08.05.1980
Sameinað þing: 54. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2526 í B-deild Alþingistíðinda. (2390)
162. mál, könnun á áhrifum af ákvæðislaunakerfum
Flm. (Guðrún Hallgrímsdóttir):
Herra forseti. Það er ekki uppörvandi að ræða slík stórmál svo seint á kvöldi í tómum þingsölum. En ég get ekki látið hjá líða að þakka undirtektir hv. 7. þm. Reykv. við till. mína og treysti ég því að eiga fulltingi hans í því, að þessi till, fái eðlilega meðferð. Ég þakka sömuleiðis hv. 10. landsk. þm., Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrir hennar stuðning, en get ekki á neinn máta sætt mig við það, að á það, sem ég fer fram á í þáltill. minni, sé hægt að líta sem hluta af þeirri þáltill., sem hún minnist hér á. Sú þáltill., sem hv. 10. landsk. þm. gerði að umræðuefni, er í 15 liðum. Sá liður, sem hún telur að fjalli um það sama og þáltill. mín, er ákaflega almennt orðaður: Meta skal „heilsufræðileg, félagsleg og hagfræðileg áhrif hinna mismunandi launakerfa og vinnuaðstæðna.“ Það eru til miklu fleiri launakerfi í landinu heldur en ákvæðislaunakerfi, og ég er eingöngu að fara fram á athugun á áhrifum af ákvæðislaunakerfum á starfsfólk. Ég er hrædd að það geti liðið mörg, mörg ár, áður en komið er að ákvæðislaunakerfum í þeirri athugun. Fyrst þarf e. t. v. að kanna alla hina tólf þættina í till. hv. 10. landsk. þm., síðan yrði byrjað á einhverju því launakerfi sem ekki er afkastahvetjandi, og e. t v. yrði það síðasti liðurinn sem tekinn yrði fyrir, þ. e. þau ákvæðislaunakerfi sem ég geri sérstaklega að umtalsefni. Þar af leiðandi sætti ég mig ekki við þá málsmeðferð og treysti því, að þm. muni veita þessari þáltill. minni fulltingi sitt.