsókn væri ekki fullkomlega forsvaranleg. Og spurning hvort hún væri ekki hreinlega öllum aðilum til bóta.

Þeir, sem eru kunnugir þessum rekstri, vita að þarna hefur kannske gengið illa í byrjun, en þróast í betri átt og tekist að koma á ákveðnum vinnubrögðum, ákveðnum starfsanda. Þetta er ákaflega misjafnt. Ég held að af heilsufarsástæðum sé þetta ákaflega mikið öryggis- og réttlætismál. Og ég held að það gæti leitt til sparnaðar — ef á nú að fara að meta þetta peningalega — að þetta væri kannað, til þess að niðurstöður fengjust og þá væri reynt að gera úrbætur í samræmi við það. Ég held að það fari ekkert á milli mála, að til þessa fólks þarf að líta og að heilbrigðisþjónustu og könnun á starfsaðstöðu þess beri að sinna ekki síst. Þess vegna sé ég ekkert nema gott við samþykkt þessarar till., en legg áherslu á að þegar hún verður samþ., sem ég vænti að verði, þá verði þetta ekki aðeins áskorun, heldur verði framfylgt því ákvæði till. að innan eins árs skuli skila niðurstöðum.

Það er ekki tími til þess, en ákaflega væri það nú freistandi — svo ég missi mig nú augnablik út í önnur mál — að ræða örlítið um það í allri þessari „kúltúrpólitík“, sem hér er rædd, hvernig í ósköpunum á því stendur að í skólum þjóðarinnar, almenna skólakerfinu, er aldrei nokkurn tíma eða a. m. k. mjög sjaldan komið að ákveðinni fræðslu um atvinnulíf þjóðarinnar. Mér dettur í hug gagnmerk ritgerð úr síðasta bekk menntaskóla hér í Reykjavík, þar sem kennari bað nemendur að skrifa um nytjafiska. Og nemandinn, sem átti skammt í stúdentspróf og lauk því með sóma sagði að helsti nytjafiskur þjóðarinnar væri þorskur, en konan hans héti ýsa. Svona er vanþekkingin á þessum frumatriðum og skorturinn á upplýsingum. Það flögrar stundum að mér hvernig stendur á því, að mér virðist — og þykist ég vera býsna kunnugur vinnumarkaði — mér virðist þriðji hver ungur maður vera alvarlega bakveikur. Ég held að þetta sé að verulegu leyti vegna þess, að rangt er að vinnu staðið. Og kúltúrinn er svo mikill, að það má ekki kenna unglingum hvernig á að standa að vinnu.

Ætli það kosti ekki umræður að missa sig lengra út á þessi svið? Og ekki var það tilgangur minn. Ég vil að endingu ítreka áskorun um að þessi till. verði samþykkt og að þessi könnun fari fram á því fólki sem vinnur t. d. í frystihúsum, þar er þetta fjölmennast, en það á að ná víðar. Þá hefur það ákveðið öryggi, heilsufarslegt öryggi. Fyrir það er þetta þess vegna réttlætismál, og fyrir atvinnugreinina er það líka styrkur, því það upplýsist þá kannske, ef um atvinnusjúkdóma er að ræða eða þetta hefur einhver slæm áhrif á heilsufar, á hvaða sviði og hvaða úrbætur er hægt að gera, eins og kemur fram í grg. og í ágætri ræðu flm.

Það er skýrt frá því í grg., að þing Verkamannasambandsins hafi gert ályktun um þetta mál, sem er rétt og satt. Reyndar kom það líka mjög fram á umræddu þingi Verkamannasambandsins, hvað vinnuálaginu væri ákaflega misskipt í þessu þjóðfélagi. En við skulum ekki fara lengra út í þessi mál. Ég held að hvort sem litið er á þessi mál frá heilsufræðilegu sjónarmiði, mannréttindasjónarmiðum starfsfólks eða frá sjónarmiði atvinnugreinarinnar og atvinnurekandans, þá geti niðurstaðan ekki orðið önnur en góð. Ég tel að það fólk, sem við slík undirstöðustörf starfar, eigi rétt á því að slík könnun verði gerð. Leiði hún í ljós að úrbóta sé þörf, þá eru þær úrbætur, sem yrðu gerðar, öllum hagkvæmar. Ég legg þess vegna mjög eindregið til að till. verði samþ. og hún verði framkvæmd.