09.05.1980
Neðri deild: 72. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2537 í B-deild Alþingistíðinda. (2448)

167. mál, söluskattur

Menntmrh. (Ingvar Gíslason):

Herra forseti. Það er margt gott um efni þessa frv. að segja. Nú að undanförnu hafa þessi mál verið til umræðu milli mín og hæstv. fjmrh., og eins og menn vita hefur verið gefin út reglugerð af fjmrh. í sambandi við afnám söluskatts af leiksýningum og tónleikum. Í sambandi við sýningar á íslenskum kvikmyndum er um það rætt, að þessi söluskattur verði felldur niður af sýningum á íslenskum kvikmyndum, þ. e. á þann hátt að sú upphæð renni í Kvikmyndasjóð. Ég tel rétt að þetta komi fram.

Það mun hafa komið fram í ræðu hv. flm., að Leikfélag Akureyrar umfram allt hefur átt í mjög miklum fjárhagsörðugleikum með sína starfsemi. Það hefur komið til minna kasta að hafa áhrif á að finna lausn á því máli, og að því er unnið og verður unnið að reyna að finna leið til þess að styrkja fjárhag Leikfélags Akureyrar þannig að til þess þurfi ekki að koma, að Leikfélag Akureyrar verði að hætta þeirri merku starfsemi sem það hefur haldið uppi nú í nokkur ár, sem er fast leikhús á Akureyri. Sú reglugerðarbreyting, sem nú er komin til framkvæmda, mun því m. a. koma Leikfélagi Akureyrar að haldi.

Ég hef í sjálfu sér ekki meira um þetta að segja. Það er sjálfsagt að þetta mál fari sína leið til n., en ég tel rétt að þess sé getið, að unnið er að því innan ríkisstj. og unnið hefur verið að því að koma þeirri skipan á sem þetta frv. gerir ráð fyrir.