09.05.1980
Neðri deild: 72. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2541 í B-deild Alþingistíðinda. (2456)
161. mál, tilbúningur og verslun með smjörlíki o.fl.
Frsm. (Stefán Valgeirsson):
Herra forseti. Á þskj. 442 er nál. frá landbn. um frv. um breyt. á lögum um tilbúning og verslun með smjörlíki o. fl. N. fékk til viðtals forstöðumann Osta- og smjörsölunnar, Óskar H. Gunnarsson, en þetta frv. er flutt að ósk Osta- og smjörsölunnar og bændasamtakanna og raunar vegna umkvörtunar ýmissa neytenda um að þeir hafi talið að þetta smjör, þegar ekki væri blandað einhverju saman við það, væri of hart til þess að taka það beint út úr kæliskápum til neyslu.
Það urðu dálitlar umr. hér um orðalag á þessu frv. og menn þóttust vita hverjir hefðu samið frv. Við könnun kom í ljós að það var allt úr lausu lofti gripið. Þetta eru lög sem voru samin 1933, og ég fór að grafast fyrir um það, hver hefði samið þetta frv., og sá, sem gerði það, var Sigurður heitinn búnaðarmálastjóri. Sá embættismaður, sem samdi síðan eða breytti þessari grein, var ekki sá sami sem var aðalritstjóri að Stefnumörkun í landbúnaði sem kom út í fyrra, þannig að allt það tal, sem hér varð um þetta mál, reyndist ekki á rökum reist.
Fyrir n. komu einnig frá iðnrekendum Davíð Scheving Thorsteinsson og Valur Valsson, og þeir töldu að það væri alveg óþarfi að breyta lögunum. Ráðh. gæti leyft með auglýsingu að blanda t. d. smjöri í smjörlíki og raunar ákveða að allt smjörlíki skyldi vera blandað smjöri. Þetta hefur nokkrum sinnum verið gert, en þá hefur þetta verið 10–15%. En hér er um allt annað að ræða. Hér er um það að ræða að blanda jurtaolíu saman við smjör og aldrei megi vera meira en 1/4 af þessari olíu.
Hv. þm. Steinþór Gestsson skrifaði að vísu undir með fyrirvara og mun gera grein fyrir fyrirvara sínum hér á eftir, en að öðru leyti varð n. sammála um að mæla með því að frv. yrði samþ., en hv. þm. Pétur Sigurðsson var fjarverandi afgreiðslu málsins. En vegna þess hvers konar mál var á þessari grein var hún umorðuð og ég ætla að lesa frvgr. eins og n. gekk frá henni.
„Við 1. gr. Greinin orðist svo: 1. gr. laganna orðist svo:
Smjörlíki nefnist í lögum þessum allt feitmeti, sem líkist smjöri, þegar í því er feiti, sem ekki á rót sína að rekja til mjólkur, er nemur meira en 25% af heildarmagni fitunnar.
Ostlíki nefnist ostur, sem í er önnur fita en mjólkurfita, er nemur meira en 25% af heildarmagni fitunnar.
Rjómalíki kallast vökvi, sem líkist rjóma, en inniheldur aðra feiti en mjólkurfitu, er nemur meira en 25% af fitumagninu.
Mjólkurlíki kallast vökvi, sem líkist mjólk að útliti og efnasamsetningu, en inniheldur feiti, sem ekki á rót sína að rekja til mjólkur, er nemur meira en 25% af heildarfitumagninu.
Þar sem í lögum þessum er talað um smjörlíkisgerð, eftirlit með smjörlíkisgerðum o. s. frv. tekur það einnig til ostlíkis-, mjólkurlíkis- og rjómalíkisgerða, eftir því sem við getur átt.“
En n. leggur einnig til aðra brtt., að á eftir 1. gr. komi ný gr. sem orðist svo:
„Í stað orðanna „atvinnumálaráðherra“ og „atvinnumálaráðuneyti“ í lögunum komi: landbrh. og landbrn.“
Þetta er auðvitað í samræmi við það, að áður féllu þessi mál undir atvmrn. og þá var ekkert landbrn. til en nú er breyting orðin á.